Erlent Saka Rússa um að myrða særða stríðsfanga í Avdívka Rússneskir hermenn hafa verið sakaðir um að taka særða úkraínska hermenn af lífi í borginni Avdívka í austurhluta Úkraínu. Mennirnir voru skildir eftir þegar úkraínski herinn yfirgaf borgina en forsvarsmenn hersins segja að samið hafi verið við Rússa um að hlúa að mönnunum, þar sem ekki var hægt að flytja þá á brott vegna meiðsla þeirra. Erlent 20.2.2024 17:02 Tveir nýir strengir tryggi öryggi í Vestmannaeyjum Leggja á tvo nýja rafstrengi, Vestmannaeyjastrengi 4 og 5, til Vestmannaeyja. Í tilkynningu frá Landsnet segir að viðskiptalegar forsendur séu fyrir lagningu beggja strengjanna samtímis og mikill vilji og áhugi iðnaðar í Vestmannaeyjum til að vaxa og stuðla að orkuskiptum. Erlent 20.2.2024 15:12 Heiðraði fangelsismálastjóra Rússlands Vladimír Pútín, forseti Rússlands, heiðraði í gær Valerí Bojarínev, fangelsismálastjóra Rússlands, með því að hækka hann í tign. Bojarínev er nú undirherforingi en Pútín skrifaði undir stöðuhækkunina þann 19. febrúar, þremur dögum eftir að Alexei Navalní dó í fanganýlendu í Síberíu. Erlent 20.2.2024 14:13 Rússneskur „svikari“ myrtur á Spáni Rússneskur flugmaður sem lenti herþyrlu sinni í Úkraínu og gafst upp fyrir úkraínskum hermönnum, var myrtur á Spáni í síðustu viku. Maxim Kusmínóv var skotinn að minnsta kosti sex sinnum og síðan var ekið yfir hann. Erlent 20.2.2024 12:34 Ögurstund í máli Julian Assange Hæstiréttur í Lundúnum tekur fyrir í dag og á morgun síðustu áfrýjun Julian Assange, eins stofnanda Wikileaks, um framsal til Bandaríkjanna. Þar á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann fundinn sekur um brot á njósnalagalöggjöf landsins. Erlent 20.2.2024 11:46 Mannskæðar skotárásir í Bandaríkjunum Þó nokkrar mannskæðar skotárásir hafa átt sér stað víðsvegar um Bandaríkin á undanförnum dögum. Að minnsta kosti þrír lögregluþjónar og einn sjúkraflutningamaður hafa verið skotnir til bana í tveimur mismunandi atvikum, auk þess sem ein kona lét lífið og fimm særðust eftir að rifrildi á Waffle House veitingastað varð að skotbardaga. Erlent 20.2.2024 11:41 Dani hafi grætt milljónir á streymissvindli Réttað verður yfir 53 ára gömlum dönskum karlmanni í Árósum í dag en honum er gefið að sök að hafa stolið 689 lögum eða hluta úr lögum og dreift þeim undir eigin nafni á streymisveitum líkt og Spotify og Apple Music. Erlent 20.2.2024 09:04 Hæstiréttur Alabama skilgreinir frosna fósturvísa sem manneskjur Hæstiréttur Alabama í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu á föstudag að frosnir fósturvísar væru börn og að sækja mætti fólk til saka fyrir að eyðileggja þá. Erlent 20.2.2024 09:03 Greiddi ekki flug og gistingu eiginkonu sinnar Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar láðist að greiða fyrir ferðalag eiginkonu sinnar Birgittu Kristersson í júlí í fyrra þegar hún ferðaðist með honum til Bandaríkjanna og síðar til Finnlands. Það var ekki gert fyrr en sænskir miðlar spurðust fyrir um málið. Erlent 20.2.2024 08:04 Læknar mótmæla fjölgun lækna þrátt fyrir læknaskort Aðgerðum hefur verið frestar og sjúkrahús hafa neyðst til að vísa sjúklingum annað eftir að 6.500 unglæknar sögðu upp störfum á heilbrigðisstofnunum í Suður-Kóreu. Af þeim mættu 1.600 ekki til vinnu í gær. Erlent 20.2.2024 07:47 Leki kominn að flutningaskipi í Adenflóa Erlent 20.2.2024 07:35 Hvíta húsið reiðubúið til að sjá Úkraínu fyrir langdrægum vopnum Joe Biden Bandaríkjaforseti er sagður reiðubúinn til að senda Úkraínumönnum langdrægar eldflaugar ef þingið samþykkir aukna fjárhagsaðstoð til handa