Eldgos og jarðhræringar Afmæli drottningar: Dorrit mætt en Ólafur strand Afmælisveisla Danadrottningar gæti verið í töluverðu uppnámi sökum öngþveitis sem skapast hefur á flugvöllum Evrópu vegna ösku úr Eyjafjallajökli. Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff hafa þegið boð Margrétar drottningar um að taka þátt í hátíðarhöldunum en Ólafur hefur hins vegar ekki komist til Danmerkur frekar en aðrir flugfarþegar í morgun. Innlent 15.4.2010 11:42 Hrikalegt öskufall við Kirkjubæjarklaustur „Það er öskusnjór sem liggur yfir öllu og grátt lag á rúðunum," segir Fanney Jóhannsdóttir, sem er bóndi á Efri Ey II við Kirkjubæjarklaustur. Hún segir að á jörðinni við bæinn líti askan út fyrir að vera mjög dökk. Um sé að ræða síðbúinn og dökkan jólasnjór. Innlent 15.4.2010 11:39 Öskufall ætti ekki að ógna öryggi bufjár Öskufall á ekki að ógna öryggi og heilsu búfjár, ef bændur bregðast rétt við. Það kann þó að verða þröngt á þingi í mörgum fjárhúsum yfir sauðburðinn, sem er að hefjast. Innlent 15.4.2010 11:17 Askan stöðvar allt flug í Norður - Evrópu Til stendur að loka allri lofthelginni yfir Bretlandi klukkan ellefu. Eftir því sem Vísir kemst næst hefur þetta valdið töluverðri skelfingu hjá flugmálayfirvöldum þar í landi vegna þess að ekki hefur fengist á hreint hvert eigi að senda þær vélar sem fyrirhugað var að yrði flogið um lofthelgina. Innlent 15.4.2010 10:42 Magnaðar myndir af hlaupinu Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðisins náði að fanga myndir af aðstæðum fyrir austan fjall eftir að þegar að hlaupið gekk yfir. Eins og fram hefur komið þurfti að rjúfa þjóðveginn til þess að taka þungann af nýju brúnni yfir Markarfljót. Það tókst sem betur fer. Innlent 15.4.2010 10:32 Gosmökkur drap á öllum hreyflum breiðþotu Það var árið 1982 sem menn gerðu sér grein fyrir því að eldgos gætu verið hættuleg flugvélum. Erlent 15.4.2010 10:28 Eldingar í gosmekkinum - fólk í hættu Eldingar leiftra í gosmekkinum á Eyjafjallajökli. Fordæmi er fyrir því hér á landi að fólk hefur látist af völdum eldinga í 30 kílómetra fjarlægð frá gosi. Þórður Arason, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir alltaf hættu af eldingum í eldgosum. Innlent 15.4.2010 10:26 Búast við að loka Kastrup klukkan þrjú Eftir því sem askan úr Eyjafjallajökli færist yfir Evrópu aukast áhrifin á flugumferð. Flugmálayfirvöld í Danmörku miða nú við að loka Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn klukkan þrjú að íslenskum tíma. Ennfremur verður sett bann við öllu flugi í danskri lofthelgi klukkan fjögur . Nú þegar hefur verið mikl röskun á flugvellinum og hefur þurft að seinka og aflýsa fjölda ferða. Erlent 15.4.2010 10:14 Undirbúa viðgerð á þjóðvegi eftir hlaupið Vegagerðarmenn eru þegar farnir að undribúða viðgerð á þjóðvegi eitt, sem rofnaði á fjórum stöðum vegna vatnavaxta frá eldgosinu í gær. Innlent 15.4.2010 09:55 Um 1100 strandaglópar í Leifsstöð Um 1100 manns bíða eftir flugi á Keflavíkurflugvelli, samkvæmt upplýsingum frá Friðþóri Eydal, upplýsingafulltrúa Keflavíkurflugvallar. Innlent 15.4.2010 09:19 Gosið 1821 - Þrumur og eldglæringar Eldar í jökli, þykkur öskumökkur, þrumur og eldingar - svona eru lýsingarnar á gosinu í Eyjafjallajökli árið 1821. