Umhverfismál Íslenskir vísindamenn reyna að binda koltvísýring við basalt Íslenskir vísindamenn eru að þróa aðferð til þess að vinna gegn gróðurhúsaáhrifunum með því að dæla koltvísýringi í jarðlög. Aðferðin felst í því að dæla koltvísýringi niður í basaltbergið á fjögur til átta hundruð metra dýpi. Innlent 22.8.2007 18:23 Friðland í Þjórsárverum verði stækkað strax Náttúruverndarsamtök Íslands skora á Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra að stækka þegar í stað friðlandið í Þjórsárverum í samræmi við tillögu Umhverfisstofnunar við undirbúning Náttúruverndaráætlunar. Innlent 25.4.2007 14:34 Aukinn forgangur hjá strætó og meiri endurvinnsla Ókeypis bílastæði fyrir vistvæna bíla, aukinn forgangur strætisvagna í umferðinni og aukin endurvinnsla eru meðal þeirra grænu skrefa sem borgaryfivöld ætla að ráðast í á næstu árum. Forsvarsmenn borgarinnar kynntu þessar hugmyndir á blaðamannafundi í dag. Innlent 11.4.2007 14:58 Afhentu ráðherrum Piparköku-Ísland Samtökin Framtíðaralandið stóð fyrir táknrænum gjörningi í morgun þegar þau afhentu bæði umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra piparköku í líki Íslands. Piparkökurnar verða til sölu nú fyrir jólin en með þeim vilja samtökin benda á að Ísland sé land stórkostlegra möguleika. Innlent 13.12.2006 11:43 VG krefst frestunar allra framkvæmda í stóriðju Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs krefst þess að ríkisstjórnin lýsi því tafarlaust yfir að öllum frekari stóriðjuframkvæmdum verði frestað. Í ályktun þingflokksins að nú fari fram kapphlaup um byggingu orkuvera fyrir erlendar álbræðslur. Fyrirheit um lágt raforkuverð og ókeypis mengunarkvóta hvetji stórfyrirtæki til að flytja framleiðslu sína til Íslands og loka verksmiðjum í löndum sem gera meiri kröfur um mengunarvarnir og selja orkuna á hærra verði. Innlent 17.11.2006 16:12 Ferjuhöfn á Bakkafjöru óhugsandi nema sandfok sé heft Landgræðslan segir, að ferjuhöfn fyrir Vestmannaeyjar í Bakkafjöru á Landeyjasandi sé óhugsandi nema það takist að hefta sandfok í nágrenninu. Stýrihópur vegna forhönnunar nýrrar ferjuhafnar hefur snúið sér til Landgræðslunnar til að fá áætlun um nauðsynlega uppgræðslu lands vegna umferðar að og frá höfninni. Sandbyljir eru afar tíðir þarna og Landgræðslan segir ljóst, að hefting sandfoks þar sé sé stórt og erfitt verkefni, en alls ekki óframkvæmanlegt. Innlent 3.11.2006 12:05 Fagnar þátttöku Ómars í stjórnmálum Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og iðnaðarráðherra, segist fagna hugsanlegri komu Ómars Ragnarssonar í stjórnmál. Jón telur samt hugmyndir Ómars um að hætta við að taka Kárahnjúkavirkjun og álverið á Reyðarfirði í notkun flokkast undir gamansemi. Innlent 22.9.2006 21:26 Haftið rofið Stærsti jarðborinn lauk hlutverki sínu í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar í morgun. Herdís Sigurgrímsdóttir var fyrir austan og fylgdist með ferlíkinu brjóta niður síðasta berghaftið. Innlent 9.9.2006 21:35 Stóriðjustefna eða ekki? Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir vel koma til greina að reisa þrjú ný álver á næstunni og greiða fyrir framkvæmdum í Helguvík. Í sumar sagði hann hins vegar að stjórnvöld hefðu í raun enga stóriðjustefnu. Innlent 7.9.2006 00:05 Vilja afrit af bréfi orkumálastjóra til ráðherra Formaður þingflokks VG hefur óskað eftir því við iðnaðarráðherra að fá í hendur afrit af bréfi eða greinargerð orkumálastjóra til ráðherra í kjölfar skýrslu Gríms Björnssonar um Kárahnjúka árið 2002. Innlent 28.8.2006 15:55 Staðfestir fyrra mat Stjórn Landsvirkjunar lýsir yfir fyllsta trausti á þá starfsmenn Landsvirkjunar og aðra sem hafa unnið að hönnun og byggingu Kárahnjúkavirkjunar og vill fullvissa landsmenn að alls öryggis hafi verið gætt við hönnun og byggingu mannvirkjanna og að engin hætta steðji að íbúum svæðisins. Stjórnin samþykkti á fundi í dag endurskoðað áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar. Það staðfestir fyrra mat og verður því haldið áfram með framkvæmdina eins og ráðgert var. Innlent 28.8.2006 15:28 Ræðir nýtt áhættumat Stjórnarfundur Landsvirkjunar hófst klukkan níu í morgun. Á fundinum verður meðal annars lagt fram nýtt áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar. Þar sem nýjar upplýsingar um jarðhita og jarðsprungur hafa komið fram þá var óskað eftir því við Landsvirkjun að lagt yrði fram nýtt áhættumat. Innlent 28.8.2006 15:10 Vilja fresta fyllingu Hálslóns Stjórn og þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skorar á ríkisstjórnina og stjórn Landsvirkjunar að fresta fyrirhugaðri fyllingu Hálslóns þar til sérstaklega skipuð matsnefnd óháðra aðila hefur verið fengin til að vinna nýtt áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar. Innlent 26.8.2006 14:00 Trúnaðarbestur milli Valgerðar og Alþingis "Það getur komið til þess að ráðherra sé ekki sætt," sagði Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Fréttavikunni á NFS. Kristinn vísaði þar til Valgerðar Sverrisdóttur, flokkssystur sinnar og fyrrverandi iðnaðarráðherra. Til umfjöllunar var greinargerð Gríms Björnssonar, jarðeðlisfræðings um Kárahnjúkavirkjun og meðferð þeirra upplýsinga sem þar koma fram. Innlent 26.8.2006 12:26 VG vill að Alþingi komi saman Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs krefst þess að bæði fyrrverandi og núverandi iðnaðarráðherrar geri hreint fyrir sínum dyrum og að Alþingi verði kallað saman ef með þarf vegna nýframkominna upplýsinga varðandi áhættu vegna Kárahnjúkavirkjunar. Þá hefur þingflokkur Frjálslynda flokksins farið fram á að iðnaðarnefnd alþingis verði kölluð saman í upphafi næstu viku til að fjalla um málið. Innlent 25.8.2006 11:20 Kárahnjúkastíflur mjög öruggar Sérfræðingar Landsvirkjunnar telja að stíflur við Kárahnjúkavirkjun séu mjög öruggar. Á blaðamannafundi sem Landsvirkjun boðaði til með sérfræðingum í dag, kom fram að sérfræðingarnir teldu litlar likur á að stífluveggir myndu leka. Innlent 22.8.2006 15:09 Styrkir Alcoa til samfélagsverkefna á Austurlandi 150 milljónir Upplýsingafulltrúi Alcoa telur hugsanlegt að þakka megi Alcoa aukinn árangur lögreglunnar á Austfjörðum í fíkniefnamálum, vegna styrks sem fyrirtækið veitti tveimur lögreglumönnum þaðan til að sækja námskeið hjá lögreglunni á Flórída í Bandaríkjunum. Innlent 22.8.2006 11:54 Opnast sprungur? Búast má við þeim möguleika að gamlar sprungur eða nýjar opnist undir Kárahnjúkastíflunni, einkum þegar lónið er fullt, og í framhaldi af því geti stíflan brostið, segir meðal annars í greinargerð Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings til forstjóra Orkustofnunar fyrir rúmum fjórum árum. Innlent 18.8.2006 12:04 Krefst rannsóknar á framgöngu lögreglu gegn mótmælendum Flokksstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs krefst þess að fram fari rannsókn á framferði lögreglunnar og meintu harðræði af hennar hálfu og aðgerðum sem falið hafa í sér óþarfa og jafnvel ólögmæta hindrun á ferðum fólks um öræfi landsins. Innlent 9.8.2006 11:14 « ‹ 91 92 93 94 ›
