Matur

Í eldhúsi Evu: Ofnbökuð sítrónuostakaka með ferskum berjum

Eva Laufey skrifar
Kakan er mjög hlaupkennd þegar hún er tekin út úr ofninum en hafið ekki áhyggjur, hún á einmitt að líta þannig út.
Kakan er mjög hlaupkennd þegar hún er tekin út úr ofninum en hafið ekki áhyggjur, hún á einmitt að líta þannig út. Vísir/Eva Laufey

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að dásamlegri sítrónuostaköku.

Ofnbökuð sítrónuostakaka borin fram með ferskum berjum

Kexbotn

400 g kexkökur til dæmis Digestive

120 g smjör

1 tsk sykur

Aðferð:

Setjið kexið í matvinnsluvél og maukið, bræðið smjör og hellið því í matvinnsluvélina ásamt einni teskeið af sykri og maukið enn betur saman. Hellið blöndunni í hringlaga smelluform.



Ostafylling

900 g hreinn rjómaostur, við stofuhita

170 g sykur

250 g sýrður rjómi

2 egg

2 tsk vanilludropar – eða sykur

fræin úr einni vanillustöng

½ dl nýrifinn sítrónubörkur

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C. Þeytið rjómaost og sykur saman þar til osturinn verður léttur og mjúkur, bætið sýrða rjómanum við og þeytið vel. Bætið því næst eggjum, sítróog vanillu saman við og þeytið áfram þar til deigið er orðið silkimjúkt. Hellið fyllingunni yfir kexbotninn og vefjið tvöföldu lagi af álpappír meðfram forminu, með því ætti kakan ekki að springa en ostakökur geta verið svolítið viðkvæmar.

Bakið kökuna við 200°C í 45 – 50 mínútur. Leyfið kökunni að kólna í ofninum í um það bil klukkustund, hún er mjög hlaupkennd þegar hún er tekin út úr ofninum en hafið ekki áhyggjur, hún á einmitt að líta þannig út. Geymið kökuna í kæli í nokkrar klukkustundir áður en þið berið hana fram, best yfir nótt. Sáldrið flórsykri yfir kökuna áður en þið berið hana fram ásamt ferskum berjum.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.