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur skrifar um eldgosið í Eyjafjallajökli á bloggsíðu sinni. Hann lýsir þróun gossins í Eyjafjallajökli árið 1821 - 1823 en finna má lýsingu á því gosi í bók Þorvaldar Thoroddsen náttúrufræðings. Innlent 15.4.2010 08:54 Öskufallið hækkar heimsmarkaðsverð á olíu Búið er að loka fyrir alla þyrluflugsumferð á olíuvinnslusvæðunum í Norðursjó og meðfram ströndum Noregs vegna öskufallsins frá gosinu í Eyjafjallajökli. Norska olíuöryggisráðið er nú að meta stöðuna en fyrir liggur að ef draga verður úr olíuframleiðslu á svæðinu muni slíkt hækka heimsmarkaðsverð á olíu. Viðskipti erlent 15.4.2010 08:29 Mýrdalssandur lokaður Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Hvolsvelli kemur fram að verið sé að loka Mýrdalsjökli vegna öskufalls. Þar er nú öskufall austast á sandinum og skyggni lítið sem ekkert. Innlent 15.4.2010 08:21 Gosið var stöðugt í nótt Gosið í Eyjafjallajökli var ámóta kraftmikið í alla nótt og það var í gær. Þar hefur gengið á með sprengingum og töluverðu öskufalli sem hefur borist með vindi til austurs í Skaftártungurnar, Meðallandið og Landbrotið. Innlent 15.4.2010 07:07 Askan úr Eyjafjallajökli lokar fjölda flugvalla í Evrópu Aska frá gosinu Í Eyjafjallajökli hefur haft mikil áhrif á flugumferð í norðanverðri Evrópu. Flugvöllum í London, Heathrow, Gatwick og Stansted hefur verið lokað. Sama má segja um Belfast og Newcastle. Algert flugbann er nú í gildi í Noregi og hefur Gardemoen vellinum í Osló þar með verið lokað. Flugumferð yfir Norður-Svíþjóð hefur verið bönnuð frá því í nótt og búist er við að flugbannið verði stækkað í Svíþjóð þegar líður á morguninn og daginn. Erlent 15.4.2010 06:59 Skemmdir vegna flóðanna minni en óttast var í fyrstu Flóð ruddu sér leið undan norðan- og sunnanverðum Eyjafjallajökli eftir að öflugt eldgos hófst í gær. Um tíma var óttast að skemmdir yrðu miklar en flóðin rénuðu fyrr en áætlað var. Mannshöndin hafði einnig sitt að segja. Skemmdir vegna flóða í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli í gær urðu minni en óttast var framan af degi. Engu að síður er fyrsta mat þeirra sem gerst þekkja að fjárhagstjón nemi á annað hundrað milljónir króna. Innlent 14.4.2010 22:56 Agndofa gagnvart þessum kröftum Norskir gestir Ferðafélags Íslands sem voru fastir í Þórsmörk í gær vegna vatnavaxta í Markarfljóti stóðu agndofa þegar gos hófst í Eyjafjallajökli. Hópurinn var ásamt öðrum erlendum ferðamönnum ferjaður yfir fljótið síðdegis í gær. Innlent 14.4.2010 22:56 Vík í viðbragðsstöðu Íbúar í Vík í Mýrdal og nágrenni eru í viðbragðsstöðu ef Katla skyldi láta á sér kræla. Þetta sagði Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í Vík, við Fréttablaðið í gær. Innlent 14.4.2010 22:57 Rýming gekk snurðulaust og eftir áætlun Fólk tók að streyma af rýmingarsvæðum í grunnskólann á Hvolsvelli rétt fyrir klukkan hálf fimm aðfaranótt miðvikudags. Innlent 14.4.2010 22:56 Beðnar að hrella ekki foreldra með sms Flytja þurfti 43 ferðamenn frá gistiþjónustunni að Hellishólum í Fljótshlíð aðfaranótt miðvikudags vegna rýmingar