Matur

Lax með hvítlaukskartöflumauki og engifersósu

1 kg bein hreinsað laxa flak

50 gr smjör

3 mtsk ólífu olía

½ sítróna

1kg skrældar kartöflur

2 stk hvítlauksgeirar

200ml rjómi

150 gr smjör

Salt

½ krukka Súrsað sushi engifer

200ml rjómi

Salt

Aðferð

Sjóðið kartöflur, hvítlauk og smá salt saman í potti þar til kartöflurnar eru orðnar soðnar, sigtið þá kartöflurnar og maukið með soðnum hvítlauknunm,bætið rjóma saman við ásamt smjörinu og smakkið til með salti.

Sósan: Setjið súrsaða engiferið samt safanum í krukkunni í pott og sjóðið niður,bætið rjómanum saman við og sjóðið til helminga smakkið til með salti og sigtið svo sósunna.

Laxinn: Skerið laxabitana í 10 bita steikið í olífu olíu og smjörinu á meðal háum hita eða þar til gullin brúnn kreistið þá sítrónuna yfir laxinn í pönnunni og eldið áfram í um þann bil 4 mínútur í viðbót fer eftir þykkt á bitum.












×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.