Bandaríkin Tveir ákærðir fyrir morð í sigurgöngu Kansas City Chiefs Tveir karlmenn eru ákærðir fyrir morð eftir að kona lét lífið og 22 særðust í skotárás í lestarstöð nærri sigurgöngu ameríska fótboltaliðsins Kansas City Chiefs síðasta miðvikudag, fjórum dögum eftir að ofurskálin fór fram. Erlent 20.2.2024 23:53 Ögurstund í máli Julian Assange Hæstiréttur í Lundúnum tekur fyrir í dag og á morgun síðustu áfrýjun Julian Assange, eins stofnanda Wikileaks, um framsal til Bandaríkjanna. Þar á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann fundinn sekur um brot á njósnalagalöggjöf landsins. Erlent 20.2.2024 11:46 Mannskæðar skotárásir í Bandaríkjunum Þó nokkrar mannskæðar skotárásir hafa átt sér stað víðsvegar um Bandaríkin á undanförnum dögum. Að minnsta kosti þrír lögregluþjónar og einn sjúkraflutningamaður hafa verið skotnir til bana í tveimur mismunandi atvikum, auk þess sem ein kona lét lífið og fimm særðust eftir að rifrildi á Waffle House veitingastað varð að skotbardaga. Erlent 20.2.2024 11:41 Hæstiréttur Alabama skilgreinir frosna fósturvísa sem manneskjur Hæstiréttur Alabama í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu á föstudag að frosnir fósturvísar væru börn og að sækja mætti fólk til saka fyrir að eyðileggja þá. Erlent 20.2.2024 09:03 Trump minnist á Navalní, en ekki Pútín Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti hefur tjáð sig um dauða Alexei Navalní, sem lengi var höfuðandstæðingur Vladímír Pútíns Rússlandsforseta, án þess reyndar að minnast á Pútín. Erlent 19.2.2024 21:47 Bandaríkjamenn leggja til að öryggisráðið krefjist vopnahlés Fulltrúar Bandaríkjanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hafa samið tillögu að ályktun öryggisráðsins þar sem stuðningi við tímabundið vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs er lýst yfir. Erlent 19.2.2024 18:50 Tryggðu sér eilífa ást með kossi í New York Björn Þorláksson, blaðamaður hjá Samstöðinni og bridgespilari, og Arndís Bergsdóttir, doktor í safnafræði og akademóni, fagna tuttugu árum frá fyrsta hittingi í dag. Lífið 19.2.2024 13:49 Lincoln bestur, Biden í fjórtánda sæti en Trump alverstur Samkvæmt sagnfræðingum í Bandaríkjunum er Joe Biden fjórtándi besti Bandaríkjaforseti sögunnar, á meðan Donald Trump er sá alversti. Mesta afrek Biden var að koma Trump frá völdum, segja prófessorarnir sem stóðu fyrir könnuninni. Erlent 19.2.2024 11:09 Hvetur íslensk stjórnvöld að banna sjókvíaeldi áður en það verður of seint Umhverfisráðherra Washingtonríkis í Bandaríkjunum hvetur íslensk stjórnvöld að banna sjókvíaeldi. Hún segist óska þess að hún sjálf hefði bannað það í heimaríkinu áður en 350 þúsund eldislaxar sluppu út í náttúruna. Innlent 19.2.2024 10:00 Sendiherrar Bandaríkjanna og Bretlands minnast Navalní Sendiherrar Bandaríkjanna og Bretlands í Rússlandi lögðu báðir blóm að minnisvarða um andófsmanninn Alexei Navalní nú um helgina. Talið er að um 400 manns hafi verið handteknir á fjöldafundum í kjölfar dauða Navalní í síðustu viku. Erlent 19.2.2024 08:15 Rússar náðu yfirráðum í lofti yfir Avdívka Útlit er fyrir að hersveitum Rússa hafi tekist að ná yfirráðum í háloftunum yfir borginni Avdívka í austurhluta Úkraínu. Er það líklega í fyrsta sinn sem slíkt gerist frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Erlent 18.2.2024 17:05 Ætlar ekki að hætta við innrás í Rafah Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir ekki koma til greina að hætta við innrás í borgina Rafah í suðurhluta Gasastrandarinnar. Rúm milljón Palestínumanna hefur flúið þangað undan átökum Ísraela og Hamas-liða sem hafa valdið gífurlegum skaða á svæðinu lokaða. Erlent 18.2.2024 11:19 Santos vill hundrað milljónir frá Kimmel George Santos, fyrrverandi þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur höfðað mál gegn þáttastjórnandanum Jimmy Kimmel, ABC og Disney. Er það vegna