Héraðsdómur féllst ekki á að kona hafi ætlað að kaupa hjólhýsi með Land Rovernum Eiður Þór Árnason skrifar 14. janúar 2021 12:49 Bifreiðin sem um ræðir var af gerðinni Land Rover Defender 90 árgerð 2005 en hér má sjá nýrri útgáfu bílsins. Getty/Sjoerd van der Wal Kona var í gær dæmd í Héraðsdómi Reykjaness til að greiða hátt í 5,3 milljóna króna sekt fyrir að hafa gefið upp rangt kaupverð á Land Rover Defender 90 Ts Xs bifreið sem hún flutti inn til Íslands.
Bifreiðin var keypt í Bretlandi í júní 2019 og var konan sakfelld fyrir að hafa reynt að koma sér hjá því að greiða rúmar 2,6 milljónir króna í aðflutningsgjöld. Í aðflutningsskýrslu gaf hún upp að bifreiðin hafi verið keypt á 20 þúsund sterlingspund, eða rúmar 3,5 milljónir króna á núverandi gengi. Héraðsdómur taldi hins vegar sannað að raunverulegt kaupverð hafi verið 35.700 sterlingspund, eða um 6,3 milljónir króna. Talið er að greitt hafi verið fyrir bifreiðina í tveimur greiðslum en hin ákærða fullyrti að seinni greiðslan, sem var ekki tilgreind í tollskýrslu, hafi verið vegna hjólhýsis sem hún hafi hætt við að kaupa. Gögn frá viðskiptabanka stönguðust á við frásögn konunnar Hin ákærða er sögð hafa lagt fram vörureikning frá breskri bílasölu til grundvallar verðinu sem hún tilgreindi í aðflutningsskýrslu en starfsmaður tollstjóra gerði athugasemd við lágt innkaupsverð bifreiðarinnar. Í kjölfarið var óskað eftir skýringu á lágu verði og greiðslustaðfestingu. „Sama dag sendi ákærða staðfestingu úr heimabanka fyrir erlendri millifærslu að fjárhæð 20.000 GBP, afrit af vörureikningi, kaupsamning og skráningargögn á bifreiðinni frá Bretlandi. Ákærða gaf þær skýringar á kaupverði bifreiðarinnar að hún væri fjögurra ára gömul, verið í eigu tveggja mismunandi aðila og lengi í sölu. Þá kvaðst ákærða hafa fengið bifreiðina á tilgreindu verði þar sem hún ætlaði að greiða fyrir hana í einni greiðslu og flytja hana úr landi,“ segir í dómnum. Tollyfirvöld óskuðu þá eftir frekari upplýsingum til stuðnings hinu lága verði en frekari upplýsingar bárust ekki frá ákærðu. Var bifreiðin síðan tekin til skoðunar af tollgæslunni í Reykjavík og fundust engar skemmdir né neitt óeðlilegt við ástand hennar. Ekki liggur fyrir hvers konar hjólhýsi hin ákærða sagðist hafa í huga. Getty/ewg3D Við rannsókn tollgæslu var aflað upplýsinga um gjaldeyrisfærslur ákærðu hjá viðskiptabanka hennar. Þá kom í ljós að hún hafði framkvæmt tvær millifærslur til breska fyrirtækisins ICC Automotive Ltd., seljanda bifreiðarinnar. Fyrri millifærslan nam 21 þúsund sterlingspundum og var gerð 15. maí 2019 með skýringunni ,,Purchase full payment for Land Rover Defender 2015, grey color.“ Seinni millifærslan var gerð 21. sama mánaðar og nam 14.700 sterlingspundum. Í skýringu með færslunni var skrifað ,,Defender 90 grey-other fee,“ eða Defender 90 grár-önnur þóknun. Kannaðist ekkert við hærri reikning Við rannsókn málsins hjá lögreglu var haft samband við sölustjóra B&L, umboðsaðila Land-Rover á Íslandi sem veitti þau svör að verð á sambærilegum ökutækjum í Bretlandi væri 40 til 42 þúsund sterlingspund. Að sögn lögreglu fengust svo upplýsingar frá breskum tollyfirvöldum sem staðfestu grun íslensku tollgæslunnar um að verð bifreiðarinnar hafi verið hærra en tilgreint var í aðflutningsskjölum. Meðal gagna var reikningur sem sýni að verðið á bifreiðinni hafi verið 36.450 sterlingspund með undirskrift ákærðu. Hún sagðist hins vegar ekki kannast við umræddan reikning. „Við