Matur

Helgarmaturinn - Grillaður humar

Anna Rún Frímannsdóttir.
Anna Rún Frímannsdóttir.

Þegar fyrrum þulan og íslenskufræðingurinn, Anna Rún Frímannsdóttir vill dekra við fjölskylduna grillar hún humar og býður upp á ferskt meðlæti með.

Grillaður humar í skel

1 kg humar í skel (fyrir um 4)

Hvítlaukssmjör

100 gr. smjör

1 msk. steinselja

2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir

Bræðið smjörið í potti, bætið hvítlauk og steinselju út í og látið sjóða í um 2 mínútur.

Humarinn er settur í bakka með skelhliðina niður og penslaður vel með hvítlauksblöndunni. Grillið á miklum hita í 6 mínútur og snúið af og til.

Humarinn er svo borinn fram með brakandi fersku salati, grilluðu hvítlauksbrauði og hvítlauks­sósu. Einnig er gott að skera niður sítrónu og kreista yfir humarinn.

Ómissandi hvítlaukssósa

1 dós sýrður rjómi 18% (200 gr)

2 pressaðir hvítlauksgeirar

1 msk. söxuð steinselja

½ tsk. sítrónusafi

Öllu er blandað vel saman, gott að kæla vel áður en borið er fram.

Grillað hvítlauksbrauð

1 stk. snittubrauð

Hvítlaukssmjör

Hvítlaukssalt

Rifinn ostur

Snittubrauðið er skorið í 3 stóra bita og svo eftir endilöngu þannig að úr verða 6 ílangar sneiðar. Smurt vel með hvítlaukssmjöri, rifinn ostur er settur yfir og örlítið af hvítlaukssalti. Svo eru brauðin grilluð hæfilega. Algjört sælgæti.

Brakandi ferskt salat

Klettasalat

Jarðarber

Mangó

Steinalaus vínber

Rauð paprika

Agúrka

Rauðlaukur

Furuhnetur (má sleppa eða hafa sér)

Fetaostur (má sleppa eða hafa sér)








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.