þess að Kimmel gabbaði Santos til að taka upp myndband sem notað var til að gera grín að hinum smánaða fyrrverandi þingmanni. Erlent 18.2.2024 10:07 Skuldar meira en hálfan milljarð dala vegna dómsmála Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, skuldar gífurlegar fjárhæðir vegna tveggja dómsmála sem úrskurðar hefur verið í á undanförnum vikum. Mögulegt er að hann þurfi að selja fasteignir til að eiga fyrir sektunum. Erlent 17.2.2024 13:18 Trump sektaður um 355 milljónir dala í New York Dómari í New York hefur dæmt Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og forsetaframbjóðanda, til að greiða 355 milljónir dala í sekt vegna fjársvika. Erlent 16.2.2024 20:41 Dýrasta fasteign Bandaríkjanna til sölu Dýrasta fasteign sögunnar í Bandaríkjunum er nú til sölu. Hægt er að öðlast stærðarinnar hús við ströndina í Naples í Flórída fyrir einungis þrjú hundruð milljónir dala, tæpar. Lífið 16.2.2024 16:43 Uppljóstrari FBI ákærður fyrir lygar um Hunter og Joe Biden Fyrrverandi uppljóstrari fyrir Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) hefur verið ákærður fyrir að ljúga um margra milljóna dala mútumál tengt úkraínsku orkufyrirtæki og Biden-feðgunum Joe og Hunter. Ásakanir Alexander Smirnov, áðurnefnds uppljóstrara, hafa verið burðarstólpi í rannsókn Repúblikana á Joe Biden, forseta. Erlent 16.2.2024 11:03 María Birta og Elli tóku upp nýtt eftirnafn Listahjónin María Birta og Elli Egilsson ákvaðu að taka upp nýtt eftirnafn eftir að þau fengu bandarískan ríkisborgararétt og bera nú nafnið Fox. Ástæðan var til að tengja fjölskylduna saman, en hjónin og dóttir þeirra Ingacia báru öll sitt hvort eftirnafnið. Lífið 16.2.2024 10:33 Örlög Julian Assange ráðast í næstu viku Það kemur í ljós í næstu viku hvort Julian Assange fær heimild til að áfrýja framsalsmáli sínu einu sinni til viðbótar. Ef svarið verður nei, óttast eiginkona hans að hann verði fluttur til Bandaríkjanna innan fárra daga. Erlent 16.2.2024 07:33 OpenAI þróar hugbúnað sem býr til myndskeið eftir textalýsingu Gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefur þróað hugbúnað sem getur búið til allt að mínútu langt myndskeið eftir textalýsingu. Búnaðurinn hefur verið opnaður útvöldum til að prufukeyra hann og kanna hvort hann stenst kröfur. Erlent 16.2.2024 06:53 „Ef þið borgið ekki, ætla ég ekki að verja ykkur“ Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og væntanlegur forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, ítrekaði í gær að ef hann sneri aftur í Hvíta húsið, myndi hann ekki koma ríki í Atlantshafsbandalaginu til varnar í tilfelli árásar, nema þetta tiltekna ríki „borgaði“. Erlent 15.2.2024 15:46 Klósettleysi yfir Íslandi setti ferðaplönin úr skorðum Snúa þurfti við flugvél KLM-flugfélagsins á leið sinni frá Amsterdam til Los Angeles sökum klósettleysis. Flugvélin var í lofthelgi Íslands þegar ákvörðunin var tekin. Viðskipti erlent 15.2.2024 14:55 Möðkum rigndi yfir farþega og vélinni snúið við Farþegaflugvél bandaríska flugfélagsins Delta sem var á leið til Detroit í Bandaríkjunum frá Amsterdam á þriðjudag var snúið við í snarhasti eftir að möðkum tók að rigna yfir farþega. Erlent 15.2.2024 13:59 Smith biður hæstarétt um að tefja ekki réttarhöldin Jack Smith, sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, hefur farið fram á það við dómara hæstaréttar að þeir heimili það að réttarhöldin gegn Donald Trump vegna viðleitni hans til að halda völdum eftir að hann tapaði forsetakosningunum 2020 geti hafist sem fyrst. Það er eftir að Trump bað dómarana um að tefja réttarhöldin þar til fram yfir næstu forsetakosningar, sem fara fram í nóvember. Erlent 15.2.2024 10:36 Gagnrýndi viðtalsstíl Carlson og sagðist frekar vilja Biden en Trump Vladimir Pútín Rússlandsforseti sagði í viðtali við rússneska sjónvarpsmanninn Pavel Zarubin í gær að hann væri þakklátur Tucker