Erlent Blaðamenn á Gasa grunaðir um að hafa vitað af árásunum Samskiptaráðherra Ísrael hefur sakað blaðamenn á Gasa sem vinna í verktakavinnu fyrir erlenda miðla um að hafa haft vitneskju um árásir Hamas-liða 7. október síðastliðinn, áður en þeir létu til skarar skríða. Erlent 10.11.2023 08:40 Netanyahu segir Ísraela hvorki vilja sigra, hernema né stjórna Gasa Benjamin Netanyahu segir Ísrael ekki hafa í hyggju að sigra, hernema né stjórna Gasa eftir að stríðinu við Hamas lýkur. Hins vegar þurfi að tryggja að hægt sé að senda „trúverðugt afl“ inn á svæðið ef nauðsyn krefur, til að hindra uppgang hryðjuverkasamtaka. Erlent 10.11.2023 06:54 Áfram árásir á Bandaríkjamenn í Írak og Sýrlandi Minnst þrjár árásir voru gerðar á bandaríska hermenn í Írak í dag og minnst ein í Sýrlandi í gærkvöldi. Enginn er sagður hafa fallið í þessum árásum. Bandaríkjamenn vörpuðu í gær sprengjum á vopnageymslu byltingarvarða Íran í Sýrlandi í gær og var það gert vegna fjölda árásá vígahópa sem Íranar styðja á bandaríska hermenn í Írak og Sýrlandi. Erlent 9.11.2023 23:38 Jill Stein gerir aðra atlögu að Hvíta húsinu Jill Stein tilkynnti í kvöld að hún ætlaði aftur að bjóða sig fram til embættis forseta Bandaríkjanna og aftur fyrir Græningja. Hún bauð sig einnig fram árið 2016 og hefur verið sökuð um það að hafa kostað Demókrata Hvíta húsið og tryggt Donald Trump embættið. Erlent 9.11.2023 22:05 Segja Ísraela hafa samþykkt tímabundin hlé Ríkisstjórn Ísrael hefur samþykkt að hætta árásum á Gasaströndina í fjórar klukkustundir á degi hverjum. Með þessu er vonast til þess að fleiri óbreyttir borgarar geti flúið frá norðurhluta Gasa, þar sem barist er á götum Gasaborgar og annarra byggða. Erlent 9.11.2023 20:01 Forsætisráðherra Palestínu biðlar til alþjóðasamfélagsins að stilla til friðar Forsætisráðherra Palestínu biðlaði til alþjóðasamfélagsins í dag að þrýsta á endalok stríðsátaka á Gaza og spurði hversu margir þyrftu að deyja og hvað eyðileggingin þyrfti að verða mikil áður nóg væri komið. Alþingi samþykkti ályktun utanríkismálanefndar um átökin á Gaza í dag með öllum greiddum atkvæðum. Erlent 9.11.2023 19:21 Samkomulag í höfn við katalónska aðskilnaðarsinna Þingmaður spænskra sósíalista, Santos Cerdan, tilkynnti í dag að samkomulag hefði nást milli Spænska sósíalíska verkamannaflokksins og flokks katalónskra aðskilnaðarsinna Junts um að veita Junts-liðum sakaruppgjöf fyrir ólögmæta sjálfstæðisyfirlýsingu sína árið 2017. Þetta gerir sósíalistaflokki Pedro Sanchez, sitjandi forsætisráðherra, líklega kleift að mynda nýja ríkisstjórn. Erlent 9.11.2023 16:18 Spænskur stjórnmálamaður af hægri vængnum skotinn í andlitið Spænski stjórnmálamaðurinn Alejo Vidal-Quadras, sem átti um árabil sæti á Evrópuþinginu og er einn af upphafsmönnum hægriöfgaflokksins Vox, var skotinn í andlitið á götu úti í höfuðborginni Madríd fyrr í dag. Erlent 9.11.2023 14:22 Skora á íslensk stjórnvöld að bregðast við krísunni á Gasa Íslenskir læknar og hjúkrunarfræðingar hafa sent íslenskum stjórnvöldum sitthvort opinbera bréfið vegna ástandsins á Gasa. Undirrituð krefjast þess að íslensk