Íslenskir vísindamenn reyna að binda koltvísýring við basalt Íslenskir vísindamenn eru að þróa aðferð til þess að vinna gegn gróðurhúsaáhrifunum með því að dæla koltvísýringi í jarðlög. Aðferðin felst í því að dæla koltvísýringi niður í basaltbergið á fjögur til átta hundruð metra dýpi. Innlent 22.8.2007 18:23
Friðland í Þjórsárverum verði stækkað strax Náttúruverndarsamtök Íslands skora á Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra að stækka þegar í stað friðlandið í Þjórsárverum í samræmi við tillögu Umhverfisstofnunar við undirbúning Náttúruverndaráætlunar. Innlent 25.4.2007 14:34
Aukinn forgangur hjá strætó og meiri endurvinnsla Ókeypis bílastæði fyrir vistvæna bíla, aukinn forgangur strætisvagna í umferðinni og aukin endurvinnsla eru meðal þeirra grænu skrefa sem borgaryfivöld ætla að ráðast í á næstu árum. Forsvarsmenn borgarinnar kynntu þessar hugmyndir á blaðamannafundi í dag. Innlent 11.4.2007 14:58
Afhentu ráðherrum Piparköku-Ísland Samtökin Framtíðaralandið stóð fyrir táknrænum gjörningi í morgun þegar þau afhentu bæði umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra piparköku í líki Íslands. Piparkökurnar verða til sölu nú fyrir jólin en með þeim vilja samtökin benda á að Ísland sé land stórkostlegra möguleika. Innlent 13.12.2006 11:43
VG krefst frestunar allra framkvæmda í stóriðju Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs krefst þess að ríkisstjórnin lýsi því tafarlaust yfir að öllum frekari stóriðjuframkvæmdum verði frestað. Í ályktun þingflokksins að nú fari fram kapphlaup um byggingu orkuvera fyrir erlendar álbræðslur. Fyrirheit um lágt raforkuverð og ókeypis mengunarkvóta hvetji stórfyrirtæki til að flytja framleiðslu sína til Íslands og loka verksmiðjum í löndum sem gera meiri kröfur um mengunarvarnir og selja orkuna á hærra verði. Innlent 17.11.2006 16:12
Ferjuhöfn á Bakkafjöru óhugsandi nema sandfok sé heft Landgræðslan segir, að ferjuhöfn fyrir Vestmannaeyjar í Bakkafjöru á Landeyjasandi sé óhugsandi nema það takist að hefta sandfok í nágrenninu. Stýrihópur vegna forhönnunar nýrrar ferjuhafnar hefur snúið sér til Landgræðslunnar til að fá áætlun um nauðsynlega uppgræðslu lands vegna umferðar að og frá höfninni. Sandbyljir eru afar tíðir þarna og Landgræðslan segir ljóst, að hefting sandfoks þar sé sé stórt og erfitt verkefni, en alls ekki óframkvæmanlegt. Innlent 3.11.2006 12:05
Fagnar þátttöku Ómars í stjórnmálum Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og iðnaðarráðherra, segist fagna hugsanlegri komu Ómars Ragnarssonar í stjórnmál. Jón telur samt hugmyndir Ómars um að hætta við að taka Kárahnjúkavirkjun og álverið á Reyðarfirði í notkun flokkast undir gamansemi. Innlent 22.9.2006 21:26
Haftið rofið Stærsti jarðborinn lauk hlutverki sínu í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar í morgun. Herdís Sigurgrímsdóttir var fyrir austan og fylgdist með ferlíkinu brjóta niður síðasta berghaftið. Innlent 9.9.2006 21:35
Stóriðjustefna eða ekki? Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir vel koma til greina að reisa þrjú ný álver á næstunni og greiða fyrir framkvæmdum í Helguvík. Í sumar sagði hann hins vegar að stjórnvöld hefðu í raun enga stóriðjustefnu. Innlent 7.9.2006 00:05
Vilja afrit af bréfi orkumálastjóra til ráðherra Formaður þingflokks VG hefur óskað eftir því við iðnaðarráðherra að fá í hendur afrit af bréfi eða greinargerð orkumálastjóra til ráðherra í kjölfar skýrslu Gríms Björnssonar um Kárahnjúka árið 2002. Innlent 28.8.2006 15:55
