Matur

50 heilsudrykkir fyrir alla fjölskylduna

Marín Manda skrifar
Hildur Halldórsdóttir ásamt dætrum sínum.
Hildur Halldórsdóttir ásamt dætrum sínum.

"Þetta verða fimmtíu uppskriftir að alls konar drykkjum og ýmis fróðleikur fyrir alla fjölskylduna. Bókinni verður skipt upp í kafla sem eru þá grænir drykkir, möndludrykkir, skyrdrykkir og fleira,“ segir Hildur Halldórsdóttir lífeindafræðingur.

Hennar fyrsta bók er væntanleg á markað fljótlega. Bókin er ætluð allri fjölskyldunni en Hildur segist hafa sjálf farið að grúska í drykkjum þegar hún var heima í fæðingarorlofi. „Mér fannst mig vanta meiri næringu í kroppinn eftir að hafa lifað á svo einhæfu fæði og fór því að skoða möguleikana og kolféll fyrir þessu.“ 

Hildi þótti erfitt að nálgast góðar uppskriftir að drykkjum á íslensku og fátt var um innihaldslýsingar svo hún fór að prófa sig áfram. Drykkina segir hún koma í staðinn fyrir máltíð og ekki sé nauðsynlegt að kaupa það dýrasta í heilsubúðunum til að útbúa drykkina, því auðvelt sé að notast við það sem til er í skápunum heima.

Kókos- og lime-smoothie

(334 hitaeiningar)

Hrikalega frískandi og bragðgóður drykkur

1 dl kókosmjólk

2 dl ferskur vel þroskaður ananas (160 g)

½ banani (má sleppa)

2 msk. ristaðar kókosflögur frá Himneskri hollustu

1 msk. chia-fræ

Lime-safi úr um hálfu lime

Um 1 dl vatn

Allt sett í blandara og blandað vel. Ef þið ­viljið minnka kolvetni og auka prótein, þá getið þið sleppt banananum og bætt við hreinu próteini.

Hægt er að fylgjast með Hildi á facebook hér.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.