Almannavarna. Laíla Ingvarsdóttir og Víðir Jóhannsson, staðarhaldarar á Hellishólum, segja rýminguna hafa gengið bæði fljótt og vel. Innlent 14.4.2010 22:57 Við jökul þegar gos hófst „Þau voru stödd undir Gígjökli þegar ég hringdi í þau og sagði þeim að snúa við. Þá var klukkan hálfeitt,“ segir Hreinn Óskarsson, verkefnisstjóri Hekluskóga. Innlent 14.4.2010 22:57 Létt yfir gestum í hjálparmiðstöð Fólk gerði í gamni sínu í hjálparmiðstöðinni í grunnskóla Hvolsvallar og lét það ekki raska ró sinni að vera dregið úr rúminu vegna yfirvofandi goss í Eyjafjallajökli aðfaranótt miðvikudags. Innlent 14.4.2010 22:57 Nokkrar leiðir að Kötlugosi Nábýli Eyjafjallajökuls og Kötlu hefur orðið tilefni vangaveltna um áhrif gossins í Eyjafjallajökli á Kötlu. Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir nokkra möguleika á því hvaða áhrif gosið í Eyjafjallajökli hefur á Kötlu. Innlent 14.4.2010 22:57 Gangur eldgossins er stöðugur - vart hefur orðið við öskufall Gangur eldgossins í Eyjafjallajökli er stöðugur samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum. Í dag og í kvöld hefur gengið á með sprengivirkni sem fylgir öskufall. Innlent 14.4.2010 22:57 Búfjáreigendur hvattir til þess að fylgjast grannt með öskufalli Búfjáreigendum á áhrifasvæði eldgossins er bent á að fylgjast grannt með mögulegu öskufalli, t.d. með því að leggja út hvítan disk samkvæmt tilkynningu frá almannavarnadeild. Innlent 14.4.2010 21:55 Hlaupið minna en það fyrra - þó meira krap í því Flóðið úr Eyjafjallajökli er komið niður að nýju Markafljótsbrú. Það er minna en flóðið sem skall á í hádeginu í dag að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli en aftur á móti er meira krap í þessu flóði. Þó er óljóst hvort það hafi einhver sérstök áhrif. Innlent 14.4.2010 20:39 Hálfs kílómetra breið sprunga í Toppgíg Gruggug jökulvatnið þreyttist af toppi Eyjafjallajökuls, niður Gígjökul, fyllti lónið þar fyrir neðan áður en það rann niður í Markarfljótið. Innlent 14.4.2010 19:07 Almannavarnir meta stöðuna Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Hvolsvelli, segir að almannavarnir og vísindamenn muni á símafundi klukkan fimm fara yfir stöðuna og taka ákvörðun um framhald rýmingar á svæðinu. Um 700 manns þurftu að yfirgefa heimili sín vegna gossins í nótt, en það er svipað og þegar gos hófst á Fimmvörðuhálsi 20. mars síðastliðinn. Innlent 14.4.2010 16:44 Steingrímur upplifði magnaða lífsreynslu Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra var staddur nærri Markafljótsbrú þegar vatnsflaumurinn kom að brúnni. Hann segir að það hafi verið magnað að upplifa þetta. Sem betur fer hafi brúin bjargast. „Þetta var mikill flaumur á meðan þetta kom og fór nokkuð hátt undir brúna um tíma,“ segir Steingrímur. Hann sagði að það hafi skipt máli að rjúfa veginn því með því hefði tekist að minnka álagið á brúna. Innlent 14.4.2010 15:41 Hlaupið í rénun Hlaupið úr Eyjafjallajökli er í rénun þessa stundina, bæði Markarfljótsmegin og Svaðbælisármegin. Lögreglan á Hvolsvelli gerir ráð fyrir því að jarðvísindamenn og fulltrúar frá almannavörnum muni fljúga yfir svæðið innan skamms og meta stöðuna. Innlent 14.4.2010 14:51 « ‹ 125 126 127 128 129 130 131 132 133 … 133 ›