stjórnvöld bregðist við atburðunum og krefjist þar vopnahlés og þrýsti á Ísrael um að stöðva árásir. Erlent 9.11.2023 13:47 Heimsins nýjasta eyja lítur dagsins ljós Heimsins nýjasta eyja reis úr sæ við strendur japönsku eyjarinnar Iwo Jima í Kyrrahafinu í síðustu viku. Veðurstofa Japans sagði í viðtali við CNN að enn nafnlausa eyjan hafi myndast í neðansjávargosi. Erlent 9.11.2023 10:40 Tekur við formennsku Venstre Troels Lund Poulsen tekur við formennsku Venstre-flokksins í Danmörku af Jakob Ellemann-Jensen. Það bauð sig enginn annar fram og því var hann sjálfkjörinn. Erlent 9.11.2023 09:11 Sextán leiðtogar Gambino-fjölskyldunnar handteknir Lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum og á Ítalíu hafa handtekið sextán meinta leiðtoga Gambino-glæpafjölskyldunnar og samstarfsmenn þeirra. Einstaklingarnir eru grunaðir um svik, fjárkúganir og afskipti af vitnum, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 9.11.2023 08:26 Næstverðmætasta verk Picasso selt á uppboði hjá Sotheby's „Femme a la Montre“ eða „Kona með úr“, listaverk eftir Pablo Picasso frá 1932, seldist á uppboði á dögunum á 139 milljónir dollara. Það jafngildir tæplega 20 milljörðum íslenskra króna. Erlent 9.11.2023 07:08 Leggja lokadrög að samkomulagi um mannúðarhlé gegn lausn gísla Viðræður standa yfir um þriggja daga mannúðarhlé á árásum Ísraelshers á Gasa gegn því að Hamas sleppi um tug gísla sem samtökin hafa í haldi. Frá þessu greinir Associated Press og hefur eftir fjórum ónafngreindum heimildarmönnum. Erlent 9.11.2023 06:52 Laut í lægra haldi eftir kynlífsskandal Frambjóðandi Demókrataflokksins laut í lægra haldi í kosningum til fulltrúaþings Virginíuríkis sem fram fóru í gær, en þó með litlum atkvæðamun. Málið vekur sérstaka athygli vegna þess að kynlífsmyndbönd af frambjóðandanum og eiginmanni hennar hafa gengið manna á milli. Erlent 8.11.2023 23:46 Vörpuðu sprengjum á byltingarverði í Sýrlandi Bandaríkjamenn gerðu í kvöld loftárásir í austurhluta Sýrlands, sem sagðar eru hafa beinst gegn byltingarvörðum Írans og vígahópum sem Íran styður. Þá var bandarískur dróni skotinn niður af Hútum yfir Rauðahafinu. Erlent 8.11.2023 23:09 Létu ekki brenna líkin sem hrönnuðust upp Eigandi útfararstofu í Colorado í Bandaríkjunum og eiginkona hans voru handtekinn í dag en minnst 189 lík fundust nýverið í húsnæði þeirra. Líkamsleifarnar eru sagðar í misslæmu ásigkomulagi en þær fundust þann 4. október þegar fólk kvartaði undan lykt. Erlent 8.11.2023 19:20 Ísraelskur fáni í Ráðhúsi Kaupmannahafnar umdeildur Fólki sem átti leið hjá ráðhúsi Kaupmannahafnar í morgun sagðist hafa brugðið við að sjá ísraelskan fána hanga í glugga ráðhússins sem vísar út á H.C Andersensbreiðgötuna, eina mest förnu götu Kaupmannahafnar. Erlent 8.11.2023 12:07 Íbúar Ohio samþykkja að festa réttinn til þungunarrofs í stjórnarskrá Gengið var til kosninga víða í Bandaríkjunum í gær, þar sem kosið var um ríkisstjóra, hæstaréttardómara og ýmsar tillögur. Í Ohio bar til tíðinda, þar sem 56,6 prósent íbúa kusu að festa réttinn til þungunarrofs í stjórnarskrá ríkisins. Erlent 8.11.2023 12:00 