Mygla Rifta samningi við verktaka vegna nýs Kársnesskóla Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt heimild til riftunar á verksamningi við ítalska verktakafyrirtækið Rizzani de Eccher vegna byggingar nýs Kársnesskóla. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í gærkvöldi. Innlent 10.5.2023 06:23 Segir skóla þurfa að bíða í kreppu, heimsfaraldri og góðæri Kennari við Laugarnesskóla kveðst vera langþreytt á bið eftir alvöru úrbótum á húsnæði skólans. Hún segir skóla þurfa að bíða í kreppu, heimsfaraldri og, að því er virðist, góðæri líka. Nú sé mál að linni. Innlent 9.5.2023 19:25 „Þetta gerir mig bæði öskureiða og sorgmædda“ Móðir stúlku í Laugarnesskóla er bæði öskureið og sorgmædd yfir að borgaryfirvöldum hafi ekki tekist að tryggja heilnæmt skólaumhverfi fyrir börnin sín. Dóttir hennar hafi verið líkt og langveik þegar verst lét eftir heilan vetur í skólastofu með rakaskemmdum. Innlent 8.5.2023 19:40 Starfsfólk hrökklist úr starfi og iðnaðarmenn hvergi sjáanlegir Starfsfólk í Laugarnesskóla hefur sent borgarstjóra Reykjavíkur opið bréf þar sem það krefst úrbóta á starfsaðstæðum sínum og nemanda í Laugarnesskóla. Dæmi séu um að starfsfólk hafi hætt vegna veikinda tengdum myglu. Innlent 5.5.2023 15:16 Hitafundir í Kvennó og MS vegna mögulegrar sameiningar Menntamálaráðuneytið vill kanna fýsileika þess að sameina Kvennaskólann í Reykjavík og Menntaskólann við Sund í húsnæði í Stakkahlíð. Kennurum skólanna var tilkynnt þetta á fundum síðdegis. Innlent 27.4.2023 16:25 Hvergi til nægileg þekking til að finna endanlega lausn á rakavandamálum Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra telur að ekki liggi fyrir nægileg þekking hér á landi þannig að finna megi lausnir á rakavandamálum í byggingum. Þetta kemur fram í svörum ráðherra við fyrirspurn Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur um byggingarannsóknir. Innlent 23.3.2023 06:51 Reykjavíkurborg greitt 64,8 milljónir vegna mygluúttekta frá 2018 Reykjavíkurborg hefur greitt 64,8 milljónir króna til verkfræðistofa vegna mygluúttekta frá 2018. Mest hefur verið greitt fyrir þjónustu Eflu og Mannvits, 30 milljónir annars vegar og 23,8 milljónir hins vegar. Innlent 22.3.2023 12:08 Hætta starfsemi ungmennabúða á Laugarvatni Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) hefur ákveðið að hætta starfsemi ungmennabúða á Laugarvatni. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að rekja megi ákvörðunina til myglu og rakaskemmda sem fundust í febrúar á þessu ári. Innlent 21.3.2023 11:45 Leikskólakennari í innvistarvanda Hvað felst í titlinum? Kennari sem á í innri vanda eða er það húsnæðið sem kennarinn vinnur í sem er í vanda? Þó að seinni fullyrðingin sé skilgreiningin (innvistarvandi = rakaskemmdir/mygla í húsnæði á vegum borgarinnar) þá er í raun ekki hægt að aðgreina þessar tvær skilgreiningar. Skoðun 17.3.2023 08:01 Færri leikskólabörn innrituð í Reykjavík í haust vegna framkvæmda Úthlutun leikskólaplássa í Reykjavík hefst á morgun. Einn leikskóli mun ekki taka við nýjum börnum og endurbætur á húsnæði munu hafa áhrif á innritun sex annarra leikskóla. Innlent 13.3.2023 13:51 Mygludraugabanar geti fundið myglu þar sem þeir vilja Hilmar