Carlson fyrir viðtalið sem hann tók við forsetann á dögunum en hann hefði ekki fengið allt út úr því sem hann vildi. Erlent 15.2.2024 08:30 Rússar þrói kjarnavopn í geimnum Bandarísk yfirvöld óttast að Rússar muni vilja koma kjarnavopnum umhverfis sporbaug. Ætlunin yrði að beita þeim gegn gervihnöttum en tæknin er nú í þróun í Rússlandi. Erlent 14.2.2024 23:39 Tókst að ákæra Mayorkas í annarri tilraun Repúblikönum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings tókst í gær að ákæra Alejandro N. Mayorkas, yfirmann heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna, fyrir meint embættisbrot. Þetta var í annað sinn sem þeir greiddu atkvæði um ákæru og var hún samþykkt með einu atkvæði. Erlent 14.2.2024 14:13 Demókrati nældi í þingsæti Santos Demókratinn Tom Suozzi bar sigur úr býtum í baráttu um þingsæti í New York og minnkaði þar með meirihluti Repúblikana í fulltrúadeildinni enn meira. Áður hafði George Santos setið í þingsætinu en honum var vikið af þingi í byrjun desember. Erlent 14.2.2024 11:08 Hvetja til aukinnar hernaðaruppbyggingar Evrópu Forsætisráðherra Póllands og kanslari Þýskalands hvetja til tafarlausrar og aukinnar hernaðaruppbyggingar og samvinnu Evrópuríkja til að bregðast við útþenslustefnu Rússa. Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkt loks aukna aðstoð við Úkraínu í gærkvöldi. Erlent 13.2.2024 19:41 Trump vill frest fram yfir kosningar Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og væntanlegur forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, hefur beðið Hæstarétt Bandaríkjanna um að fresta úrskurði um hvort hann njóti friðhelgi gegn lögsókn þar til fram yfir forsetakosningarnar í nóvember. Verði dómarar við þeirri kröfu verður líklega ekki hægt að rétta yfir honum vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021 og tilrauna hans til snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. Erlent 13.2.2024 15:42 « ‹ 33 34 35 36 37 38 39 40 41 … 334 ›
Tveir ákærðir fyrir morð í sigurgöngu Kansas City Chiefs Tveir karlmenn eru ákærðir fyrir morð eftir að kona lét lífið og 22 særðust í skotárás í lestarstöð nærri sigurgöngu ameríska fótboltaliðsins Kansas City Chiefs síðasta miðvikudag, fjórum dögum eftir að ofurskálin fór fram. Erlent 20.2.2024 23:53
Ögurstund í máli Julian Assange Hæstiréttur í Lundúnum tekur fyrir í dag og á morgun síðustu áfrýjun Julian Assange, eins stofnanda Wikileaks, um framsal til Bandaríkjanna. Þar á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann fundinn sekur um brot á njósnalagalöggjöf landsins. Erlent 20.2.2024 11:46
Mannskæðar skotárásir í Bandaríkjunum Þó nokkrar mannskæðar skotárásir hafa átt sér stað víðsvegar um Bandaríkin á undanförnum dögum. Að minnsta kosti þrír lögregluþjónar og einn sjúkraflutningamaður hafa verið skotnir til bana í tveimur mismunandi atvikum, auk þess sem ein kona lét lífið og fimm særðust eftir að rifrildi á Waffle House veitingastað varð að skotbardaga. Erlent 20.2.2024 11:41
Hæstiréttur Alabama skilgreinir frosna fósturvísa sem manneskjur Hæstiréttur Alabama í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu á föstudag að frosnir fósturvísar væru börn og að sækja mætti fólk til saka fyrir að eyðileggja þá. Erlent 20.2.2024 09:03
Trump minnist á Navalní, en ekki Pútín Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti hefur tjáð sig um dauða Alexei Navalní, sem lengi var höfuðandstæðingur Vladímír Pútíns Rússlandsforseta, án þess reyndar að minnast á Pútín. Erlent 19.2.2024 21:47
Bandaríkjamenn leggja til að öryggisráðið krefjist vopnahlés Fulltrúar Bandaríkjanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hafa samið tillögu að ályktun öryggisráðsins þar sem stuðningi við tímabundið vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs er lýst yfir. Erlent 19.2.2024 18:50