G7-ríkin kalla eftir mannúðarhléi en Blinken útilokar vopnahlé Utanríkisráðherrar G7-ríkjanna hafa sameinast um yfirlýsingu þar sem kallað er eftir mannúðarhléi á átökum milli Ísraela og Hamas til að greiða fyrir neyðaraðstoð til íbúa. Erlent 8.11.2023 10:58 Rússar gefa út handtökuskipun á hendur íslenskum ríkisborgara Yfirvöld í Rússlandi hafa gefið út handtökuskipun á hendur Liudmilu „Lucy“ Shtein, 27 ára meðlimi hljómsveitarinnar og aðgerðahópsins Pussy Riot. Erlent 8.11.2023 08:53 Nær öruggt að árið í ár verði það heitasta í sögunni Fátt virðist nú koma í veg fyrir að árið 2023 verði það heitasta í sögunni eða frá upphafi mælinga í það minnsta. Erlent 8.11.2023 08:44 Johnson vildi láta sprauta sig með Covid-19 í beinni Boris Johnson, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, vildi láta sprauta sig með Covid-19 í beinni útsendingu í sjónvarpi í árdaga heimsfaraldurs kórónuveiru. Erlent 8.11.2023 08:33 Þingkona í Bandaríkjunum ávítt fyrir meintan stuðning við hryðjuverk Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti í gær að ávíta þingkonuna Rashidu Tlaib, Demókrata frá Michigan, fyrir meinta vörn hennar á hryðjuverkum Hamas og stuðning hennar við slagorðin „Frá á til sjávar!“. Erlent 8.11.2023 08:01 Óttast flóðbylgju barnaníðsefnis sköpuðu með aðstoð gervigreindar Móðir stúlku hvers mynd var notuð til að búa til barnaklám með aðstoð gervigreindar segist hafa heyrt frá mörg hundruð foreldrum sem segja börn sín einnig meðal fórnarlamba hinnar nýju tækni. Erlent 8.11.2023 07:07 Biden ekki sammála Netanyahu um yfirtöku Ísraelsmanna á Gasa Joe Biden Bandaríkjaforseti styður ekki yfirtöku Ísraelsmanna á Gasa, eins og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur gefið til kynna að muni gerast að átökum loknum. Erlent 8.11.2023 06:43 Dó þegar afmælisgjöfin sprakk Aðstoðarmaður yfirmanns herafla Úkraínu dó í gær þegar handsprengja sem hann fékk í afmælisgjöf sprakk. Þrettán ára sonur mannsins, sem hét Gennadiy Chastyakov og var majór, særðist alvarlega en fyrst var talið að um banatilræði hefði verið að ræða. Erlent 7.11.2023 23:41 Segja hermenn berjast í „hjarta Gasaborgar“ Ísraelskir hermenn eru sagðir komnir langt inn í Gasaborg. Mikill fjöldi óbreyttra borgara hefur flúið borgina í dag og farið til suðurhluta Gasastrandarinnar. Erlent 7.11.2023 22:30 Segir engan hafa staðið í vegi rannsóknar á Hunter Biden David Weiss, sérstakur saksóknari dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, sem haft hefur Hunter Biden, son Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, til rannsóknar, segir embættismenn ekki hafa staðið í vegi sér. Hann sagðist hafa fullt yfirráð yfir rannsókninni og enginn hefði reynt að grípa fram fyrir hendurnar á sér. Erlent 7.11.2023 22:08 Forsætisráðherra Portúgals segir af sér vegna spillingarmáls Antonio Costa, forsætisráðherra Portúgals, hefur sagt af sér vegna spillingarmáls sem upp er komið í landinu. Lögregla í Portúgal handtók í morgun starfsmannastjóra forsetans, Vitor Escaria, og fjóra til viðbótar vegna gruns um spillingu. Erlent 7.11.2023 14:41 « ‹ 98 99 100 101 102 103 104 105 106 … 334 ›
