Í mál svo hann geti yngt sig um tuttugu ár á Tinder Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. nóvember 2018 08:05 Maðurinn segist ekki fá nein svör á Tinder þegar hann segist vera 69 ára gamall. vísir/getty
69 ára gamall hollenskur maður hefur höfðað mál í heimalandi sínu svo hann geti breytt fæðingardegi sínum úr 11. mars 1949 í 11. mars 1969. Vill hann meðal annars breyta fæðingardeginum svo hann geti verið tuttugu árum yngri á stefnumótaforritinu Tinder. Segir hann að með þessu aukist möguleikar hans á að fá stefnumót í gegnum forritið. „Þú getur breytt nafninu þínu, kyninu þínu svo af hverju ekki aldrinum,“ segir maðurinn, Emile Ratelband. Búist er við því að dómstóll í borginni Arnhem muni kveða upp dóm í málinu innan fjögurra vikna en engin löggjöf í Hollandi leyfir manneskju að breyta fæðingardegi sínum. Ratelband rökstyður mál sitt hins vegar á þeim grundvelli að honum sé mismunað vegna aldurs síns; það hafi ekki bara áhrif á hann vegna Tinder heldur eru atvinnumöguleikar hans einnig takmarkaðir. Hann segir lækna sína segja hann í svo góðu líkamlegu ásigkomulagi að hann gæti verið 45 ára. „Þegar ég er á Tinder og segist vera 69 ára þá fæ ég ekki svar. Þegar ég er 49 ára, með andlitið sem ég hef, þá verð ég í lúxusstöðu.“
Evrópa Holland Samfélagsmiðlar Mest lesið Fordæmalaus náðun Bidens Erlent Hyggjast fljúga þotunni yfir Reykjavík í hádeginu Innlent „Fullt af augljósum árekstrum þarna“ Innlent Getur ekki hugsað til þess að þurfa að loka aftur eftir tvo mánuði Innlent Hafnað í fyrsta sinn í tuttugu ár Innlent Vatnsleki í Garðheimum Innlent Lifir grenitréð í Ölfusá af krapastífluna? Innlent Gekk betur en óttast var Innlent „Þessi aðgerð lukkaðist vel“ Innlent Búið að opna fyrir tilnefningar til manns ársins 2024 Innlent Fleiri fréttir Fordæmalaus náðun Bidens Mörg hundruð vígamenn frá Írak til aðstoðar Assad-liða Vilja vara aðra við örlögum dóttur sinnar í Laos Játar að hafa ekki afl til að taka aftur hernumdu svæðin Ríkisstjórnin og Barnier í hættu vegna fjárlaga Biden náðar son sinn Kynlífsverkafólk í Belgíu á nú rétt á fæðingarorlofi og lífeyri Ungur maður særði tvennt í skotárás á Grænlandi Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Sjá meira