Matur

Kaffi með engifer

Froðan er sett ofaná með matskeið.
Froðan er sett ofaná með matskeið.

Café Haití hefur getið sér gott orð meðal kaffiaðdáenda en staðurinn er nú fluttur á nýjan stað, í Geirsgötu.

Café Haití er notalegt kaffihús og nýtur það sín vel á hinu skemmtilega hafnarsvæði við Geirsgötu sem er í stöðugri uppbyggingu.

Við fengum Eldu Thorisson-Faurelien á Café Haití til að gefa okkur uppskrift að kaffidrykk með engifer.





Elda á Café Haíti.

Kaffi með engifer

7 grömm kaffiduft að eigin vali

vatn fyrir kaffið

½ stk. þurrkað og mulið engifer eða 1 tsk. engiferduft

½ bolli mjólk



Blandið saman kaffinu og engifer í espressókönnu og hellið upp á fyrir einn bolla. Flóið mjólkina þannig að smá froða myndist og blandið í bolla uppáhelltu kaffinu og mjólk í jöfnum hlutföllum, setjið froðuna ofan á með matskeið.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.