Þór Björnsson arkitekt segir það vera vandamál að verkfræðistofan EFLA skuli bæði sjá um að greina myglu og bjóða upp á ráðgjöf við að fjarlægja hana. Sérfræðingur í myglu segir ekkert vera athugavert við það þar sem verkefnið sé flókið. Innlent 7.3.2023 14:13 Foreldrar krafist úrbóta áður en myglan greindist en talað fyrir daufum eyrum Unnið er að leiðum til að bregðast við myglu í Melaskóla og framkvæmdir gætu hafist í vor. Deildarstjóri viðhalds hjá Reykjavíkurborg segir bestu leiðina vera að endurnýja innra og ytra byrði hússins en til þess þurfi að aflétta friðunarákvæði. Formaður foreldrafélags skólans segir félagið lengi hafa kallað eftir því að brugðist verði við slæmu ástandi hússins en talað fyrir daufum eyrum. Innlent 2.3.2023 23:51 Þarf að aflétta friðun Melaskóla til að leysa mygluvanda til lengri tíma Langbesta leiðin til þess að leysa raka- og mygluvandamál í Melaskóla kallar á að friðun á ytri hjúp hússins verði aflétt. Reykjavíkurborg stefnir að því að kynna grófa áætlun um endurbætur á skólanum í vor. Innlent 2.3.2023 13:28 Mygla fannst í eldra húsnæði Melaskóla Mygla hefur greinst á nokkrum stöðum í eldra húsnæði Melaskóla. Skólastjórnendur hafa boðið til fundar með foreldrum og aðstandendum nemenda næstkomandi mánudag. Innlent 24.2.2023 12:24 Ungmennabúðum á Laugarvatni lokað vegna myglu Starfsemi Ungmennafélags Íslands á Laugarvatni leggst af á meðan ráðist verður í umfangsmiklar framkvæmdir vegna myglu og rakaskemmda sem greinst hafa í húsnæði ungmennabúða félagsins á staðnum. Innlent 21.2.2023 22:45 Rakaskemmdir í Menntaskólanum við Sund Hluti húsnæðis Menntaskólans við Sund hefur orðið fyrir rakaskemmdum og þarf að loka tveimur svæðum í húsnæðinu. Skemmdirnar fundust við rakaskimun og sýnatöku verkfræðistofunnar EFLU vegna hugsanlegrar myglu. Innlent 9.2.2023 17:40 Treysta sér ekki til að drekka kranavatn á slökkvistöðinni Starfsmenn slökkviliðs Borgarbyggðar treysta sér ekki til þess að drekka vatn úr krönum á kaffistofu slökkvistöðvarinnar. Sjáanlegar rakaskemmdir eru á svæðum á kaffistofunni en myglu má finna í skrifstofuhluta stöðvarinnar. Gert er ráð fyrir að endurnýjun á húsnæðinu ljúki árið 2025. Innlent 8.2.2023 10:51 Skólahald fellt niður til miðvikudags vegna rakaskemmda Stjórn grunnskólans Flataskóla í Garðabæ hefur ákveðið að fella niður skólahald í skólanum til næsta miðvikudags. Ástæðan er rakaskemmdir. Innlent 2.2.2023 21:01 Hluti nemenda haldi sig heima og aðrir komi með nesti vegna myglu Niðurstöður úr sýnatökum í Flataskóla í Garðabæ benda til þess að loka þurfi nokkrum rýmum í skólanum til viðbótar vegna myglu. Nemendur í þriðja og sjöunda bekk þurfa að halda sig heima næstu tvo daga og aðrir nemendur þurfa að taka með nesti vegna lokunar mötuneytis skólans. Innlent 23.1.2023 20:15 Borgin vinnur á hraða snigilsins Móðir barns í Fossvogsskóla segir foreldra langþreytta á ítrekuðum vandamálum sem komið hafa upp í skólanum síðustu misseri, nú síðast þegar gríðarlegur leki varð í glænýju þaki skólans. Borgin vinni á hraða snigilsins, sem sé óásættanlegt. Innlent 21.1.2023 21:01 Skýrslan sem hvarf Samfélag byggir á trausti. Við treystum því að hagsmunir okkar séu varðir af þeim sem kjörnir eru til