Úkraínu. Erlent 20.2.2024 07:16 Trump minnist á Navalní, en ekki Pútín Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti hefur tjáð sig um dauða Alexei Navalní, sem lengi var höfuðandstæðingur Vladímír Pútíns Rússlandsforseta, án þess reyndar að minnast á Pútín. Erlent 19.2.2024 21:47 Bandaríkjamenn leggja til að öryggisráðið krefjist vopnahlés Fulltrúar Bandaríkjanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hafa samið tillögu að ályktun öryggisráðsins þar sem stuðningi við tímabundið vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs er lýst yfir. Erlent 19.2.2024 18:50 Heitir því að halda áfram að berjast fyrir frjálsu Rússlandi „Ég vil lifa í frjálsu Rússlandi, ég vil byggja upp frjálst Rússland,“ segir Yulia Navalnaya, ekkja andófsmannsins Alexei Navalní, í myndskeiði þar sem hún heitir því að halda áfram baráttu eiginmanns síns. Erlent 19.2.2024 12:12 Lincoln bestur, Biden í fjórtánda sæti en Trump alverstur Samkvæmt sagnfræðingum í Bandaríkjunum er Joe Biden fjórtándi besti Bandaríkjaforseti sögunnar, á meðan Donald Trump er sá alversti. Mesta afrek Biden var að koma Trump frá völdum, segja prófessorarnir sem stóðu fyrir könnuninni. Erlent 19.2.2024 11:09 Tugþúsundir mótmæltu aðför forsetans að frjálsum kosningum Tugir þúsunda mótmæltu á Zocalo-torgi í Mexíkóborg um helgina, tilraunum forsetans Andrés Manuel López Obrador til að grafa undan og veikja El Instituto Nacional Electoral. Erlent 19.2.2024 09:06 Með hústökumann í íbúðinni á Kanarí Sænsk fjölskylda er ráðþrota eftir að maður braust inn í íbúð í þeirra eigu á Kanaríeyjunum síðastliðinn nóvember og gerðist þar hústökumaður. Fjölskyldan bíður úrskurðar spænskra dómstóla en maðurinn hefur meðal annars leigt íbúð þeirra út til annarra á Airbnb í millitíðinni. Erlent 19.2.2024 08:22 Sendiherrar Bandaríkjanna og Bretlands minnast Navalní Sendiherrar Bandaríkjanna og Bretlands í Rússlandi lögðu báðir blóm að minnisvarða um andófsmanninn Alexei Navalní nú um helgina. Talið er að um 400 manns hafi verið handteknir á fjöldafundum í kjölfar dauða Navalní í síðustu viku. Erlent 19.2.2024 08:15 Danskur gullhringur sagður hafa verið í eigu konungborinna Danskir fornleifafræðingar hafa fundið danskan gullhring á suðurhluta Jótlands sem talinn er vera frá fimmtu til sjöttu öld. Hann er talinn hafa verið í eigu konungborinnar fjölskyldu sem er þá talin hafa ráðið lögum og lofum á svæðinu á þessum tíma. Erlent 19.2.2024 07:55 Sextíu og fjögur skotin til bana í umsátri Að minnsta kosti 64 létu lífið í umsátri sem gert var í fjallahéraði í Papúa Nýju-Gíneu um helgina. Erlent 19.2.2024 07:21 Kona grunuð um morð eftir að þrjú börn fundust látin í Bristol Fjörutíu og tveggja ára gömul kona hefur verið handtekin grunuð um morð eftir að þrjú börn fundust látin á heimili í Bristol á Englandi. Erlent 19.2.2024 07:16 Hóta innrás í Rafah fyrir Ramadan ef gíslarnir verða ekki látnir lausir Benny Gantz, sem er fyrrverandi yfirmaður hjá hernum og situr nú í herráði Ísrael, segir Ísraelsmenn munu láta til skarar skríða í Rafah fyrir Ramadan ef Hamas láta ekki þá gísla sem enn eru í haldi samtakanna lausa. Erlent 19.2.2024 06:48 Rússar náðu yfirráðum í lofti yfir Avdívka Útlit er fyrir að hersveitum Rússa hafi tekist að ná yfirráðum í háloftunum yfir borginni Avdívka í austurhluta Úkraínu. Er það líklega í fyrsta sinn sem slíkt gerist frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Erlent 18.2.2024 17:05 Sagði marbletti benda til að Navalní hefði verið haldið niðri Marblettir sem sagðir eru vera á líki Alexei Navalní benda til þess að hann