Rafíþróttir

KR tók á GOAT

Bjarni Bjarnason skrifar
10.umf KR GOAT vodafonedeildin

Tíunda umferð Vodafonedeildarinnar í CS:GO fór fram fyrr í kvöld. Fyrsti leikur kvöldsins var stórveldið KR gegn GOAT. KR-ingar voru á heimavelli og völdu kortið Dust2.

Lið GOAT hóf leikinn með sannfærandi sókn sem að færði þeim fyrstu lotuna. En í annari lotu sem samkvæmt efnahagnum hefði átt að falla til GOAT trektu KR-ingar sig í gang.

Með mulningsvélina á fullum snúning rifu KR-ingar GOAT í sig. Framan af fann sókn GOAT fáar opnur á vörn KR. En þær glopur sem að KR-ingar gerðu voru þeir fljótir að bæta uppfyrir.

Liðsmaður KR ofvirkur (Ólaftur Barði Guðmundsson) geigaði vart af skoti í fyrri hálfleik. En hann leiddi stigatöfluna sem og þá pressuvörn sem KR-ingar voru fljótt farnir að spila. Áttu leikmenn GOAT engin svör við óvenjulegri pressuvörn KR-inga sem vart tóku feilspor.

Staðan í hálfleik KR 13 - 2 GOAT.

Þrátt fyrir útreið í fyrri hálfleik mættu leikmenn GOAT ferskir í vörnina. Ítrekað tókst KR-ingum að brjóta sér leið í gegnum vörnin og að koma sprengjunni niður. En þrátt fyrir erfiða leikstöðu endurheimtu GOAT svæðin og aftengdu sprengjuna.

Færði þessi þrautsegja leikmönnum GOAT átta lotur í seinni hálfleik. KR-ingar voru eflaust farnir að svitna þegar að þeir fundu loks taktinn aftur og tókst þá að klára leikinn

Lokastaðan KR 16 - 10 GOAT.






×