Matur

Ómótstæðileg Snickers hrákaka

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Eva Laufey Kjaran á heiðurinn að þessari girnilegu "Snickers" hráköku.
Eva Laufey Kjaran á heiðurinn að þessari girnilegu "Snickers" hráköku. www.evalaufeykjaran.is

Helgaruppskriftin að þessu sinni er ómótstæðileg Snickers hrákaka frá matgæðingnum okkar Evu Laufey Kjaran. Þessa er frábært að eiga í kælinum og hún passar einstaklega vel með góðum kaffibolla. Hráefnin eru fá og uppskriftina má sjá hér fyrir neðan. Fyrir áhugasama má sjá aðferðina hennar Evu Laufeyjar í highlights á Instagram síðunni hennar

Snickers Hrákaka

Botn:

  • 1,5 dl salthnetur
  • 1,5 dl möndlur (með eða án hýðis)
  • 2 msk hnetusmjör
  • ögn af salti
  • 2 msk kókosolía (brædd)

Aðferð: 

Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél og maukið, setjið fyllinguna í bökuform og þrýstið vel í formið. Kælið botninn í ísskáp eða í frysti í smá stund á meðan þið útbúið fyllinguna.

Instagram

Fylling:

  • 180 g döðlur
  • 1/2 dl soðið vatn
  • 2 msk hnetusmjör
  • 1/2 dl salthnetur
  • 1 tsk vanilla
  • 1 msk kókosolía, brædd

Aðferð:

Sjóðið vatn og hellið yfir döðlurnar. Leyfið þeim að standa í rúmlega mínútu. Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél og maukið þar til fyllingin er silkimjúk. Hellið blöndunni yfir botninn í forminu og jafnið deigið vel út. Setjið kökuna aftur inn í kæli eða frysti og kælið þar til hún er stíf í gegn.

Instagram

Súkkulaðikrem:

  • 100 g suðusúkkulaði
  • 1,5 msk kókosolía

Aðferð:

Bræðið kókosolíu í potti og bætið súkkulaðinu saman við, hrærið þar til súkkulaðiblandan er farin að þykkna. Hellið yfir kökuna og setjið inn í kæli á ný og leyfið kökunni að stífna í gegn. Skreytið kökuna gjarnan með salthnetum.

Fleiri uppskriftir og hugmyndir má finna HÉR á Vísi.


Tengdar fréttir

Ostakaka með kanileplum, kökumulningi og karamellu

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir setti saman þessa dásamlegu uppskrift. Flestir á höfuðborgarsvæðinu taka því rólega þessa helgi að fyrirmælum þríeykisins. Við mælum með því að þeir sem ætla að baka um helgina, skoði uppskriftirnar okkar hér á Vísi.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.