ábyrgðarstarfa á opinberum vettvangi og að yfirvöld séu traustsins verð, ekki síst þegar kemur að heilsu barnanna okkar. Á haustdögum, eftir að jarðvegssveppur fannst í Miðgarði, lagði Garðabæjarlistinn fram ítarlega fyrirspurn um viðbrögð og forvarnir bæjarins við raka- og mygluskemmdum. Skoðun 17.1.2023 17:31 Enga myglu að finna þar sem hælisleitendur eru hýstir í Grindavík Enga myglu er að finna í Festi í Grindavík, þar sem Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur. Forstjóri stofnunarinnar segir mikla áskorun bíða hennar á árinu vegna fjölda flóttamanna sem stefna hingað til lands. Gríðarlegur skortur sé á húsnæði. Innlent 13.1.2023 21:45 Foreldrar bíða svara: Segja Safamýrina eins og lestarstöð fulla af iðnaðarmönnum Ellefu vikur eru nú liðnar frá því að foreldrum barna í leikskólanum Hlíð var tilkynnt að flytja þyrfti starfsemina vegna myglu. Foreldrafélag leikskólans líkir leikskólaplássi í Safamýri, þar sem hluta barnanna var komið fyrir, við kalda lestarstöð fulla af iðnaðarmönnum. Foreldrar óska eftir fundi með skóla- og frístundasviði ásamt eignaskrifstofu borgarinnar. Innlent 13.1.2023 11:18 Mikil fjölgun myglugreininga Rannsóknarstofa Náttúrufræðistofnunar Íslands á Akureyri greindi 1.532 sýni í fyrra þar sem grunur lék á að myglu væri að ræða. Þetta er 22 prósenta fjölgun frá fyrra ári. Innlent 3.1.2023 06:43 Mygla hefur greinst í um þrjátíu skólabyggingum og búist er við aukningu Mygla hefur komið upp í um þrjátíu grunn-og leikskólum í Reykjavík. Nú síðast í þremur leikskólum en færa þarf starfsemi tveggja þeirra í annað húsnæði. Sviðsstjóri segir borgina í átaki og telur að fleiri skólar bætist í hópinn. Innlent 2.1.2023 20:42 Mygla í nokkrum leikskólum til viðbótar, borgin bregðist hraðar við Mygla hefur fundist á nokkrum leikskólum í Reykjavík og bætast þeir þar með í sístækkandi hóp grunn-og leikskóla sem glíma við mygluvanda. Sviðsstjóri skóla-og frístundasviðs segir mun betur fylgst með húsnæði en áður. Ekki er ljóst hvort myglan muni hafa áhrif á starfsemi skólanna. Innlent 2.1.2023 12:01 Mygla í grunnskólum Garðabæjar: Bæjarstjórn lítur málið alvarlegum augum Mygla hefur greinst í tveimur grunnskólum í Garðabæ. Foreldrar eru ósáttir við hversu seint var brugðist við ábendingum og gagnrýna skort á upplýsingagjöf. Bæjarstjóri lofar allsherjarúttekt og endurbótum. Innlent 21.12.2022 09:35 Minnisblað varpar ljósi á óróleika og óánægju vegna Grandaborgar Leikskólastjóri Grandaborgar, Helena Jónsdóttir, hefur dregið uppsögn sína til baka en uppsögnin vakti nokkurn kurr meðal starfsmanna og foreldra. Þrír starfsmenn í 2,5 stöðugildum sögðu upp störfum í kjölfar uppsagnar leikskólastjórans. Innlent 21.12.2022 08:49 Vonast eftir jólakraftaverki vegna heilsuspillandi myglu „Ég er svona um það bil að bugast,“ segir tónlistarkonan Þórunn Antonía. Hún er í leit að íbúð fyrir sig og börnin sín tvö eftir að mygla fannst í íbúð þeirra. Lífið 14.12.2022 15:00 Faglærðir starfsmenn Grandaborgar segja upp störfum Verulegur uggur og urgur er meðal foreldra barna í Grandaborg en Helena Jónsdóttir leiksskólastjóri hefur sagt upp störfum. Hún tók við sem leikskólastjóri Grandaborgar árið 2014. Innlent 2.12.2022 12:00 « ‹ 1 2 3 4 … 4 ›
