Matur

Hvít súkkulaði- og temús

50 ml mjólk

250 ml rjómi

50 g smjör

550 g hvítt súkkulaði

4 eggjarauður

20 g sykur

4 eggjahvítur

Hitið mjólk og rjóma að suðu með 2 tepokum úti í. Hellið vökvanum yfir saxað súkkulaðið og hrærið vel saman. Blandið svo mjúku smjörinu saman við ásamt eggjarauðunum, einni í einu. Stífþeytið að síðustu hvíturnar og sykurinn og blandið saman við súkkulaðiblönduna. Setjið þetta strax í form og látið standa í kæli minnst þrjá tíma.

Vín með desert

Vín: Asti Riccadonna. Dæmigert Asti Spumante, frá Norður-Ítalíu. Í Asti er mikið um eftirréttavín, allir þekkja Asti-vínin. Gott fyrir og eftir máltíð.

Hörgult með fínlegri kolsýru. Ilmur af múskati og ávöxtum. Létt, ávaxtaríkt, freyðir vel, örlítið kryddað en í góðu jafnvægi. Nokkuð sætt. Riccadonna er frábært vín sem hentar við öll tækifæri. Nýtur sín best kælt, 6-8°C, og er gott sem fordrykkur en einnig sem eftirréttavín.

Glös: Freyðivínsskál eða kampavínsglös








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.