Blaðamenn á Gasa grunaðir um að hafa vitað af árásunum Samskiptaráðherra Ísrael hefur sakað blaðamenn á Gasa sem vinna í verktakavinnu fyrir erlenda miðla um að hafa haft vitneskju um árásir Hamas-liða 7. október síðastliðinn, áður en þeir létu til skarar skríða. Erlent 10.11.2023 08:40
Netanyahu segir Ísraela hvorki vilja sigra, hernema né stjórna Gasa Benjamin Netanyahu segir Ísrael ekki hafa í hyggju að sigra, hernema né stjórna Gasa eftir að stríðinu við Hamas lýkur. Hins vegar þurfi að tryggja að hægt sé að senda „trúverðugt afl“ inn á svæðið ef nauðsyn krefur, til að hindra uppgang hryðjuverkasamtaka. Erlent 10.11.2023 06:54
Áfram árásir á Bandaríkjamenn í Írak og Sýrlandi Minnst þrjár árásir voru gerðar á bandaríska hermenn í Írak í dag og minnst ein í Sýrlandi í gærkvöldi. Enginn er sagður hafa fallið í þessum árásum. Bandaríkjamenn vörpuðu í gær sprengjum á vopnageymslu byltingarvarða Íran í Sýrlandi í gær og var það gert vegna fjölda árásá vígahópa sem Íranar styðja á bandaríska hermenn í Írak og Sýrlandi. Erlent 9.11.2023 23:38
Jill Stein gerir aðra atlögu að Hvíta húsinu Jill Stein tilkynnti í kvöld að hún ætlaði aftur að bjóða sig fram til embættis forseta Bandaríkjanna og aftur fyrir Græningja. Hún bauð sig einnig fram árið 2016 og hefur verið sökuð um það að hafa kostað Demókrata Hvíta húsið og tryggt Donald Trump embættið. Erlent 9.11.2023 22:05
Segja Ísraela hafa samþykkt tímabundin hlé Ríkisstjórn Ísrael hefur samþykkt að hætta árásum á Gasaströndina í fjórar klukkustundir á degi hverjum. Með þessu er vonast til þess að fleiri óbreyttir borgarar geti flúið frá norðurhluta Gasa, þar sem barist er á götum Gasaborgar og annarra byggða. Erlent 9.11.2023 20:01
Forsætisráðherra Palestínu biðlar til alþjóðasamfélagsins að stilla til friðar Forsætisráðherra Palestínu biðlaði til alþjóðasamfélagsins í dag að þrýsta á endalok stríðsátaka á Gaza og spurði hversu margir þyrftu að deyja og hvað eyðileggingin þyrfti að verða mikil áður nóg væri komið. Alþingi samþykkti ályktun utanríkismálanefndar um átökin á Gaza í dag með öllum greiddum atkvæðum. Erlent 9.11.2023 19:21
Samkomulag í höfn við katalónska aðskilnaðarsinna Þingmaður spænskra sósíalista, Santos Cerdan, tilkynnti í dag að samkomulag hefði nást milli Spænska sósíalíska verkamannaflokksins og flokks katalónskra aðskilnaðarsinna Junts um að veita Junts-liðum sakaruppgjöf fyrir ólögmæta sjálfstæðisyfirlýsingu sína árið 2017. Þetta gerir sósíalistaflokki Pedro Sanchez, sitjandi forsætisráðherra, líklega kleift að mynda nýja ríkisstjórn. Erlent 9.11.2023 16:18
Spænskur stjórnmálamaður af hægri vængnum skotinn í andlitið Spænski stjórnmálamaðurinn Alejo Vidal-Quadras, sem átti um árabil sæti á Evrópuþinginu og er einn af upphafsmönnum hægriöfgaflokksins Vox, var skotinn í andlitið á götu úti í höfuðborginni Madríd fyrr í dag. Erlent 9.11.2023 14:22
Skora á íslensk stjórnvöld að bregðast við krísunni á Gasa Íslenskir læknar og hjúkrunarfræðingar hafa sent íslenskum stjórnvöldum sitthvort opinbera bréfið vegna ástandsins á Gasa. Undirrituð krefjast þess að íslensk stjórnvöld bregðist við atburðunum og krefjist þar vopnahlés og þrýsti á Ísrael um að stöðva árásir. Erlent 9.11.2023 13:47
