Viðvaranir komnar í gildi og orðið ófært sums staðar Gular veðurviðvaranir tóku gildi á Suðausturlandi og Austurlandi fyrir klukkan átta í morgun vegna norðaustan og norðan hríðar með snjókomu og skafrenningi. Veður versnar á norðanverðu landinu með deginum en þar taka viðvaranir gildi klukkan þrjú. Veður 30.11.2024 08:34
Frost fór víða yfir tuttugu stig í nótt Vindur er nú víðast hvar hægur á landinu og verður bjart með köflum og hörkufrost, en það fór yfir tuttugu stig á nokkrum veðurstöðvum í nótt. Það blæs þó nokkuð við suðausturströndina og þar eru einhverjir úrkomubakkar á sveimi. Veður 29.11.2024 07:10
Kaldri norðlægri átt beint til landsins Hæð yfir Grænlandi og lægð fyrir norðaustan land beina til okkar kaldri norðlægri átt og má víða gera ráð fyrir kalda eða strekkingi í dag og dálitlum éljum. Það verður bjart að mestu um landið suðvestanvert. Veður 28.11.2024 07:11
Áfram kalt á landinu en bjartviðri sunnan heiða Útlit er fyrir norðlæga átt í dag þar sem víða verður stinningsgola en allhvasst á Austfjörðum fyrripart dags. Veður 21.11.2024 07:24
Áfram köld og norðlæg átt Hæð yfir Grænlandi og lægð við vesturströnd Noregs beina áfram til okkar kaldri norðlægri átt, víða átta til fimmtán metra á sekúndu, og éljum. Lengst af verður þurrt og bjart sunnantil á landinu. Veður 19.11.2024 07:09
Heimskautaflofti beint til landsins í sífellu Hæð yfir Grænlandi og víðáttumikil lægð yfir Skandinavíu beina nú í sífellu heimskautalofti úr norðri til landsins. Þessi staða veðrakerfa virðist ætla að verða þrálát og því er líklegt að það verði kalt í veðri hjá okkur alla vikuna. Veður 18.11.2024 07:08
Stinningskaldi og él fram í miðja viku og svo kólni frekar Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs gilda fram eftir morgni á Norðurlandi eystra, Austfjörðum og Austurlandi að Glettingi. Viðvörun vegna hvassviðris eða storms gildir á Suðurausturlandi fram til klukkan 16 í dag. Veður 16.11.2024 08:05
Viðvaranirnar sumar orðnar appelsínugular Veðurstofan hefur gefið út appelsínugular viðvaranir á Norðurlandi estra, Austurlandi og Suðausturlandi vegna norðvestan stórhríðar sem mun skella landið á morgun. Áður var búið að gefa út gular viðvaranir á landinu öllu vegna óveðursins, en gular viðvaranir verða áfram í gildi í öðrum landshlutum. Veður 14.11.2024 11:21
Allhvöss suðvestanátt og hlýtt en illviðri á morgun Veðurstofan gerir ráð fyrir allhvassri eða hvassri suðvestanátt í dag og hlýtt í veðri. Súld eða rigning, en lengst af þurrt um landið norðaustanvert. Veður 14.11.2024 07:17
Suðvestan hvassviðri norðan- og austantil Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan hvassviðri eða stormi á norður- og austurhluta landsins og eru viðvaranir í gildi fram eftir degi á þeim svæðum. Það verður heldur hægari vindur suðvestan- og vestanlands. Veður 13.11.2024 07:07
Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið vegna norðan áhlaups Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir allt landið vegna norðan áhlaups síðar í vikunni. Veður 12.11.2024 10:57
Suðvestan stormur, rigning og gular viðvaranir Veðurstofan spáir suðvestan hvassviðri eða stormi víða með rigningu framan af degi en síðan skúrum en norðaustan- og austanlands verði allhvöss suðvestanátt og bjartviðri. Veður 12.11.2024 07:11