rannsókn tollgæslu og lögreglu kvaðst ákærða hafa greitt 20.000 GBP fyrir bifreiðina þrátt fyrir að ásett verð hafi verið 39.950 GBP. Ákærða sagði að bifreiðin hafi verið búin að vera til sölu í alla vega hálft ár og eigandinn hafi viljað selja hana. Hún kvaðst hafa sagt sölumanni hvað hún væri tilbúin til að greiða fyrir bifreiðina og þar sem enginn hafi viljað kaupa hana hafi ákærða fengið bifreiðina fyrir 20.000 GBP,“ segir í dómi Héraðsdóms Reykjaness. Seinni greiðslan vegna hjólhýsis sem var aldrei afhent Sagði konan að seinni millifærslan sem nam 14.700 sterlingspundum hafi verið fyrir hjólhýsi sem hún hafi ætlað að kaupa. Hún kvaðst hafa hætt við að kaupa hjólhýsið en ekki viljað fá kaupverðið endurgreitt þar sem hún hafi velt því fyrir sér að kaupa annað hjólhýsi eða Land Rover Defender bifreið. Þá hafi gengisþróun verið hagstæð til að geyma peningana í Bretlandi. Hún kvaðst ekki hafa skýringu á því hvers vegna seljandi bifreiðarinnar virðist hafa fengið 34 þúsund pund greidd fyrir bifreiðina frá bílasölunni sem hafði milligöngu um viðskiptin. Líkt og áður segir neitaði konan allri sök í málinu og segist hafa greitt 20 þúsund sterlingspund fyrir bifreiðina. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að hún hafi ekki gefið trúverðugar skýringar á því hvers vegna hún hafi fengið bifreiðina keypta fyrir um helming af ásettu verði og engin gögn styðji þá fullyrðingu. Þótti framburður hennar vera ótrúverðugur og hún dæmd til sektargreiðslu.
Dómsmál Bílar Skattar og tollar Mest lesið Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Viðskipti erlent Hefur styrkt KR um 300 milljónir Viðskipti innlent Wok to Walk opnar á Smáratorgi Viðskipti innlent Kaup Símans á Noona gengin í gegn Viðskipti innlent Breytir gömlu heilsugæslunni í sex íbúðir Viðskipti innlent Verð á kaffi sögulega hátt Viðskipti erlent „Gamla góða“ Cocoa Puffsið aftur í verslanir Neytendur Skemmtilegir úlpustrákar: Vinir sem urðu viðskipta-vinir Atvinnulíf KEA hefur innreið á íbúðaleigumarkað á Akureyri Viðskipti innlent Verðstríð á jólabókamarkaði og hátt í þrefaldur verðmunur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hefur styrkt KR um 300 milljónir Kaup Símans á Noona gengin í gegn Verðstríð á jólabókamarkaði og hátt í þrefaldur verðmunur Breytir gömlu heilsugæslunni í sex íbúðir KEA hefur innreið á íbúðaleigumarkað á Akureyri Hætta við skerðingar norðan- og austantil Bein útsending: Sameiginleg fjárfestakynning Marel og JBT Stefnu Samskipa gegn Eimskipi vísað frá dómi Wok to Walk opnar á Smáratorgi Krafa upp á 650 milljónir varði ekki verulega hagsmuni Samskip fá áheyrn Hæstaréttar í samkeppnismálinu Margrét tekur við nýju hlutverki hjá Advania Innlendir framleiðendur stundi samkeppnishindranir Fjölmiðlar á landsbyggðinni fá rúma milljón hver Kapp kaupir bandarískt félag Sesselja nýr forstjóri Genis Álfrún leiðir almannatengslin hjá Íslandsstofu Spá óbreyttri verðbólgu næstu tvo mánuði Súkkulaðið verði dýrara hjá öllum um páskana Aðstoðarmaður Katrínar til Aton Lánakvótar svarið við háum vöxtum húsnæðislána Spánverjar sólgnir í íslenskar gellur Brotajárnsfyrirtæki metið á milljarða í kaupum Styrkáss Sækja reynslubolta í viðskiptagreind til Cubus Metsætanýting í nóvember hjá Icelandair Raforka hækkað um 13,2 prósent á árinu Forstjóri Dominos til N1 Verðhækkunin nemi ekki því sem Nói Síríus fái á sig Halli upp á tugi milljarða hjá hinu opinbera Segir að vel væri hægt að lækka vexti Sjá meira