Viðskipti innlent

Sesselja nýr for­stjóri Genis

Atli Ísleifsson skrifar
Sesselja Ómarsdóttir.
Sesselja Ómarsdóttir. Genis

Sesselja Ómarsdóttir hefur tekið við stöðu forstjóra hjá Genis hf. Hún tekur við starfinu af Sigurgeiri Guðlaugssyni, sem hefur stýrt fyrirtækinu frá ársbyrjun 2022.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Genis er íslenskt líftæknifyrirtæki sem hefur skapað sér nafn á alþjóðlegum vettvangi með þróun lífvirkra kítínfásykra. Þessi efni, sem unnin eru úr sjávarlífverum, eru notuð í fæðubótarefni, sem lyfjavirk efni og við beinígræðslu.

„Sesselja er ekki aðeins vísindamaður með ástríðu fyrir nýsköpun heldur einnig reynslumikill leiðtogi. Hún er prófessor við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands, þar sem hún hefur sinnt rannsóknum og kennslu á sviði náttúruefna um árabil. Hún lauk doktorsprófi í lyfjafræði árið 2006 og EMBA gráðu frá TRIUM (LSE, NYU, HEC) árið 2024. Áður en hún gekk til liðs við Genís starfaði Sesselja sem framkvæmdastjóri lyfjaþróunardeildar hjá Alvotech. Þar leiddi hún þróun líftæknilyfjahliðstæða frá frumþróun til skráningar og hafði umsjón með margvíslegum stjórnunarverkefnum.

Undir stjórn Sesselju mun Genís hf. halda áfram sinni vegferð á sviði líftækni og vöruþróunar. Í júní 2024 tryggði fyrirtækið sér 1,1 milljarð króna í nýtt hlutafé, fjármögnun sem endurspeglar traust núverandi og nýrra hluthafa á framtíðarsýn þess. Fjármagnið mun renna til áframhaldandi þróunar á beinígræðum og nýstárlegum lausnum fyrir bólgusjúkdóma. Vísindaleg þekking og reynsla Sesselju úr lyfjaiðnaði mun koma að góðum notum við áframhaldandi vöxt og þróun fyrirtækisins á sviði líftækni, skráningu og markaðsetningu lækningatækja og lyfjaefna,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×