Matur

Tiramisu vöfflur að hætti Erlu Þóru Bergmann

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
109283368_282433506432859_4863971931015538803_n

„Ég elska vöfflur og ég elska tiramisu þannig mér fannst mjög sniðugt að sameina þetta í eitt,“ segir kokkurinn Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir. Hún deilir hér uppskrift með lesendum. Erla Þóra er kokkur á veitingastaðnum Fjallkonunni og hefur þar vakið athygli fyrir eftirréttina sína.

Tiramisu vaffla

  • 2 bollar hveiti 
  • 2 egg
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 msk sykur 1 msk hunang
  • 1/2 bolli mjólk
  • 1/2 bolli sterkt kaffi
  • 1 bolli ab mjólk
  • 2 msk olía
  • 2 msk vanilla, paste eða dropar
  • 5 msk súkkulaðispænir

Öllum hráefnunum blandað vel saman.

Kokkurinn Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir byrjaði 14 ára að vinna við matreiðslu. Hún fagnar því að stúlkum er að fjölga í faginu.Vísir/Vilhelm

Mascarpone krem

  • 400 gr mascarpone ostur
  • 100 gr flórsykur
  • 180 gr þeyttur rjómi
  • 1 tsk kakó
  • 1 msk sterkt kaffi, kælt
  • 1 tsk vanilla- paste eða dropar

Tiramisu vöfflurMynd/Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir

Mascarpone osturinn er þeyttur í nokkrar mínútur og flórsykrinum bætt saman við. Kaffinu og kakóinu er síðan hrært saman og síðan bætt saman við blönduna. Rjóminn er þeyttur og er síðan blandað varlega saman við mascarpone blönduna.

Kakófufti er síðan stráð yfir vöffluna í lokin.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.