Matur

BBQ kóngurinn: Reykt kúrekakássa í steypujárnspotti

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Alfreð Fannar Björnsson töfrar fram girnilega kjötkássu sem hann steikir í sérstökum grill- steypujárnspotti. 
Alfreð Fannar Björnsson töfrar fram girnilega kjötkássu sem hann steikir í sérstökum grill- steypujárnspotti. 

Grillmeistarinn geðþekki, Alfreð Fannar Björnsson, sýnir áhorfendum frumlega grilltakta í þáttunum BBQ kóngurinn. 

Alfreð notar ekki bara þessar hefðbundu grillaðferðir heldur er hann óhræddur við það að prófa sig áfram og allskonar tilraunir. Hér fyrir neðan er hægt að sjá þegar Alfreð töfrar fram svokallaða kúrekakássu sem hann steikir í steypujárnspotti á grillinu. 

Uppskriftina og aðferðina skref fyrir skref er hægt að nálgast fyrir neðan klippuna. 

Klippa: BBQ kóngurinn: Reykt kúrekakássa í steypujárnspotti

Reykt kúrekakássa í steypujárnspotti

  • Kássan
    • 500 g nautainnralæri eða chuck skorið í teninga
    • 700 g 20/80 hakk
    • Olía
    • 1 msk SPG-kryddblandan
    • 1-2 lítrar nautasoð
    • Bjór (má sleppa)
    • 1 dós hakkaðir tómatar
    • 1 msk tómatpúrra
    • 1 msk chilliduft
    • 2 msk chipotleduft
    • 1 tsk hvítlauksduft
    • ½ msk broddkúmen
    • ½ tsk cayennepipar
    • ½ tsk salt
    • ½ tsk svartur pipar
    • 1 msk dökkur púðursykur
    • 1-2 lófafyllir eplaviðarspænir eða 1-2 eplaviðarkubba
  • Skraut
    • Sýrður rjómi
    • Rifinn cheddarostur
    • Rautt chilli
    • Fersk steinselja
  • Aðferð
  1. Kyndið grillið í 200 gráður.
  2. Kryddið kjötið með SPG eða nauta-rub og brúnið í pottinum upp úr olíu yfir hitanum.
  3. Bætið við hökkuðum tómötum tómatpúrru, chillidufti, chipotledufti, hvítlauksdufti, broddkúmeni, cayennepipar, salti, svörtum pipar, og púðursykri og lítra af nautasoði.
  4. Setjið eplaviðarkubb á kolin eða eplaviðarspænir í reykbakkann. Ef það er lok á pottinum hafið þið pottinn opinn og reykið kássuna.
  5. Lækkið hitann og leyfið kássunni að malla.
  6. Fylgist með kássunni og bætið á vökvann með nautasoði eða góðum bjór.
  7. Eftir um það bil 2-3 klukkutíma ætti kássan að vera tilbúin.
  8. Setjið í skál og skreytið með sýrðum rjóma, cheddarosti, chilli og steinselju.

Hér fyrir neðan er hægt að nálgast fleiri klippur girnilegum grilluppskriftum frá BBQ kónginum en fyrir áhugasama er hægt að nálgast alla þættina á Stöð 2+.

Beikonvafinn bjórdósaborgari

Reykt Texas-kalkúnabringa með BBQ-sinnepssósu

Lax á sedrusviðarplanka


Tengdar fréttir

BBQ kóngurinn: Reykt Texas-kalkúnabringa með BBQ-sinnepssósu

„Þessi er algjört æði. Auðvitað er ekki nauðsynlegt að reykja bringuna en ég mæli eindregið með því. Ef ég á afgang sneiði ég bringuna þunnt niður í álegg sem er fullkomið á samlokur,“ segir grillmeistarinn Alfreð Fannar Björnsson í sjónvarpsþættinum BBQ-kóngurinn sem sýndur var á Stöð 2 nú fyrr í vetur. 








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.