Afmæli drottningar: Dorrit mætt en Ólafur strand Afmælisveisla Danadrottningar gæti verið í töluverðu uppnámi sökum öngþveitis sem skapast hefur á flugvöllum Evrópu vegna ösku úr Eyjafjallajökli. Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff hafa þegið boð Margrétar drottningar um að taka þátt í hátíðarhöldunum en Ólafur hefur hins vegar ekki komist til Danmerkur frekar en aðrir flugfarþegar í morgun. Innlent 15.4.2010 11:42
Hrikalegt öskufall við Kirkjubæjarklaustur „Það er öskusnjór sem liggur yfir öllu og grátt lag á rúðunum," segir Fanney Jóhannsdóttir, sem er bóndi á Efri Ey II við Kirkjubæjarklaustur. Hún segir að á jörðinni við bæinn líti askan út fyrir að vera mjög dökk. Um sé að ræða síðbúinn og dökkan jólasnjór. Innlent 15.4.2010 11:39
Öskufall ætti ekki að ógna öryggi bufjár Öskufall á ekki að ógna öryggi og heilsu búfjár, ef bændur bregðast rétt við. Það kann þó að verða þröngt á þingi í mörgum fjárhúsum yfir sauðburðinn, sem er að hefjast. Innlent 15.4.2010 11:17
Askan stöðvar allt flug í Norður - Evrópu Til stendur að loka allri lofthelginni yfir Bretlandi klukkan ellefu. Eftir því sem Vísir kemst næst hefur þetta valdið töluverðri skelfingu hjá flugmálayfirvöldum þar í landi vegna þess að ekki hefur fengist á hreint hvert eigi að senda þær vélar sem fyrirhugað var að yrði flogið um lofthelgina. Innlent 15.4.2010 10:42
Magnaðar myndir af hlaupinu Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðisins náði að fanga myndir af aðstæðum fyrir austan fjall eftir að þegar að hlaupið gekk yfir. Eins og fram hefur komið þurfti að rjúfa þjóðveginn til þess að taka þungann af nýju brúnni yfir Markarfljót. Það tókst sem betur fer. Innlent 15.4.2010 10:32
Gosmökkur drap á öllum hreyflum breiðþotu Það var árið 1982 sem menn gerðu sér grein fyrir því að eldgos gætu verið hættuleg flugvélum. Erlent 15.4.2010 10:28
Eldingar í gosmekkinum - fólk í hættu Eldingar leiftra í gosmekkinum á Eyjafjallajökli. Fordæmi er fyrir því hér á landi að fólk hefur látist af völdum eldinga í 30 kílómetra fjarlægð frá gosi. Þórður Arason, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir alltaf hættu af eldingum í eldgosum. Innlent 15.4.2010 10:26
Búast við að loka Kastrup klukkan þrjú Eftir því sem askan úr Eyjafjallajökli færist yfir Evrópu aukast áhrifin á flugumferð. Flugmálayfirvöld í Danmörku miða nú við að loka Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn klukkan þrjú að íslenskum tíma. Ennfremur verður sett bann við öllu flugi í danskri lofthelgi klukkan fjögur . Nú þegar hefur verið mikl röskun á flugvellinum og hefur þurft að seinka og aflýsa fjölda ferða. Erlent 15.4.2010 10:14
Undirbúa viðgerð á þjóðvegi eftir hlaupið Vegagerðarmenn eru þegar farnir að undribúða viðgerð á þjóðvegi eitt, sem rofnaði á fjórum stöðum vegna vatnavaxta frá eldgosinu í gær. Innlent 15.4.2010 09:55
Um 1100 strandaglópar í Leifsstöð Um 1100 manns bíða eftir flugi á Keflavíkurflugvelli, samkvæmt upplýsingum frá Friðþóri Eydal, upplýsingafulltrúa Keflavíkurflugvallar. Innlent 15.4.2010 09:19