Rifta samningi við verktaka vegna nýs Kársnesskóla Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt heimild til riftunar á verksamningi við ítalska verktakafyrirtækið Rizzani de Eccher vegna byggingar nýs Kársnesskóla. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í gærkvöldi. Innlent 10.5.2023 06:23
Segir skóla þurfa að bíða í kreppu, heimsfaraldri og góðæri Kennari við Laugarnesskóla kveðst vera langþreytt á bið eftir alvöru úrbótum á húsnæði skólans. Hún segir skóla þurfa að bíða í kreppu, heimsfaraldri og, að því er virðist, góðæri líka. Nú sé mál að linni. Innlent 9.5.2023 19:25
„Þetta gerir mig bæði öskureiða og sorgmædda“ Móðir stúlku í Laugarnesskóla er bæði öskureið og sorgmædd yfir að borgaryfirvöldum hafi ekki tekist að tryggja heilnæmt skólaumhverfi fyrir börnin sín. Dóttir hennar hafi verið líkt og langveik þegar verst lét eftir heilan vetur í skólastofu með rakaskemmdum. Innlent 8.5.2023 19:40
Starfsfólk hrökklist úr starfi og iðnaðarmenn hvergi sjáanlegir Starfsfólk í Laugarnesskóla hefur sent borgarstjóra Reykjavíkur opið bréf þar sem það krefst úrbóta á starfsaðstæðum sínum og nemanda í Laugarnesskóla. Dæmi séu um að starfsfólk hafi hætt vegna veikinda tengdum myglu. Innlent 5.5.2023 15:16
Hitafundir í Kvennó og MS vegna mögulegrar sameiningar Menntamálaráðuneytið vill kanna fýsileika þess að sameina Kvennaskólann í Reykjavík og Menntaskólann við Sund í húsnæði í Stakkahlíð. Kennurum skólanna var tilkynnt þetta á fundum síðdegis. Innlent 27.4.2023 16:25
Hvergi til nægileg þekking til að finna endanlega lausn á rakavandamálum Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra telur að ekki liggi fyrir nægileg þekking hér á landi þannig að finna megi lausnir á rakavandamálum í byggingum. Þetta kemur fram í svörum ráðherra við fyrirspurn Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur um byggingarannsóknir. Innlent 23.3.2023 06:51
Reykjavíkurborg greitt 64,8 milljónir vegna mygluúttekta frá 2018 Reykjavíkurborg hefur greitt 64,8 milljónir króna til verkfræðistofa vegna mygluúttekta frá 2018. Mest hefur verið greitt fyrir þjónustu Eflu og Mannvits, 30 milljónir annars vegar og 23,8 milljónir hins vegar. Innlent 22.3.2023 12:08
Hætta starfsemi ungmennabúða á Laugarvatni Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) hefur ákveðið að hætta starfsemi ungmennabúða á Laugarvatni. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að rekja megi ákvörðunina til myglu og rakaskemmda sem fundust í febrúar á þessu ári. Innlent 21.3.2023 11:45
Leikskólakennari í innvistarvanda Hvað felst í titlinum? Kennari sem á í innri vanda eða er það húsnæðið sem kennarinn vinnur í sem er í vanda? Þó að seinni fullyrðingin sé skilgreiningin (innvistarvandi = rakaskemmdir/mygla í húsnæði á vegum borgarinnar) þá er í raun ekki hægt að aðgreina þessar tvær skilgreiningar. Skoðun 17.3.2023 08:01
Færri leikskólabörn innrituð í Reykjavík í haust vegna framkvæmda Úthlutun leikskólaplássa í Reykjavík hefst á morgun. Einn leikskóli mun ekki taka við nýjum börnum og endurbætur á húsnæði munu hafa áhrif á innritun sex annarra leikskóla. Innlent 13.3.2023 13:51