Tryggðu sér eilífa ást með kossi í New York Björn Þorláksson, blaðamaður hjá Samstöðinni og bridgespilari, og Arndís Bergsdóttir, doktor í safnafræði og akademóni, fagna tuttugu árum frá fyrsta hittingi í dag. Lífið 19.2.2024 13:49
Lincoln bestur, Biden í fjórtánda sæti en Trump alverstur Samkvæmt sagnfræðingum í Bandaríkjunum er Joe Biden fjórtándi besti Bandaríkjaforseti sögunnar, á meðan Donald Trump er sá alversti. Mesta afrek Biden var að koma Trump frá völdum, segja prófessorarnir sem stóðu fyrir könnuninni. Erlent 19.2.2024 11:09
Hvetur íslensk stjórnvöld að banna sjókvíaeldi áður en það verður of seint Umhverfisráðherra Washingtonríkis í Bandaríkjunum hvetur íslensk stjórnvöld að banna sjókvíaeldi. Hún segist óska þess að hún sjálf hefði bannað það í heimaríkinu áður en 350 þúsund eldislaxar sluppu út í náttúruna. Innlent 19.2.2024 10:00
Sendiherrar Bandaríkjanna og Bretlands minnast Navalní Sendiherrar Bandaríkjanna og Bretlands í Rússlandi lögðu báðir blóm að minnisvarða um andófsmanninn Alexei Navalní nú um helgina. Talið er að um 400 manns hafi verið handteknir á fjöldafundum í kjölfar dauða Navalní í síðustu viku. Erlent 19.2.2024 08:15
Rússar náðu yfirráðum í lofti yfir Avdívka Útlit er fyrir að hersveitum Rússa hafi tekist að ná yfirráðum í háloftunum yfir borginni Avdívka í austurhluta Úkraínu. Er það líklega í fyrsta sinn sem slíkt gerist frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Erlent 18.2.2024 17:05
Ætlar ekki að hætta við innrás í Rafah Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir ekki koma til greina að hætta við innrás í borgina Rafah í suðurhluta Gasastrandarinnar. Rúm milljón Palestínumanna hefur flúið þangað undan átökum Ísraela og Hamas-liða sem hafa valdið gífurlegum skaða á svæðinu lokaða. Erlent 18.2.2024 11:19
Santos vill hundrað milljónir frá Kimmel George Santos, fyrrverandi þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur höfðað mál gegn þáttastjórnandanum Jimmy Kimmel, ABC og Disney. Er það vegna þess að Kimmel gabbaði Santos til að taka upp myndband sem notað var til að gera grín að hinum smánaða fyrrverandi þingmanni. Erlent 18.2.2024 10:07
Skuldar meira en hálfan milljarð dala vegna dómsmála Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, skuldar gífurlegar fjárhæðir vegna tveggja dómsmála sem úrskurðar hefur verið í á undanförnum vikum. Mögulegt er að hann þurfi að selja fasteignir til að eiga fyrir sektunum. Erlent 17.2.2024 13:18
Trump sektaður um 355 milljónir dala í New York Dómari í New York hefur dæmt Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og forsetaframbjóðanda, til að greiða 355 milljónir dala í sekt vegna fjársvika. Erlent 16.2.2024 20:41
Dýrasta fasteign Bandaríkjanna til sölu Dýrasta fasteign sögunnar í Bandaríkjunum er nú til sölu. Hægt er að öðlast stærðarinnar hús við ströndina í Naples í Flórída fyrir einungis þrjú hundruð milljónir dala, tæpar. Lífið 16.2.2024 16:43
Uppljóstrari FBI ákærður fyrir lygar um Hunter og Joe Biden Fyrrverandi uppljóstrari fyrir Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) hefur verið ákærður fyrir að ljúga um margra milljóna dala mútumál tengt úkraínsku orkufyrirtæki og Biden-feðgunum Joe og Hunter. Ásakanir Alexander Smirnov, áðurnefnds uppljóstrara, hafa verið burðarstólpi í rannsókn Repúblikana á Joe Biden, forseta. Erlent 16.2.2024 11:03
María Birta og Elli tóku upp nýtt eftirnafn Listahjónin María Birta og Elli Egilsson ákvaðu að taka upp nýtt eftirnafn eftir að þau fengu bandarískan ríkisborgararétt og bera nú nafnið Fox. Ástæðan var til að tengja fjölskylduna saman, en hjónin og dóttir þeirra Ingacia báru öll sitt hvort eftirnafnið. Lífið 16.2.2024 10:33
Örlög Julian Assange ráðast í næstu viku Það kemur í ljós í næstu viku hvort Julian Assange fær heimild til að áfrýja framsalsmáli sínu einu sinni til viðbótar. Ef svarið verður nei, óttast eiginkona hans að hann verði fluttur til Bandaríkjanna innan fárra daga. Erlent 16.2.2024 07:33
