Matur

Helgarmaturinn - Hvítsúkkulaðikókoskæti

Hödd Vilhjálmsdóttir
Hödd Vilhjálmsdóttir

Hödd Vilhjálmsdóttir fréttakona á Stöð 2 hefur í nægu að snúast heima með nýfæddri dóttur sinni og fjölskyldu um þessar mundir, en hún deilir hér fyrstu smákökuuppskriftinni fyrir jólin. Um er að ræða unaðslega blöndu af hvítu súkkulaði og kókos. Njótið!

Hvítsúkkulaðikókoskæti

1 bolli mjúkt ósaltað smjör

½ bolli hvítur sykur

½ bolli ljósbrúnn sykur

2 egg

1 tsk. vanilludropar

2 bollar hveiti

1 tsk. matarsódi

½ tsk. lyftiduft

½ tsk. salt

2 bollar haframjöl

2 bollar hvítir súkkulaðibitar (stórum bitum)

1 bolli kókosflögur

1 bolli valhnetur (gróft skornar)

Hrærið saman smjör og sykur, á meðalhraða, í tvær mínútur. Setjið eggin út í, eitt í einu og hrærið á meðan. Bætið við vanilludropum.

Setjið hveiti, matarsóda, lyftiduft og salt í skál og blandið saman. Hellið þurrblöndunni rólega út í smjörblönduna og blandið vel saman. Bætið í haframjöli, kókos­flögum, valhnetum og súkkulaðibitum og blandið við.

Setjið 1 msk. af deiginu á smjörpappírsþakta bökunarplötu, eins oft og deigið leyfir. Ýtið aðeins á hverja köku til að fletja smá út. Bakið við 180°C í 16-18 mínútur – eða þar til þær verða gylltar að lit. Takið út úr ofninum, leyfið aðeins að kólna og svo er bara að borða og brosa.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.