hafi fengið einhvers konar flog þegar hann lést í fangelsi í norðarnverðri Síberíu á dögunum. Líkið var ekki flutt á þann stað sem lík fanga í fanganýlendunni IK-3 eru send. Erlent 18.2.2024 14:32 Mætti með afskorna hendi á sænska endurvinnslustöð Lögregla var kölluð til þegar glerkrukka sem skilin var eftir á endurvinnslustöð í borginni Skellefteå í Norður-Svíþjóð virtist innihalda mannshendi. Erlent 18.2.2024 11:58 Ætlar ekki að hætta við innrás í Rafah Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir ekki koma til greina að hætta við innrás í borgina Rafah í suðurhluta Gasastrandarinnar. Rúm milljón Palestínumanna hefur flúið þangað undan átökum Ísraela og Hamas-liða sem hafa valdið gífurlegum skaða á svæðinu lokaða. Erlent 18.2.2024 11:19 Santos vill hundrað milljónir frá Kimmel George Santos, fyrrverandi þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur höfðað mál gegn þáttastjórnandanum Jimmy Kimmel, ABC og Disney. Er það vegna þess að Kimmel gabbaði Santos til að taka upp myndband sem notað var til að gera grín að hinum smánaða fyrrverandi þingmanni. Erlent 18.2.2024 10:07 Stígur á bremsuna í málefnum innflytjenda Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, ætlar að draga úr fjölda innflytjenda sem fá að setjast að í Kanada. Trudeau hefur lengi hyllt innflytjendur sem flytja til Kanada en umfangsmiklar breytingar hafa orðið á viðhorfi almennings í Kanada varðandi málaflokkinn, samhliða skorti á húsnæði og auknu álagi á heilbrigðiskerfi landsins. Erlent 17.2.2024 17:05 Avdívka alfarið í höndum Rússa Oleksandr Sirskí, nýr yfirmaður herafla Úkraínu, tilkynnti í gærkvöldi að hann hefði skipað úkraínskum hermönnum að hörfa alfarið frá borginni Avdívka og koma ætti upp nýjum og betri varnarlínum vestur af borginni. Erlent 17.2.2024 16:00 « ‹ 72 73 74 75 76 77 78 79 80 … 334 ›
Saka Rússa um að myrða særða stríðsfanga í Avdívka Rússneskir hermenn hafa verið sakaðir um að taka særða úkraínska hermenn af lífi í borginni Avdívka í austurhluta Úkraínu. Mennirnir voru skildir eftir þegar úkraínski herinn yfirgaf borgina en forsvarsmenn hersins segja að samið hafi verið við Rússa um að hlúa að mönnunum, þar sem ekki var hægt að flytja þá á brott vegna meiðsla þeirra. Erlent 20.2.2024 17:02
Tveir nýir strengir tryggi öryggi í Vestmannaeyjum Leggja á tvo nýja rafstrengi, Vestmannaeyjastrengi 4 og 5, til Vestmannaeyja. Í tilkynningu frá Landsnet segir að viðskiptalegar forsendur séu fyrir lagningu beggja strengjanna samtímis og mikill vilji og áhugi iðnaðar í Vestmannaeyjum til að vaxa og stuðla að orkuskiptum. Erlent 20.2.2024 15:12
Heiðraði fangelsismálastjóra Rússlands Vladimír Pútín, forseti Rússlands, heiðraði í gær Valerí Bojarínev, fangelsismálastjóra Rússlands, með því að hækka hann í tign. Bojarínev er nú undirherforingi en Pútín skrifaði undir stöðuhækkunina þann 19. febrúar, þremur dögum eftir að Alexei Navalní dó í fanganýlendu í Síberíu. Erlent 20.2.2024 14:13
Rússneskur „svikari“ myrtur á Spáni Rússneskur flugmaður sem lenti herþyrlu sinni í Úkraínu og gafst upp fyrir úkraínskum hermönnum, var myrtur á Spáni í síðustu viku. Maxim Kusmínóv var skotinn að minnsta kosti sex sinnum og síðan var ekið yfir hann. Erlent 20.2.2024 12:34
Ögurstund í máli Julian Assange Hæstiréttur í Lundúnum tekur fyrir í dag og á morgun síðustu áfrýjun Julian Assange, eins stofnanda Wikileaks, um framsal til Bandaríkjanna. Þar á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann fundinn sekur um brot á njósnalagalöggjöf landsins. Erlent 20.2.2024 11:46
