Skoðun

Hvernig erum við búin undir þessa kreppu?

Björn Berg Gunnarsson skrifar

Kórónukreppan mun renna sitt skeið. Óvíst er þó hvenær viðspyrnan hefst og í hvaða ástandi íslenska hagkerfið verður þegar þar að kemur. Ólíkt fyrri kreppum höfum við óvenju mikið svigrúm til að draga úr neikvæðum áhrifum hennar að þessu sinni. Ástæðan er einna helst sú að ákveðið var, svona rétt einu sinni, að bregða út af vananum og læra af reynslunni.

Þetta reddast í þetta skiptið

Í stað þess að spenna bogann eins og mögulegt var meðan góðærið stóð sem hæst og raula með sjálfum okkur þjóðsönginn „þetta reddast“ var hagkerfið, nánast í heild sinni, búið duglega undir tíma sem þessa. Þess vegna lítur nú út fyrir að þetta muni, þegar allt kemur til alls, reddast.

Vöxtur hagkerfisins undanfarinn áratug var meðal annars nýttur til niðurgreiðslu skulda, hvort sem litið er til opinberra aðila, fyrirtækja eða heimila og hefur erlend staða þjóðarbúsins á sama tíma snúist úr því að vera neikvæð sem nemur hundruðum milljarða í að vera jákvæð um mörg hundruð milljarða. Á sama tíma var safnað í digran gjaldeyrisvarasjóð í Seðlabankanum sem reynist vel nú þegar stærsta útflutningsgrein landsins liggur í dvala.

Þessi fyrirhyggja hefur reynst okkur dýrmæt og kemur til með að vera það áfram í vetur. Hið opinbera getur ráðist í kröftugar mótvægisaðgerðir og keyrt á umtalsverðum halla um nokkurt skeið án þess að stefni í óefni. Aðgengi að fjármagni er gott og á góðum kjörum. Hvað skuldir heimila varðar hafa þær ekki stökkbreyst vegna óðaverðbólgu heldur hafa lánakjör batnað til muna með lækkandi vöxtum og verðbólgan haldist merkilega lág, þrátt fyrir talsverða veikingu krónunnar.

Þetta hjálpar en breytir því ekki að veturinn verður erfiður og margir samlandar okkar munu verða fyrir miklu fjárhagslegu höggi. Þeim mun mikilvægara er að fjárhagslegt svigrúm sé til að grípa þá sem höllustum fæti standa og að viðspyrna atvinnulífsins verði kröftug.

Við höfum notið mikils vaxtar á undanförnum árum, ekki síst vegna ferðaþjónustunnar, en það hefur haft í för með sér að íslenskt efnahagslíf er nú mjög samofið þeirri atvinnugrein. Með hliðsjón af því er áhugavert að sjá hvernig horfur eru í efnahagslífi nokkurra tiltekinna landa, þ.m.t. Íslands, samanborið við hlutfall ferðaþjónustu af landsframleiðslu.

Þó hér stefni í heilmikinn samdrátt á árinu er staðan víða verri. Það hjálpar okkur kannski lítið í þeim verkefnum sem við stöndum frammi fyrir þessi dægrin en er þó vitnisburður um að okkur hafi, meðal annars með fyrirhyggju undanfarinna ára, tekist að mýkja nokkuð efnahagsskellinn í ár sem ella hefði getað orðið mun meiri og alvarlegri.

Höfundur er deildarstjóri Greiningar og fræðslu Íslandsbanka.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×