Gosið 1821 - Þrumur og eldglæringar Eldar í jökli, þykkur öskumökkur, þrumur og eldingar - svona eru lýsingarnar á gosinu í Eyjafjallajökli árið 1821. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur skrifar um eldgosið í Eyjafjallajökli á bloggsíðu sinni. Hann lýsir þróun gossins í Eyjafjallajökli árið 1821 - 1823 en finna má lýsingu á því gosi í bók Þorvaldar Thoroddsen náttúrufræðings. Innlent 15.4.2010 08:54
Öskufallið hækkar heimsmarkaðsverð á olíu Búið er að loka fyrir alla þyrluflugsumferð á olíuvinnslusvæðunum í Norðursjó og meðfram ströndum Noregs vegna öskufallsins frá gosinu í Eyjafjallajökli. Norska olíuöryggisráðið er nú að meta stöðuna en fyrir liggur að ef draga verður úr olíuframleiðslu á svæðinu muni slíkt hækka heimsmarkaðsverð á olíu. Viðskipti erlent 15.4.2010 08:29
Mýrdalssandur lokaður Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Hvolsvelli kemur fram að verið sé að loka Mýrdalsjökli vegna öskufalls. Þar er nú öskufall austast á sandinum og skyggni lítið sem ekkert. Innlent 15.4.2010 08:21
Gosið var stöðugt í nótt Gosið í Eyjafjallajökli var ámóta kraftmikið í alla nótt og það var í gær. Þar hefur gengið á með sprengingum og töluverðu öskufalli sem hefur borist með vindi til austurs í Skaftártungurnar, Meðallandið og Landbrotið. Innlent 15.4.2010 07:07
Askan úr Eyjafjallajökli lokar fjölda flugvalla í Evrópu Aska frá gosinu Í Eyjafjallajökli hefur haft mikil áhrif á flugumferð í norðanverðri Evrópu. Flugvöllum í London, Heathrow, Gatwick og Stansted hefur verið lokað. Sama má segja um Belfast og Newcastle. Algert flugbann er nú í gildi í Noregi og hefur Gardemoen vellinum í Osló þar með verið lokað. Flugumferð yfir Norður-Svíþjóð hefur verið bönnuð frá því í nótt og búist er við að flugbannið verði stækkað í Svíþjóð þegar líður á morguninn og daginn. Erlent 15.4.2010 06:59
Skemmdir vegna flóðanna minni en óttast var í fyrstu Flóð ruddu sér leið undan norðan- og sunnanverðum Eyjafjallajökli eftir að öflugt eldgos hófst í gær. Um tíma var óttast að skemmdir yrðu miklar en flóðin rénuðu fyrr en áætlað var. Mannshöndin hafði einnig sitt að segja. Skemmdir vegna flóða í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli í gær urðu minni en óttast var framan af degi. Engu að síður er fyrsta mat þeirra sem gerst þekkja að fjárhagstjón nemi á annað hundrað milljónir króna. Innlent 14.4.2010 22:56
Agndofa gagnvart þessum kröftum Norskir gestir Ferðafélags Íslands sem voru fastir í Þórsmörk í gær vegna vatnavaxta í Markarfljóti stóðu agndofa þegar gos hófst í Eyjafjallajökli. Hópurinn var ásamt öðrum erlendum ferðamönnum ferjaður yfir fljótið síðdegis í gær. Innlent 14.4.2010 22:56
Vík í viðbragðsstöðu Íbúar í Vík í Mýrdal og nágrenni eru í viðbragðsstöðu ef Katla skyldi láta á sér kræla. Þetta sagði Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í Vík, við Fréttablaðið í gær. Innlent 14.4.2010 22:57
Rýming gekk snurðulaust og eftir áætlun Fólk tók að streyma af rýmingarsvæðum í grunnskólann á Hvolsvelli rétt fyrir klukkan hálf fimm aðfaranótt miðvikudags. Innlent 14.4.2010 22:56