Mygludraugabanar geti fundið myglu þar sem þeir vilja Hilmar Þór Björnsson arkitekt segir það vera vandamál að verkfræðistofan EFLA skuli bæði sjá um að greina myglu og bjóða upp á ráðgjöf við að fjarlægja hana. Sérfræðingur í myglu segir ekkert vera athugavert við það þar sem verkefnið sé flókið. Innlent 7.3.2023 14:13
Foreldrar krafist úrbóta áður en myglan greindist en talað fyrir daufum eyrum Unnið er að leiðum til að bregðast við myglu í Melaskóla og framkvæmdir gætu hafist í vor. Deildarstjóri viðhalds hjá Reykjavíkurborg segir bestu leiðina vera að endurnýja innra og ytra byrði hússins en til þess þurfi að aflétta friðunarákvæði. Formaður foreldrafélags skólans segir félagið lengi hafa kallað eftir því að brugðist verði við slæmu ástandi hússins en talað fyrir daufum eyrum. Innlent 2.3.2023 23:51
Þarf að aflétta friðun Melaskóla til að leysa mygluvanda til lengri tíma Langbesta leiðin til þess að leysa raka- og mygluvandamál í Melaskóla kallar á að friðun á ytri hjúp hússins verði aflétt. Reykjavíkurborg stefnir að því að kynna grófa áætlun um endurbætur á skólanum í vor. Innlent 2.3.2023 13:28
Mygla fannst í eldra húsnæði Melaskóla Mygla hefur greinst á nokkrum stöðum í eldra húsnæði Melaskóla. Skólastjórnendur hafa boðið til fundar með foreldrum og aðstandendum nemenda næstkomandi mánudag. Innlent 24.2.2023 12:24
Ungmennabúðum á Laugarvatni lokað vegna myglu Starfsemi Ungmennafélags Íslands á Laugarvatni leggst af á meðan ráðist verður í umfangsmiklar framkvæmdir vegna myglu og rakaskemmda sem greinst hafa í húsnæði ungmennabúða félagsins á staðnum. Innlent 21.2.2023 22:45
Rakaskemmdir í Menntaskólanum við Sund Hluti húsnæðis Menntaskólans við Sund hefur orðið fyrir rakaskemmdum og þarf að loka tveimur svæðum í húsnæðinu. Skemmdirnar fundust við rakaskimun og sýnatöku verkfræðistofunnar EFLU vegna hugsanlegrar myglu. Innlent 9.2.2023 17:40
Treysta sér ekki til að drekka kranavatn á slökkvistöðinni Starfsmenn slökkviliðs Borgarbyggðar treysta sér ekki til þess að drekka vatn úr krönum á kaffistofu slökkvistöðvarinnar. Sjáanlegar rakaskemmdir eru á svæðum á kaffistofunni en myglu má finna í skrifstofuhluta stöðvarinnar. Gert er ráð fyrir að endurnýjun á húsnæðinu ljúki árið 2025. Innlent 8.2.2023 10:51
Skólahald fellt niður til miðvikudags vegna rakaskemmda Stjórn grunnskólans Flataskóla í Garðabæ hefur ákveðið að fella niður skólahald í skólanum til næsta miðvikudags. Ástæðan er rakaskemmdir. Innlent 2.2.2023 21:01
Hluti nemenda haldi sig heima og aðrir komi með nesti vegna myglu Niðurstöður úr sýnatökum í Flataskóla í Garðabæ benda til þess að loka þurfi nokkrum rýmum í skólanum til viðbótar vegna myglu. Nemendur í þriðja og sjöunda bekk þurfa að halda sig heima næstu tvo daga og aðrir nemendur þurfa að taka með nesti vegna lokunar mötuneytis skólans. Innlent 23.1.2023 20:15
Borgin vinnur á hraða snigilsins Móðir barns í Fossvogsskóla segir foreldra langþreytta á ítrekuðum vandamálum sem komið hafa upp í skólanum síðustu misseri, nú síðast þegar gríðarlegur leki varð í glænýju þaki skólans. Borgin vinni á hraða snigilsins, sem sé óásættanlegt. Innlent 21.1.2023 21:01
