Íslenski körfuboltinn Ólympíuleikarnir settir í dag Tuttugustu og áttundu Ólympíuleikarnir verða setttir í Aþenu síðdegis en fyrstu nútímaleikarnir fóru fram í Grikklandi árið 1896. Guðmundur Hrafnkelsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, verður fánaberi íslenska Ólympíuliðsins þegar gengið verður inn á Ólympíuleikvanginn í kvöld. Sport 13.10.2005 14:31 Óvænt úrslit á Ólympíuleikunum Það urðu óvænt úrslit í knattspyrnukeppni Ólympíuleikanna í gær þegar japanska kvennalandsliðið sigraði Svía með einu marki gegn engu. Það urðu ekki síður óvænt úrslit í karlakeppninni þegar Ghana og Ítalía gerðu jafntefli 2 - 2. Þá unnu Írakar Portúgala, 4-2. Sport 13.10.2005 14:31 Ólympíuleikarnir í Aþenu hafnir Setningarathöfn Ólympíuleikanna hófst fyrir tæpri klukkustund. Einn af hápunktum athafnarinnar er flutningur Bjarkar Guðmundsdóttur á laginu Oceania sem var samið í tilefni leikanna. Sport 13.10.2005 14:31 Tveir Grikkir skrópuðu í lyfjapróf Nú er hafinn rannsókn í Grikklandi á því hvers vegna hlaupararnir Kostas Kenteris og Katerína Tanou mættu ekki í lyfjapróf í Aþenu í gær. Rannsókninni var reyndar frestað í tvo daga því hlaupararnir lentu í mótorhjólaslysi í gærkvöldi, nokkrum klukkustundum eftir að þau mættu ekki í boðað lyfjapróf. Alþjóða Ólympíunefndin hefur skipað sérstaka rannsóknarnefnd til að fjalla um málið. Sport 13.10.2005 14:31 Saga Ólympíuleikanna á sýningu Sýning á fornleifum sem rekja sögu Ólympíuleikanna tvö þúsund og átta hundruð ár aftur í tímann var opnuð á þjóðminjasafninu í Aþenu í dag. Þar má sjá styttur, málverk, og keramikverk sem sýna íþróttamenn til forna í íþróttum eins og glímu, hnefaleikum, kringlukasti og kappakstri á stríðsvögnum sem hestar draga. Sport 13.10.2005 14:31 Guðmundur fánaberi Íslendinga Ólympíuleikarnir verða settir á morgun í Aþenu í Grikklandi. Guðmundur Hrafnkelsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, verður fánaberi Íslendinga. Knattspyrnukeppnin á leikunum hófst í gær. Bandaríkin unnu Grikkand 3-0 og Þýskaland burstaði Kína 8-0 í kvennaflokki. Sport 13.10.2005 14:31 Ólympíudraumurinn strax úti Ólympíudraumar helsta íþróttaþjálfara Lettlands enduðu áður en hann komst til Aþenu því honum var hent í land úr flugvél fyrir drykkjulæti. Eftir að honum var vísað frá borði hvarf þjálfarinn í sólarhring en skaut svo upp kollinum, án þess að gefa nokkra skýringu á fjarveru sinni. Sport 13.10.2005 14:31 Strákarnir eru komnir til Aþenu Íslenska handboltalandsliðið er komið til Aþenu þar sem „strákarnir okkar“ hefja leik gegn heimsmeisturum Króata á laugardaginn. Það er mjög heitt í Aþenu og því munu þeir nota dagana fram að leik til að venjast loftslaginu. Sport 13.10.2005 14:30 « ‹ 79 80 81 82 ›
Ólympíuleikarnir settir í dag Tuttugustu og áttundu Ólympíuleikarnir verða setttir í Aþenu síðdegis en fyrstu nútímaleikarnir fóru fram í Grikklandi árið 1896. Guðmundur Hrafnkelsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, verður fánaberi íslenska Ólympíuliðsins þegar gengið verður inn á Ólympíuleikvanginn í kvöld. Sport 13.10.2005 14:31
Óvænt úrslit á Ólympíuleikunum Það urðu óvænt úrslit í knattspyrnukeppni Ólympíuleikanna í gær þegar japanska kvennalandsliðið sigraði Svía með einu marki gegn engu. Það urðu ekki síður óvænt úrslit í karlakeppninni þegar Ghana og Ítalía gerðu jafntefli 2 - 2. Þá unnu Írakar Portúgala, 4-2. Sport 13.10.2005 14:31
Ólympíuleikarnir í Aþenu hafnir Setningarathöfn Ólympíuleikanna hófst fyrir tæpri klukkustund. Einn af hápunktum athafnarinnar er flutningur Bjarkar Guðmundsdóttur á laginu Oceania sem var samið í tilefni leikanna. Sport 13.10.2005 14:31
Tveir Grikkir skrópuðu í lyfjapróf Nú er hafinn rannsókn í Grikklandi á því hvers vegna hlaupararnir Kostas Kenteris og Katerína Tanou mættu ekki í lyfjapróf í Aþenu í gær. Rannsókninni var reyndar frestað í tvo daga því hlaupararnir lentu í mótorhjólaslysi í gærkvöldi, nokkrum klukkustundum eftir að þau mættu ekki í boðað lyfjapróf. Alþjóða Ólympíunefndin hefur skipað sérstaka rannsóknarnefnd til að fjalla um málið. Sport 13.10.2005 14:31
Saga Ólympíuleikanna á sýningu Sýning á fornleifum sem rekja sögu Ólympíuleikanna tvö þúsund og átta hundruð ár aftur í tímann var opnuð á þjóðminjasafninu í Aþenu í dag. Þar má sjá styttur, málverk, og keramikverk sem sýna íþróttamenn til forna í íþróttum eins og glímu, hnefaleikum, kringlukasti og kappakstri á stríðsvögnum sem hestar draga. Sport 13.10.2005 14:31
Guðmundur fánaberi Íslendinga Ólympíuleikarnir verða settir á morgun í Aþenu í Grikklandi. Guðmundur Hrafnkelsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, verður fánaberi Íslendinga. Knattspyrnukeppnin á leikunum hófst í gær. Bandaríkin unnu Grikkand 3-0 og Þýskaland burstaði Kína 8-0 í kvennaflokki. Sport 13.10.2005 14:31
Ólympíudraumurinn strax úti Ólympíudraumar helsta íþróttaþjálfara Lettlands enduðu áður en hann komst til Aþenu því honum var hent í land úr flugvél fyrir drykkjulæti. Eftir að honum var vísað frá borði hvarf þjálfarinn í sólarhring en skaut svo upp kollinum, án þess að gefa nokkra skýringu á fjarveru sinni. Sport 13.10.2005 14:31
Strákarnir eru komnir til Aþenu Íslenska handboltalandsliðið er komið til Aþenu þar sem „strákarnir okkar“ hefja leik gegn heimsmeisturum Króata á laugardaginn. Það er mjög heitt í Aþenu og því munu þeir nota dagana fram að leik til að venjast loftslaginu. Sport 13.10.2005 14:30