Beðnar að hrella ekki foreldra með sms Flytja þurfti 43 ferðamenn frá gistiþjónustunni að Hellishólum í Fljótshlíð aðfaranótt miðvikudags vegna rýmingar Almannavarna. Laíla Ingvarsdóttir og Víðir Jóhannsson, staðarhaldarar á Hellishólum, segja rýminguna hafa gengið bæði fljótt og vel. Innlent 14.4.2010 22:57
Við jökul þegar gos hófst „Þau voru stödd undir Gígjökli þegar ég hringdi í þau og sagði þeim að snúa við. Þá var klukkan hálfeitt,“ segir Hreinn Óskarsson, verkefnisstjóri Hekluskóga. Innlent 14.4.2010 22:57
Létt yfir gestum í hjálparmiðstöð Fólk gerði í gamni sínu í hjálparmiðstöðinni í grunnskóla Hvolsvallar og lét það ekki raska ró sinni að vera dregið úr rúminu vegna yfirvofandi goss í Eyjafjallajökli aðfaranótt miðvikudags. Innlent 14.4.2010 22:57
Nokkrar leiðir að Kötlugosi Nábýli Eyjafjallajökuls og Kötlu hefur orðið tilefni vangaveltna um áhrif gossins í Eyjafjallajökli á Kötlu. Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir nokkra möguleika á því hvaða áhrif gosið í Eyjafjallajökli hefur á Kötlu. Innlent 14.4.2010 22:57
Gangur eldgossins er stöðugur - vart hefur orðið við öskufall Gangur eldgossins í Eyjafjallajökli er stöðugur samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum. Í dag og í kvöld hefur gengið á með sprengivirkni sem fylgir öskufall. Innlent 14.4.2010 22:57
Búfjáreigendur hvattir til þess að fylgjast grannt með öskufalli Búfjáreigendum á áhrifasvæði eldgossins er bent á að fylgjast grannt með mögulegu öskufalli, t.d. með því að leggja út hvítan disk samkvæmt tilkynningu frá almannavarnadeild. Innlent 14.4.2010 21:55
Hlaupið minna en það fyrra - þó meira krap í því Flóðið úr Eyjafjallajökli er komið niður að nýju Markafljótsbrú. Það er minna en flóðið sem skall á í hádeginu í dag að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli en aftur á móti er meira krap í þessu flóði. Þó er óljóst hvort það hafi einhver sérstök áhrif. Innlent 14.4.2010 20:39
Hálfs kílómetra breið sprunga í Toppgíg Gruggug jökulvatnið þreyttist af toppi Eyjafjallajökuls, niður Gígjökul, fyllti lónið þar fyrir neðan áður en það rann niður í Markarfljótið. Innlent 14.4.2010 19:07
Almannavarnir meta stöðuna Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Hvolsvelli, segir að almannavarnir og vísindamenn muni á símafundi klukkan fimm fara yfir stöðuna og taka ákvörðun um framhald rýmingar á svæðinu. Um 700 manns þurftu að yfirgefa heimili sín vegna gossins í nótt, en það er svipað og þegar gos hófst á Fimmvörðuhálsi 20. mars síðastliðinn. Innlent 14.4.2010 16:44
Steingrímur upplifði magnaða lífsreynslu Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra var staddur nærri Markafljótsbrú þegar vatnsflaumurinn kom að brúnni. Hann segir að það hafi verið magnað að upplifa þetta. Sem betur fer hafi brúin bjargast. „Þetta var mikill flaumur á meðan þetta kom og fór nokkuð hátt undir brúna um tíma,“ segir Steingrímur. Hann sagði að það hafi skipt máli að rjúfa veginn því með því hefði tekist að minnka álagið á brúna. Innlent 14.4.2010 15:41
Hlaupið í rénun Hlaupið úr Eyjafjallajökli er í rénun þessa stundina, bæði Markarfljótsmegin og Svaðbælisármegin. Lögreglan á Hvolsvelli gerir ráð fyrir því að jarðvísindamenn og fulltrúar frá almannavörnum muni fljúga yfir svæðið innan skamms og meta stöðuna. Innlent 14.4.2010 14:51