Skýrslan sem hvarf Samfélag byggir á trausti. Við treystum því að hagsmunir okkar séu varðir af þeim sem kjörnir eru til ábyrgðarstarfa á opinberum vettvangi og að yfirvöld séu traustsins verð, ekki síst þegar kemur að heilsu barnanna okkar. Á haustdögum, eftir að jarðvegssveppur fannst í Miðgarði, lagði Garðabæjarlistinn fram ítarlega fyrirspurn um viðbrögð og forvarnir bæjarins við raka- og mygluskemmdum. Skoðun 17.1.2023 17:31
Enga myglu að finna þar sem hælisleitendur eru hýstir í Grindavík Enga myglu er að finna í Festi í Grindavík, þar sem Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur. Forstjóri stofnunarinnar segir mikla áskorun bíða hennar á árinu vegna fjölda flóttamanna sem stefna hingað til lands. Gríðarlegur skortur sé á húsnæði. Innlent 13.1.2023 21:45
Foreldrar bíða svara: Segja Safamýrina eins og lestarstöð fulla af iðnaðarmönnum Ellefu vikur eru nú liðnar frá því að foreldrum barna í leikskólanum Hlíð var tilkynnt að flytja þyrfti starfsemina vegna myglu. Foreldrafélag leikskólans líkir leikskólaplássi í Safamýri, þar sem hluta barnanna var komið fyrir, við kalda lestarstöð fulla af iðnaðarmönnum. Foreldrar óska eftir fundi með skóla- og frístundasviði ásamt eignaskrifstofu borgarinnar. Innlent 13.1.2023 11:18
Mikil fjölgun myglugreininga Rannsóknarstofa Náttúrufræðistofnunar Íslands á Akureyri greindi 1.532 sýni í fyrra þar sem grunur lék á að myglu væri að ræða. Þetta er 22 prósenta fjölgun frá fyrra ári. Innlent 3.1.2023 06:43
Mygla hefur greinst í um þrjátíu skólabyggingum og búist er við aukningu Mygla hefur komið upp í um þrjátíu grunn-og leikskólum í Reykjavík. Nú síðast í þremur leikskólum en færa þarf starfsemi tveggja þeirra í annað húsnæði. Sviðsstjóri segir borgina í átaki og telur að fleiri skólar bætist í hópinn. Innlent 2.1.2023 20:42
Mygla í nokkrum leikskólum til viðbótar, borgin bregðist hraðar við Mygla hefur fundist á nokkrum leikskólum í Reykjavík og bætast þeir þar með í sístækkandi hóp grunn-og leikskóla sem glíma við mygluvanda. Sviðsstjóri skóla-og frístundasviðs segir mun betur fylgst með húsnæði en áður. Ekki er ljóst hvort myglan muni hafa áhrif á starfsemi skólanna. Innlent 2.1.2023 12:01
Mygla í grunnskólum Garðabæjar: Bæjarstjórn lítur málið alvarlegum augum Mygla hefur greinst í tveimur grunnskólum í Garðabæ. Foreldrar eru ósáttir við hversu seint var brugðist við ábendingum og gagnrýna skort á upplýsingagjöf. Bæjarstjóri lofar allsherjarúttekt og endurbótum. Innlent 21.12.2022 09:35
Minnisblað varpar ljósi á óróleika og óánægju vegna Grandaborgar Leikskólastjóri Grandaborgar, Helena Jónsdóttir, hefur dregið uppsögn sína til baka en uppsögnin vakti nokkurn kurr meðal starfsmanna og foreldra. Þrír starfsmenn í 2,5 stöðugildum sögðu upp störfum í kjölfar uppsagnar leikskólastjórans. Innlent 21.12.2022 08:49
Vonast eftir jólakraftaverki vegna heilsuspillandi myglu „Ég er svona um það bil að bugast,“ segir tónlistarkonan Þórunn Antonía. Hún er í leit að íbúð fyrir sig og börnin sín tvö eftir að mygla fannst í íbúð þeirra. Lífið 14.12.2022 15:00
Faglærðir starfsmenn Grandaborgar segja upp störfum Verulegur uggur og urgur er meðal foreldra barna í Grandaborg en Helena Jónsdóttir leiksskólastjóri hefur sagt upp störfum. Hún tók við sem leikskólastjóri Grandaborgar árið 2014. Innlent 2.12.2022 12:00