Rosalegur hiti á Akureyri seint um kvöld í nóvember Rétt eftir klukkan ellefu í kvöld mældist hitinn á Akureyri í 22,3 gráðum og það um miðjan nóvember. Klukkan tíu var talan 21,4 gráður, og klukkutíma áður einni gráðu lægri. Veður 11.11.2024 23:24
Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á norðvesturhluta landsins vegna sunnan hvassviðris eða storms. Veður 11.11.2024 10:03
Allt að tuttugu stiga hiti Hiti gæti náð allt að tuttugu stigum á norðaustanverðu landinu síðdegis í dag. Enn ein lægðin gengur yfir landið úr suðri með ofgnótt af hlýju og röku lofti. Veður 11.11.2024 07:00
Næsta lægð væntanleg á morgun Í dag er spáð suðaustan 5 til 13 metrum á sekúndu og rigningu, en úrkomulítið verður um landið norðaustanvert. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast norðanlands. Vestan og suðvestan 10 til 18 metrar á sekúndu kringum hádegi, skúrir og heldur kólnandi, en lengst af þurrt norðaustantil. Hægari suðvestanátt í nótt. Veður 10.11.2024 08:10
Víðast hvar rólegt en viðvörun á Vesturlandi Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun vegna sunnan storms á norðanverðu Snæfellsnesi. Viðvörunin gildir til klukkan 11. Veður 9.11.2024 09:13
Bætir smám saman í vind Dálítill hæðarhryggur er nú yfir landinu og eru vindar því hægir og úrkoma lítil. Suður og suðaustur af Hvarfi er þó alldjúpt lægðasvæði, sem nálgast og bætir því smám saman í vind. Veður 8.11.2024 07:14
Á enn eftir að hvessa meira á Norðausturlandi Gular og appelsínugular viðvaranir Veðurstofunnar renna út á næstu klukkutímunum. Veðurfræðingur á vakt segir að þó stutt sé í að veðrið gangi niður geti það enn valdið vandræðum síðustu klukkutímana á til dæmis Norðausturlandi. Veður 7.11.2024 22:00
Ofsaveður í kortunum norðvestantil og viðvaranir í gildi Veðurfræðingar vara við enn verra veðri í dag heldur en gert var ráð fyrir í fyrstu spám í gær. Kröpp og dýpkandi lægð, skammt suðvestur af Reykjanesi, hreyfist norður á bóginn og gengur þá á með hvassri sunnanátt eða stormi, rigningu og hlýindum, en þurrt að kalla á Norður - og Austurlandi. Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi um mestallt land. Veður 7.11.2024 07:18
Varað við ofsaveðri á Vestfjörðum og Norðurlandi Veðurfræðingur Vegagerðarinnar hefur varað við enn verra veðri á morgun, heldur en gert var ráð fyrir í spá dagsins. Á norðanverðum Vestfjörðum má búast við ofsaveðri eða fárviðri og hviðum um og yfir 50 m/s. Veður 6.11.2024 23:30
Lægir en næsta lægð nálgast úr suðri Það er suðvestanátt á landinu, hvasst norðantil fram eftir morgni en lægir síðan. Næsta lægð nálgast úr suðri í kvöld með vaxandi austanátt og rigningu, fyrst sunnanlands. Veður 6.11.2024 06:50
Ekki lægri meðalhiti frá árinu 1997 Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir meðalhita á landinu ekki hafa verið minni frá árinu 1997. Það verði líklega hlýtt fram á miðjan mánuð en þá gæti veðrið breyst. Meðalhiti síðustu 12 mánaða er 4,4°C í Reykjavík. Veður 5.11.2024 08:39
Víða hvasst og gul viðvörun vegna vinds á Snæfellsnesi Veðurstofan gerir ráð fyrir hlýrri sunnanátt á landinu í dag þar sem verði fremur hvasst og rigning eða súld en að mestu þurrt á Norður- og Norðausturlandi. Veður 5.11.2024 07:02