Matur

Eva Laufey töfraði fram hollt og gott fiski takkó

ritstjórn skrifar

Eva Laufey töfraði fram fiski takkó með mangósalsa í kvöldfréttum stöðvar 2 í kvöld ásamt Sindra Sindrasyni. Hægt er að sjá innslagið í spilaranum hér að ofan og uppskriftina hér fyrir neðan.

Mangósalsa

1 mangó 

1 rauð paprika 

1 – 2 msk saxað kóríander 

2 msk saxaður vorlaukur 

salt og pipar 

safinn úr hálfri límónu 

1 tsk ólíuolía



Aðferð: 

Saxið öll hráefnin frekar smátt og blandið saman í skál, hellið límónusafanum og ólífuolíunni yfir og hrærið. Kryddið til með salt og pipar. Gott er að geyma salsa inn í ísskáp í um það bil hálftíma áður en það er borið fram en með því verður það mun bragðmeira.

Létt lárperu- og límónusósa

1 dós sýrður rjómi 

2 hvítlauksrif 

1 lárpera 

safinn úr hálfri límónu 

salt og pipar 

smávegis af kóríander, magn eftir smekk



Aðferð: 

Setjið öll hráefnin í matvinnusluvél og maukið þar til sósan verður silkimjúk. Ef þið eigið ekki matvinnsluvél getið þið auðvitað notað gaffal eða annað eldhústól og maukað sósuna saman.

Fiski takkó

600 g ýsa (Þið getið að sjálfsögðu notað hvaða fisk sem er) 

2 msk ólífuolía 

1 tsk paprikukrydd

¼ tsk cumin krydd 

½ tsk hvítlauksduft 

1 msk rifinn börkur af límónu 

1 hvítlauksrif



Aðferð: 

Skerið fiskinn í jafn stóra bita og leggið fiskinn í eldfast mót. Kryddið fiskinn með þeim kryddum sem eru talin upp hér að ofan og hellið síðan ólífuolíu yfir og nuddið vel þannig að kryddin þekji fiskinn vel. Rífið límónubörk og hvítlauksrif yfir. Best er að leyfa fiskinum að liggja í marineringunni í smá stund en með því verður fiskurinn enn bragðbetri. 

Steikið fiskinn upp úr olíu í nokkrar mínútur á hvorri hlið, kreistið gjarnan smávegis af límónusafa yfir rétt í lokin. Berið fiskinn fram í tortilla vefjum með mangósalsa og lárperu-og límónusósunni.

Njótið vel.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.