Matur

Nautalund með bearnaise sósu og brasseruðu rótargrænmeti

1,3kg nautalund sinar hreinsaðar í burt

Salt og pipar

300 gr gulrætur skræld og skorinn grófa bita

300gr steinseljurót skræld og skorinn í grófa bita

300gr sellerýrót skræld og skorinn í grófa bita

½ Garðablóðberg

½ hvítlaukur skorinn í helminga

½ bolli Olífu olía

Salt og pipar

500gr smjör hitað í örbylgju ofni í 3 mín

5 stk eggjarauður stofuhita

2 tsk kjötkraftur

1 tsk estragon þurrkað

Safi úr 1 sítrónu

1 mtsk söxuð fersk steinselja

Aðferð

Naut: kryddið nautalundina með salti og pipar steikið ca 2 mín á öllum hliðum setjið inní ofn við 100 gráður í um þann bil 20 mín.

Bearnaise: Þeytið stanslaust í eggjarauðunum og hellið sjóðandi heitu smjörinu í mjórri bunu útí og hrærið vel á meðan síðan er sósan smökkuð til með kjötkraftinum, estragoni, saxaðri steinselju og að síðustu er sítrónu safinn kreistur útí óhætt er að bæta salti eftir smekk

Rótargrænmeti: sjóðið gulrætur í ca 5-8 mín í söltu vatni,sjóðið sellerýrótina í ca 2 mín í söltu vatni,sjóði steinseljurótina í ca 3 mín í söltu vatni. Síðan þeagar allt grænmetið er hálfeldað er það kryddað til með salti og pipar velt uppúr ólífu olíunni og flórsykri stráð yfir grænmetið er þá ofnbakað við háan hita í ca 8 mín.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.