Heimsins nýjasta eyja lítur dagsins ljós Heimsins nýjasta eyja reis úr sæ við strendur japönsku eyjarinnar Iwo Jima í Kyrrahafinu í síðustu viku. Veðurstofa Japans sagði í viðtali við CNN að enn nafnlausa eyjan hafi myndast í neðansjávargosi. Erlent 9.11.2023 10:40
Tekur við formennsku Venstre Troels Lund Poulsen tekur við formennsku Venstre-flokksins í Danmörku af Jakob Ellemann-Jensen. Það bauð sig enginn annar fram og því var hann sjálfkjörinn. Erlent 9.11.2023 09:11
Sextán leiðtogar Gambino-fjölskyldunnar handteknir Lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum og á Ítalíu hafa handtekið sextán meinta leiðtoga Gambino-glæpafjölskyldunnar og samstarfsmenn þeirra. Einstaklingarnir eru grunaðir um svik, fjárkúganir og afskipti af vitnum, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 9.11.2023 08:26
Næstverðmætasta verk Picasso selt á uppboði hjá Sotheby's „Femme a la Montre“ eða „Kona með úr“, listaverk eftir Pablo Picasso frá 1932, seldist á uppboði á dögunum á 139 milljónir dollara. Það jafngildir tæplega 20 milljörðum íslenskra króna. Erlent 9.11.2023 07:08
Leggja lokadrög að samkomulagi um mannúðarhlé gegn lausn gísla Viðræður standa yfir um þriggja daga mannúðarhlé á árásum Ísraelshers á Gasa gegn því að Hamas sleppi um tug gísla sem samtökin hafa í haldi. Frá þessu greinir Associated Press og hefur eftir fjórum ónafngreindum heimildarmönnum. Erlent 9.11.2023 06:52
Laut í lægra haldi eftir kynlífsskandal Frambjóðandi Demókrataflokksins laut í lægra haldi í kosningum til fulltrúaþings Virginíuríkis sem fram fóru í gær, en þó með litlum atkvæðamun. Málið vekur sérstaka athygli vegna þess að kynlífsmyndbönd af frambjóðandanum og eiginmanni hennar hafa gengið manna á milli. Erlent 8.11.2023 23:46
Vörpuðu sprengjum á byltingarverði í Sýrlandi Bandaríkjamenn gerðu í kvöld loftárásir í austurhluta Sýrlands, sem sagðar eru hafa beinst gegn byltingarvörðum Írans og vígahópum sem Íran styður. Þá var bandarískur dróni skotinn niður af Hútum yfir Rauðahafinu. Erlent 8.11.2023 23:09
Létu ekki brenna líkin sem hrönnuðust upp Eigandi útfararstofu í Colorado í Bandaríkjunum og eiginkona hans voru handtekinn í dag en minnst 189 lík fundust nýverið í húsnæði þeirra. Líkamsleifarnar eru sagðar í misslæmu ásigkomulagi en þær fundust þann 4. október þegar fólk kvartaði undan lykt. Erlent 8.11.2023 19:20
Ísraelskur fáni í Ráðhúsi Kaupmannahafnar umdeildur Fólki sem átti leið hjá ráðhúsi Kaupmannahafnar í morgun sagðist hafa brugðið við að sjá ísraelskan fána hanga í glugga ráðhússins sem vísar út á H.C Andersensbreiðgötuna, eina mest förnu götu Kaupmannahafnar. Erlent 8.11.2023 12:07
Íbúar Ohio samþykkja að festa réttinn til þungunarrofs í stjórnarskrá Gengið var til kosninga víða í Bandaríkjunum í gær, þar sem kosið var um ríkisstjóra, hæstaréttardómara og ýmsar tillögur. Í Ohio bar til tíðinda, þar sem 56,6 prósent íbúa kusu að festa réttinn til þungunarrofs í stjórnarskrá ríkisins. Erlent 8.11.2023 12:00