OpenAI þróar hugbúnað sem býr til myndskeið eftir textalýsingu Gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefur þróað hugbúnað sem getur búið til allt að mínútu langt myndskeið eftir textalýsingu. Búnaðurinn hefur verið opnaður útvöldum til að prufukeyra hann og kanna hvort hann stenst kröfur. Erlent 16.2.2024 06:53
„Ef þið borgið ekki, ætla ég ekki að verja ykkur“ Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og væntanlegur forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, ítrekaði í gær að ef hann sneri aftur í Hvíta húsið, myndi hann ekki koma ríki í Atlantshafsbandalaginu til varnar í tilfelli árásar, nema þetta tiltekna ríki „borgaði“. Erlent 15.2.2024 15:46
Klósettleysi yfir Íslandi setti ferðaplönin úr skorðum Snúa þurfti við flugvél KLM-flugfélagsins á leið sinni frá Amsterdam til Los Angeles sökum klósettleysis. Flugvélin var í lofthelgi Íslands þegar ákvörðunin var tekin. Viðskipti erlent 15.2.2024 14:55
Möðkum rigndi yfir farþega og vélinni snúið við Farþegaflugvél bandaríska flugfélagsins Delta sem var á leið til Detroit í Bandaríkjunum frá Amsterdam á þriðjudag var snúið við í snarhasti eftir að möðkum tók að rigna yfir farþega. Erlent 15.2.2024 13:59
Smith biður hæstarétt um að tefja ekki réttarhöldin Jack Smith, sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, hefur farið fram á það við dómara hæstaréttar að þeir heimili það að réttarhöldin gegn Donald Trump vegna viðleitni hans til að halda völdum eftir að hann tapaði forsetakosningunum 2020 geti hafist sem fyrst. Það er eftir að Trump bað dómarana um að tefja réttarhöldin þar til fram yfir næstu forsetakosningar, sem fara fram í nóvember. Erlent 15.2.2024 10:36
Gagnrýndi viðtalsstíl Carlson og sagðist frekar vilja Biden en Trump Vladimir Pútín Rússlandsforseti sagði í viðtali við rússneska sjónvarpsmanninn Pavel Zarubin í gær að hann væri þakklátur Tucker Carlson fyrir viðtalið sem hann tók við forsetann á dögunum en hann hefði ekki fengið allt út úr því sem hann vildi. Erlent 15.2.2024 08:30
Rússar þrói kjarnavopn í geimnum Bandarísk yfirvöld óttast að Rússar muni vilja koma kjarnavopnum umhverfis sporbaug. Ætlunin yrði að beita þeim gegn gervihnöttum en tæknin er nú í þróun í Rússlandi. Erlent 14.2.2024 23:39
Tókst að ákæra Mayorkas í annarri tilraun Repúblikönum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings tókst í gær að ákæra Alejandro N. Mayorkas, yfirmann heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna, fyrir meint embættisbrot. Þetta var í annað sinn sem þeir greiddu atkvæði um ákæru og var hún samþykkt með einu atkvæði. Erlent 14.2.2024 14:13
Demókrati nældi í þingsæti Santos Demókratinn Tom Suozzi bar sigur úr býtum í baráttu um þingsæti í New York og minnkaði þar með meirihluti Repúblikana í fulltrúadeildinni enn meira. Áður hafði George Santos setið í þingsætinu en honum var vikið af þingi í byrjun desember. Erlent 14.2.2024 11:08
Hvetja til aukinnar hernaðaruppbyggingar Evrópu Forsætisráðherra Póllands og kanslari Þýskalands hvetja til tafarlausrar og aukinnar hernaðaruppbyggingar og samvinnu Evrópuríkja til að bregðast við útþenslustefnu Rússa. Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkt loks aukna aðstoð við Úkraínu í gærkvöldi. Erlent 13.2.2024 19:41
Trump vill frest fram yfir kosningar Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og væntanlegur forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, hefur beðið Hæstarétt Bandaríkjanna um að fresta úrskurði um hvort hann njóti friðhelgi gegn lögsókn þar til fram yfir forsetakosningarnar í nóvember. Verði dómarar við þeirri kröfu verður líklega ekki hægt að rétta yfir honum vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021 og tilrauna hans til snúa úrslitum forsetakosninganna 2020. Erlent 13.2.2024 15:42