Staðfestir fyrra mat Stjórn Landsvirkjunar lýsir yfir fyllsta trausti á þá starfsmenn Landsvirkjunar og aðra sem hafa unnið að hönnun og byggingu Kárahnjúkavirkjunar og vill fullvissa landsmenn að alls öryggis hafi verið gætt við hönnun og byggingu mannvirkjanna og að engin hætta steðji að íbúum svæðisins. Stjórnin samþykkti á fundi í dag endurskoðað áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar. Það staðfestir fyrra mat og verður því haldið áfram með framkvæmdina eins og ráðgert var. Innlent 28.8.2006 15:28
Ræðir nýtt áhættumat Stjórnarfundur Landsvirkjunar hófst klukkan níu í morgun. Á fundinum verður meðal annars lagt fram nýtt áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar. Þar sem nýjar upplýsingar um jarðhita og jarðsprungur hafa komið fram þá var óskað eftir því við Landsvirkjun að lagt yrði fram nýtt áhættumat. Innlent 28.8.2006 15:10
Vilja fresta fyllingu Hálslóns Stjórn og þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs skorar á ríkisstjórnina og stjórn Landsvirkjunar að fresta fyrirhugaðri fyllingu Hálslóns þar til sérstaklega skipuð matsnefnd óháðra aðila hefur verið fengin til að vinna nýtt áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar. Innlent 26.8.2006 14:00
Trúnaðarbestur milli Valgerðar og Alþingis "Það getur komið til þess að ráðherra sé ekki sætt," sagði Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Fréttavikunni á NFS. Kristinn vísaði þar til Valgerðar Sverrisdóttur, flokkssystur sinnar og fyrrverandi iðnaðarráðherra. Til umfjöllunar var greinargerð Gríms Björnssonar, jarðeðlisfræðings um Kárahnjúkavirkjun og meðferð þeirra upplýsinga sem þar koma fram. Innlent 26.8.2006 12:26
VG vill að Alþingi komi saman Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs krefst þess að bæði fyrrverandi og núverandi iðnaðarráðherrar geri hreint fyrir sínum dyrum og að Alþingi verði kallað saman ef með þarf vegna nýframkominna upplýsinga varðandi áhættu vegna Kárahnjúkavirkjunar. Þá hefur þingflokkur Frjálslynda flokksins farið fram á að iðnaðarnefnd alþingis verði kölluð saman í upphafi næstu viku til að fjalla um málið. Innlent 25.8.2006 11:20
Kárahnjúkastíflur mjög öruggar Sérfræðingar Landsvirkjunnar telja að stíflur við Kárahnjúkavirkjun séu mjög öruggar. Á blaðamannafundi sem Landsvirkjun boðaði til með sérfræðingum í dag, kom fram að sérfræðingarnir teldu litlar likur á að stífluveggir myndu leka. Innlent 22.8.2006 15:09
Styrkir Alcoa til samfélagsverkefna á Austurlandi 150 milljónir Upplýsingafulltrúi Alcoa telur hugsanlegt að þakka megi Alcoa aukinn árangur lögreglunnar á Austfjörðum í fíkniefnamálum, vegna styrks sem fyrirtækið veitti tveimur lögreglumönnum þaðan til að sækja námskeið hjá lögreglunni á Flórída í Bandaríkjunum. Innlent 22.8.2006 11:54
Opnast sprungur? Búast má við þeim möguleika að gamlar sprungur eða nýjar opnist undir Kárahnjúkastíflunni, einkum þegar lónið er fullt, og í framhaldi af því geti stíflan brostið, segir meðal annars í greinargerð Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings til forstjóra Orkustofnunar fyrir rúmum fjórum árum. Innlent 18.8.2006 12:04
Krefst rannsóknar á framgöngu lögreglu gegn mótmælendum Flokksstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs krefst þess að fram fari rannsókn á framferði lögreglunnar og meintu harðræði af hennar hálfu og aðgerðum sem falið hafa í sér óþarfa og jafnvel ólögmæta hindrun á ferðum fólks um öræfi landsins. Innlent 9.8.2006 11:14