Dallas vann 12. leikinn í röð 2. desember 2006 11:10 Josh Howard hjá Dallas treður knettinum í körfu Sacramento í leik liðanna í nótt. Dallas er á fljúgandi siglingu í NBA-deildinni.
Dallas er á miklu skriði í NBA-deildinni í körfubolta og í nótt vann liðið sinn tólfta leik í röð. Fórnarlambið að þessu sinni var Sacramento - lokatölur urðu 109-90. Viðsnúningurinn á gengi Dallas hefur verið lyginni líkust því liðið tapaði fyrstu fjórum leikjum sínum á tímabilinu. Síðan þá hefur liðið hins vegar ekki tapað leik og vilja margir meina að ástæðan fyrir dapri byrjun liðsins sé sú að lykilmenn liðsins spiluðu lítið sem ekkert á undirbúningstímabilinu. Nú eru þeir hins vegar búnir að finna sitt rétta form og fær fátt stöðvað þá breidd sem Dallas býr yfir. Josh Howard var stigahæstur Dallas með 24 stig en Dirk Nowitzki, sem lék með á ný eftir meiðsli, var með 16 stig og tók 10 fráköst. Fjölmargir leikir voru á dagskrá í NBA í nótt og af öðrum leikjum bar hæst að Orlando heldur sínu striki sem eitt af spútnikliðum leiktíðarinnar. Í nótt lagði liðið Portland af velli, 91-89, og hefur unnið 13 af 17 leikjum sínum það sem af er. Detroit er komið á gott skrið eftir brösuglega byrjun og eftir 108-100 sigur á New York í nótt hefur liðið unnið átta leiki í röð. Tayun Prince skoraði mest fyir Detroit í nótt, eða 31 stig.
Erlendar Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Markvörður City: „Liverpool ekki besti hluti Bretlands“ Enski boltinn Telja sprungur komnar í samband stjórans við stjörnuna Enski boltinn Lætur Bretann heyra það: „Mín virðing fyrir honum er engin“ Formúla 1 Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Ísland í þriðja styrkleikaflokki fyrir undankeppni HM Fótbolti Hugsaði lítið og stressaði sig minna Handbolti Fleiri fréttir Ákvað að yfirgefa KR Íslendingur með sviðsljósið á sér fyrir NBA leik Pavel um endurkomu Borche: „Rétti maðurinn á þessum tímapunkti“ Maté hættir með Hauka Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Jón Axel frábær í sigri toppliðsins „Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir drullað sér út“ Fær meira fyrir hálftíma ræðu en fyrir að spila heilt tímabil Tryggvi frákastahæstur í tapi gegn gömlu félögunum Landsliðsmenn Stjörnunnar skoruðu saman 53 stig í fyrri hálfleik Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Þór Þ. 124-82 | Þórsarar kjöldregnir í Garðabænum Pavel um leikjamet Óla Óla fyrir Grindavík: „Ég reyndi að eyðileggja þetta“ Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti Uppgjörið: ÍR - Valur 84-83 | Dramatískur sigur nýliðanna Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 74-93 | Haukar enn í leit að fyrsta sigrinum Finnskur landsliðsmaður til Keflavíkur Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Botnliðið fær landsliðsmann Aþena lagði Grindavík Haukar voru betri í dag Uppgjörið: Haukar - Keflavík 100-83 | Þægilegur Haukasigur í stórleiknum „Mikilvægasti sigur í sögu íslensks körfubolta“ Aðalkeppinautar Íslands um sæti á EM skoruðu ótrúlega körfu Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 77-67 | Grænar unnið fimm í röð Sjá meira