Matur

Húsavíkur hangilæri

Fjöldi matargesta: 4

Húsavíkur hangilæri

Leiðbeiningar

Kjötið sett í hæfilega stóran pott. Ef sjóða á heilt læri má nota stóran steikarpott með loki og setja hann á tvær eldavélarhellur.

Köldu vatni hellt yfir og sykri bætt í pottinn. Lok sett á pottinn og hitað mjög rólega að suðu, það gæti tekið allt að 45 mínútur. Þegar suðan er komin upp er hitinn lækkaður og kjötið látið malla í 10-15 mínútur við hægan hita. Þá er slökkt undir pottinum en hann ekki tekinn af hellunni. Kjötið látið kólna næstum alveg í soðinu en síðan tekið upp úr og geymt í kæli. Best er þó að taka það út nokkru áður en það er borið fram svo það sé ekki alveg ískalt.

Berið fram með kartöfluuppstúfi grænum baunum og e.t.v. laufabrauði.



Uppstúf:
Mjólk, smjör og hveiti sett í pott, hitað rólega að suðu og hrært stöðugt í með písk.

Hitinn lækkaður, kryddað með salti og pipar eftir smekk og látið malla í 2-3 mínútur. Þá eru kartöflurnar settar út í og látið malla áfram þar til þær eru heitar í gegn. Sumir nota 1 msk sykur út í uppstúfið. Einnig getur verið gott að krydda það með dálitlu nýrifnu múskati.

1 Msk. sykur, má sleppa
1 Stk. Húsavíkur hangilæri , rúlla eða heilt læri á beini
Uppstúf:
3 Msk. hveiti
1 kg kartöflur, forsoðnar
0.5 l mjólk, köld
salt, frá Badia
50 g smjör
Hvítur pipar, frá Badia

Uppskrift af Nóatún.is








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.