OR hefur lagt milljarða í Gagnaveituna 16. júní 2012 17:30 Stjórnarformaður Haraldur Flosi Tryggvason segir að enn eigi eftir að taka ákvörðun um sölu Gagnaveitunnar. fréttabklaðið/gva
Orkuveita Reykjavíkur hefur frá árinu 1999 lagt 13 milljarða í fjarskiptastarfsemi. Þar af hafa 4,7 milljarðar farið beint í Gagnaveitu Reykjavíkur frá stofnun hennar. RÚV greinir frá þessu. Stjórn Orkuveitunnar hefur lagt kapp á að selja eignir fyrirtækisins til að grynnka á skuldum þess. Gagnaveituna hefur borið hátt í þeirri umræðu. Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar, segir að enn eigi eftir að taka ákvörðun um söluverð Gagnaveitunnar og hvort hún verði seld fyrir minna fé en í hana hefur verið lagt. Samþykkt var á stjórnarfundi Orkuveitunnar að birta upplýsingar um kostnað hennar við Gagnaveitu Reykjavíkur. Haraldur Flosi segir ekki hægt að birta ýtarlegri tölur vegna viðskiptahagsmuna. Ekki sé hægt að eyrnamerkja Gagnaveitunni alla þrettán milljarðana í dag, en megnið sé vissulega í fyrirtækinu. Gagnaveita Reykjavíkur var stofnuð sem einkahlutafélag árið 2007 og er að fullu í eigu Orkuveitunnar en skilið er á milli bókhalds þessara tveggja fyrirtækja. Gagnaveitan rekur gagnaflutningskerfi, meðal annars ljósleiðaratengingar, sem nær frá Bifröst í Borgarfirði til Vestmannaeyja. - bþh
Fréttir Mest lesið Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Innlent Telur fækkun ráðuneyta óheppilega Innlent Linda Dröfn á lista BBC um 100 áhrifamestu konur heims Innlent Þessi voru oftast strikuð út í Reykjavík Innlent Gestur fari með rangt mál varðandi endurtalningu Innlent Umboðsmaður Alþingis óskar svara frá Útlendingastofnun Innlent Mega ekki lengur leggja stund á hjúkrunar- og ljósmóðurfræði Erlent Rannsókn á manndrápi við Krýsuvíkurveg til saksóknara Innlent Launmorð á götum New York Erlent Rútuslys austan við Hala í Suðursveit Innlent Fleiri fréttir Konfektið í hæstu hæðum Bankarnir of bráðir í vaxtahækkunum Rútuslys austan við Hala í Suðursveit Traustar viðræður, verðhækkanir og jólastuð Rannsókn á manndrápi við Krýsuvíkurveg til saksóknara Tveir grunaðir um frelsissviptingu Slökkvilið kallað út vegna bruna í Stjörnugróf Þessi voru oftast strikuð út í Reykjavík Hafa ekki enn lent í vandræðum í viðræðum Plötusnúður fagnar sigri gegn Reyni Traustasyni Var að reyna að hjálpa en sýndi af sér stórfellt gáleysi Ætla að tryggja að einn af hverjum tíu sé nýliði Ekkert skapalón til fyrir myndun nýrrar ríkisstjórnar Funda áfram á morgun Telur fækkun ráðuneyta óheppilega Gestur fari með rangt mál varðandi endurtalningu Ný stjórn í burðarliðnum Ásgeir Þór og Theodór grípa boltana hans Gríms Sánan í Vesturbæ rifin Linda Dröfn á lista BBC um 100 áhrifamestu konur heims Umboðsmaður Alþingis óskar svara frá Útlendingastofnun Rifrildi, innbrot og eftirför Fjárhagsáætlun samþykkt eftir ellefu tíma umræður Fagna þotunni sem markar tímamót í sögu Icelandair Stígarnir fá falleinkunn hjá hjólafólki Gátu loksins mætt aftur í skólann sinn á Selfossi „Menn ætla sér alla leið með þetta“ Skæð fuglaflensa fannst í kalkúnum í Ölfusi Afturkalla átta friðlýsingar Niðurbrotin eftir synjun og segir afkomuótta blasa við næstu mánuði Sjá meira