G7-ríkin kalla eftir mannúðarhléi en Blinken útilokar vopnahlé Utanríkisráðherrar G7-ríkjanna hafa sameinast um yfirlýsingu þar sem kallað er eftir mannúðarhléi á átökum milli Ísraela og Hamas til að greiða fyrir neyðaraðstoð til íbúa. Erlent 8.11.2023 10:58
Rússar gefa út handtökuskipun á hendur íslenskum ríkisborgara Yfirvöld í Rússlandi hafa gefið út handtökuskipun á hendur Liudmilu „Lucy“ Shtein, 27 ára meðlimi hljómsveitarinnar og aðgerðahópsins Pussy Riot. Erlent 8.11.2023 08:53
Nær öruggt að árið í ár verði það heitasta í sögunni Fátt virðist nú koma í veg fyrir að árið 2023 verði það heitasta í sögunni eða frá upphafi mælinga í það minnsta. Erlent 8.11.2023 08:44
Johnson vildi láta sprauta sig með Covid-19 í beinni Boris Johnson, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, vildi láta sprauta sig með Covid-19 í beinni útsendingu í sjónvarpi í árdaga heimsfaraldurs kórónuveiru. Erlent 8.11.2023 08:33
Þingkona í Bandaríkjunum ávítt fyrir meintan stuðning við hryðjuverk Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti í gær að ávíta þingkonuna Rashidu Tlaib, Demókrata frá Michigan, fyrir meinta vörn hennar á hryðjuverkum Hamas og stuðning hennar við slagorðin „Frá á til sjávar!“. Erlent 8.11.2023 08:01
Óttast flóðbylgju barnaníðsefnis sköpuðu með aðstoð gervigreindar Móðir stúlku hvers mynd var notuð til að búa til barnaklám með aðstoð gervigreindar segist hafa heyrt frá mörg hundruð foreldrum sem segja börn sín einnig meðal fórnarlamba hinnar nýju tækni. Erlent 8.11.2023 07:07
Biden ekki sammála Netanyahu um yfirtöku Ísraelsmanna á Gasa Joe Biden Bandaríkjaforseti styður ekki yfirtöku Ísraelsmanna á Gasa, eins og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur gefið til kynna að muni gerast að átökum loknum. Erlent 8.11.2023 06:43
Dó þegar afmælisgjöfin sprakk Aðstoðarmaður yfirmanns herafla Úkraínu dó í gær þegar handsprengja sem hann fékk í afmælisgjöf sprakk. Þrettán ára sonur mannsins, sem hét Gennadiy Chastyakov og var majór, særðist alvarlega en fyrst var talið að um banatilræði hefði verið að ræða. Erlent 7.11.2023 23:41
Segja hermenn berjast í „hjarta Gasaborgar“ Ísraelskir hermenn eru sagðir komnir langt inn í Gasaborg. Mikill fjöldi óbreyttra borgara hefur flúið borgina í dag og farið til suðurhluta Gasastrandarinnar. Erlent 7.11.2023 22:30
Segir engan hafa staðið í vegi rannsóknar á Hunter Biden David Weiss, sérstakur saksóknari dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, sem haft hefur Hunter Biden, son Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, til rannsóknar, segir embættismenn ekki hafa staðið í vegi sér. Hann sagðist hafa fullt yfirráð yfir rannsókninni og enginn hefði reynt að grípa fram fyrir hendurnar á sér. Erlent 7.11.2023 22:08
Forsætisráðherra Portúgals segir af sér vegna spillingarmáls Antonio Costa, forsætisráðherra Portúgals, hefur sagt af sér vegna spillingarmáls sem upp er komið í landinu. Lögregla í Portúgal handtók í morgun starfsmannastjóra forsetans, Vitor Escaria, og fjóra til viðbótar vegna gruns um spillingu. Erlent 7.11.2023 14:41