Matur

Vogaskóla frómas

Birna og stórfjölskylda hennar hefur verið með ananasfrómas í eftirrétt á jóladag í tugi ára. Ananasfrómasinn er bragðgóður og auðveldlega má gera það nokkru fyrir jól og frysta.
Birna og stórfjölskylda hennar hefur verið með ananasfrómas í eftirrétt á jóladag í tugi ára. Ananasfrómasinn er bragðgóður og auðveldlega má gera það nokkru fyrir jól og frysta. Myndir/Valli

Þetta er uppskrift sem hefur fylgt fjölskyldunni lengi," segir Birna Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur sem gefur uppskrift að ljúffengum ananasfrómas.

„Þessi uppskrift er aðeins útfærð frá hefðbundnum uppskriftum," útskýrir hún. „Við vorum öll systkinin í matreiðslu í Vogaskóla hjá Þórunni og Erlu. Þetta er uppskrift sem við fengum hjá þeim."

Frómasinn gerði mikla lukku og hefur verið eftirréttur fjölskyldunnar á jóladag í rúm þrjátíu ár.

Birna, systkini hennar, foreldrar og barnabörn hittast öll á jóladag og gæða sér á hangikjöti og tilheyrandi.

„Frómasinn er ómissandi lokapunktur á veislunni," segir Birna en tekur fram að móðir hennar, Elísabet Jóna Erlendsdóttir, hafi iðulega búið til frómasinn í gegnum árin. -sg

Mynd/Valli

Ananas frómas

6 egg

1 1/2 dl sykur

12 plötur af matarlími

safi af 1 1/2 sítrónu

um 2 1/2 dl ananassafi, ferskur

3 pelar rjómi

ananasbitar til skreytingar, best ferskir



Egg og sykur þeytt mjög vel saman. Leggið matarlímið í bleyti í smástund. Hellið vatninu af matarlíminu og bræðið í vatnsbaði. Kælið matarlímið með sítrónusafanum.

Ananassafa bætt út í eggjahræruna. Síðan er matarlími bætt varlega út í og hrært mjög vel í á meðan, þó alls ekki í hrærivél. Rjómi þeyttur, en ekki stífþeyttur, og hrærður saman við með sleif eða sleikju. Búðingurinn látinn í skál (eða smáskálar) og skreyttur með rjóma og ananasbitum. Geymist vel í frysti og því upplagt að gera löngu fyrir jól.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.