Mannskæðar skotárásir í Bandaríkjunum Þó nokkrar mannskæðar skotárásir hafa átt sér stað víðsvegar um Bandaríkin á undanförnum dögum. Að minnsta kosti þrír lögregluþjónar og einn sjúkraflutningamaður hafa verið skotnir til bana í tveimur mismunandi atvikum, auk þess sem ein kona lét lífið og fimm særðust eftir að rifrildi á Waffle House veitingastað varð að skotbardaga. Erlent 20.2.2024 11:41
Dani hafi grætt milljónir á streymissvindli Réttað verður yfir 53 ára gömlum dönskum karlmanni í Árósum í dag en honum er gefið að sök að hafa stolið 689 lögum eða hluta úr lögum og dreift þeim undir eigin nafni á streymisveitum líkt og Spotify og Apple Music. Erlent 20.2.2024 09:04
Hæstiréttur Alabama skilgreinir frosna fósturvísa sem manneskjur Hæstiréttur Alabama í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu á föstudag að frosnir fósturvísar væru börn og að sækja mætti fólk til saka fyrir að eyðileggja þá. Erlent 20.2.2024 09:03
Greiddi ekki flug og gistingu eiginkonu sinnar Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar láðist að greiða fyrir ferðalag eiginkonu sinnar Birgittu Kristersson í júlí í fyrra þegar hún ferðaðist með honum til Bandaríkjanna og síðar til Finnlands. Það var ekki gert fyrr en sænskir miðlar spurðust fyrir um málið. Erlent 20.2.2024 08:04
Læknar mótmæla fjölgun lækna þrátt fyrir læknaskort Aðgerðum hefur verið frestar og sjúkrahús hafa neyðst til að vísa sjúklingum annað eftir að 6.500 unglæknar sögðu upp störfum á heilbrigðisstofnunum í Suður-Kóreu. Af þeim mættu 1.600 ekki til vinnu í gær. Erlent 20.2.2024 07:47
Hvíta húsið reiðubúið til að sjá Úkraínu fyrir langdrægum vopnum Joe Biden Bandaríkjaforseti er sagður reiðubúinn til að senda Úkraínumönnum langdrægar eldflaugar ef þingið samþykkir aukna fjárhagsaðstoð til handa Úkraínu. Erlent 20.2.2024 07:16
Trump minnist á Navalní, en ekki Pútín Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti hefur tjáð sig um dauða Alexei Navalní, sem lengi var höfuðandstæðingur Vladímír Pútíns Rússlandsforseta, án þess reyndar að minnast á Pútín. Erlent 19.2.2024 21:47
Bandaríkjamenn leggja til að öryggisráðið krefjist vopnahlés Fulltrúar Bandaríkjanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hafa samið tillögu að ályktun öryggisráðsins þar sem stuðningi við tímabundið vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs er lýst yfir. Erlent 19.2.2024 18:50
Heitir því að halda áfram að berjast fyrir frjálsu Rússlandi „Ég vil lifa í frjálsu Rússlandi, ég vil byggja upp frjálst Rússland,“ segir Yulia Navalnaya, ekkja andófsmannsins Alexei Navalní, í myndskeiði þar sem hún heitir því að halda áfram baráttu eiginmanns síns. Erlent 19.2.2024 12:12
Lincoln bestur, Biden í fjórtánda sæti en Trump alverstur Samkvæmt sagnfræðingum í Bandaríkjunum er Joe Biden fjórtándi besti Bandaríkjaforseti sögunnar, á meðan Donald Trump er sá alversti. Mesta afrek Biden var að koma Trump frá völdum, segja prófessorarnir sem stóðu fyrir könnuninni. Erlent 19.2.2024 11:09
Tugþúsundir mótmæltu aðför forsetans að frjálsum kosningum Tugir þúsunda mótmæltu á Zocalo-torgi í Mexíkóborg um helgina, tilraunum forsetans Andrés Manuel López Obrador til að grafa undan og veikja El Instituto Nacional Electoral. Erlent 19.2.2024 09:06
Með hústökumann í íbúðinni á Kanarí Sænsk fjölskylda er ráðþrota eftir að maður braust inn í íbúð í þeirra eigu á Kanaríeyjunum síðastliðinn nóvember og gerðist þar hústökumaður. Fjölskyldan bíður úrskurðar spænskra dómstóla en maðurinn hefur meðal annars leigt íbúð þeirra út til annarra á Airbnb í millitíðinni. Erlent 19.2.2024 08:22
