Matur

Tacos með djúpsteiktum gellum að hætti Höllu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Tacos með djúpsteiktum gellum
Tacos með djúpsteiktum gellum Ísland í dag

Halla María Svansdóttir sem rekur veitingastaðinn Hjá Höllu á Grindavík, eldaði Tacos fyrir Evu Laufey Kjaran í Ísland í dag. 

Innslagið má sjá í heild sinni í spilaranum og hér fyrir neðan má finna uppskriftina að gellu-tacos að hætti Höllu. 

Baunasalsa

  • 1 dós svartar baunir
  • 4 litlir hvítlauksgeirar
  • 1/2 rauður chilli
  • 1/2 rauð paprika
  • 1/2 rauðlaukur
  • 1/2 búnt steinselja
  • safi úr 1/2 lime
  • smá ólífuolía
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Allt saxað mjög smátt og blandað saman

Tómatsalsa

  • 250g kirsuberjatómatar
  • 1/2 rauðlaukur
  • 1/2 -1 búnt kóríander
  • 1/2 rautt chilli
  • safi úr 1/2 lime
  • smá ólífuolía
  • smá eplaedik
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Allt saxað smátt og blandað saman

Basil-olía og mæjó

  • Hvítlauksolía
  • chilli
  • ferskt basil
  • smá salt

Aðferð:

  1. Allt sett í blandara og maukað fínt.

Basil mæjó

Aðferð:

  1. Smá basilolíu blandað saman við mæjónes (við gerum okkar eigið en það er hægt að nota hvað sem er) þar til mæjóið er orðið nokkuð grænt.
  2. Afganginn af olíunni er hægt að nota á samlokur með kjúkling, beikon og avókadó svo fátt eitt sé nefnt.
Eva Laufey og Halla ræddu meðal annars um áskoranir í veitingahúsi á landsbyggðinni á tímum Covid.Ísland í dag

Tempura deig og djúpsteiktar gellur

  • 800 g gellur, hreinsaðar
  • 1 bolli hveiti + auka til þess að velta gellunum upp úr
  • 1 msk sykur
  • 1 msk maísmjöl
  • 1 tsk salt
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 1/2 bolli sódavatn
  • 1 L ljós olía, sem þolir djúpsteikingu

Aðferð:

  1. Allt hrært saman.
  2. Saltið fiskinn og setjið í hveiti og svo í tempurablönduna og því næst í heita olíuna.
  3. Grillið pönnukökuna (6") setjið banasalsa á og svo basilmæjó, því næst djúpsteiktu gellurnar eða hvaða fiskur sem er...
  4. tómatsalsað sett ofaná og toppað með fersku kóríander eða annarri góðri kryddjurt ef þið eruð ekki hrifin af kóríander.







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.