Matur

Einföld hreindýrasteik

Guðlaugur Þór Þórðarson gefur uppskrift að veislumat.

Góður vöðvi af hreindýrinu. Skorinn niður í ca 1 cm þykkar sneiðar. Kryddað með salti og pipar.

Brúnaðar á pönnu upp úr góðri olíu og settar svo í 180 gráðu heitan ofn í 5-8 mínútur (eftir smekk).

Meðlæti: sellerírótarmauk

1 góð sellerírót afhýdd og skorin í bita 

fjörmjólk 

salt og pipar 

Sellerírótin er sett í pott með mjólkinni (rétt þannig að hún liggi í mjólkinni) og soðin á lágum hita þar til hún er orðin mjúk.

Svo er hún veidd upp úr og maukuð í matvinnsluvél og smökkuð til með salti og pipar. 



Sósa:

laukur

1,5 l villibráðarsoð

rifsberjasulta

1-2 tsk. gráðostaklípa

púrtvínskvetta

salt og pipar

Steikið lauk í potti, hellið soði saman við. Þykkið með smjörbollu. Bragðbætið með rest (þetta er einföld útgáfa af sósu en við hátíðlegri tækifæri má leggja meiri vinnu í sósugerðina, t.d. verða sér úti um alvöru hreindýrasoð og nota ferskar kryddjurtir s.s. rósmarín og timjan og o.s.frv.).

Annað meðlæti gæti verið Waldorf-salat og bakaðar kartöflur.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.