Sendiherrar Bandaríkjanna og Bretlands minnast Navalní Sendiherrar Bandaríkjanna og Bretlands í Rússlandi lögðu báðir blóm að minnisvarða um andófsmanninn Alexei Navalní nú um helgina. Talið er að um 400 manns hafi verið handteknir á fjöldafundum í kjölfar dauða Navalní í síðustu viku. Erlent 19.2.2024 08:15
Danskur gullhringur sagður hafa verið í eigu konungborinna Danskir fornleifafræðingar hafa fundið danskan gullhring á suðurhluta Jótlands sem talinn er vera frá fimmtu til sjöttu öld. Hann er talinn hafa verið í eigu konungborinnar fjölskyldu sem er þá talin hafa ráðið lögum og lofum á svæðinu á þessum tíma. Erlent 19.2.2024 07:55
Sextíu og fjögur skotin til bana í umsátri Að minnsta kosti 64 létu lífið í umsátri sem gert var í fjallahéraði í Papúa Nýju-Gíneu um helgina. Erlent 19.2.2024 07:21
Kona grunuð um morð eftir að þrjú börn fundust látin í Bristol Fjörutíu og tveggja ára gömul kona hefur verið handtekin grunuð um morð eftir að þrjú börn fundust látin á heimili í Bristol á Englandi. Erlent 19.2.2024 07:16
Hóta innrás í Rafah fyrir Ramadan ef gíslarnir verða ekki látnir lausir Benny Gantz, sem er fyrrverandi yfirmaður hjá hernum og situr nú í herráði Ísrael, segir Ísraelsmenn munu láta til skarar skríða í Rafah fyrir Ramadan ef Hamas láta ekki þá gísla sem enn eru í haldi samtakanna lausa. Erlent 19.2.2024 06:48
Rússar náðu yfirráðum í lofti yfir Avdívka Útlit er fyrir að hersveitum Rússa hafi tekist að ná yfirráðum í háloftunum yfir borginni Avdívka í austurhluta Úkraínu. Er það líklega í fyrsta sinn sem slíkt gerist frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Erlent 18.2.2024 17:05
Sagði marbletti benda til að Navalní hefði verið haldið niðri Marblettir sem sagðir eru vera á líki Alexei Navalní benda til þess að hann hafi fengið einhvers konar flog þegar hann lést í fangelsi í norðarnverðri Síberíu á dögunum. Líkið var ekki flutt á þann stað sem lík fanga í fanganýlendunni IK-3 eru send. Erlent 18.2.2024 14:32
Mætti með afskorna hendi á sænska endurvinnslustöð Lögregla var kölluð til þegar glerkrukka sem skilin var eftir á endurvinnslustöð í borginni Skellefteå í Norður-Svíþjóð virtist innihalda mannshendi. Erlent 18.2.2024 11:58
Ætlar ekki að hætta við innrás í Rafah Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir ekki koma til greina að hætta við innrás í borgina Rafah í suðurhluta Gasastrandarinnar. Rúm milljón Palestínumanna hefur flúið þangað undan átökum Ísraela og Hamas-liða sem hafa valdið gífurlegum skaða á svæðinu lokaða. Erlent 18.2.2024 11:19
Santos vill hundrað milljónir frá Kimmel George Santos, fyrrverandi þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur höfðað mál gegn þáttastjórnandanum Jimmy Kimmel, ABC og Disney. Er það vegna þess að Kimmel gabbaði Santos til að taka upp myndband sem notað var til að gera grín að hinum smánaða fyrrverandi þingmanni. Erlent 18.2.2024 10:07
Stígur á bremsuna í málefnum innflytjenda Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, ætlar að draga úr fjölda innflytjenda sem fá að setjast að í Kanada. Trudeau hefur lengi hyllt innflytjendur sem flytja til Kanada en umfangsmiklar breytingar hafa orðið á viðhorfi almennings í Kanada varðandi málaflokkinn, samhliða skorti á húsnæði og auknu álagi á heilbrigðiskerfi landsins. Erlent 17.2.2024 17:05
Avdívka alfarið í höndum Rússa Oleksandr Sirskí, nýr yfirmaður herafla Úkraínu, tilkynnti í gærkvöldi að hann hefði skipað úkraínskum hermönnum að hörfa alfarið frá borginni Avdívka og koma ætti upp nýjum og betri varnarlínum vestur af borginni. Erlent 17.2.2024 16:00