Seðlabankinn Markaðurinn spáir enn annarri hækkun og raunvextir verði „háir lengi“ Þrátt fyrir vísbendingar um kólnun í hagkerfinu eftir miklar vaxtahækkanir þá er líklegt að peningastefnunefnd Seðlabankans vilji ná raunvöxtum enn hærra í því skyni að auka taumhaldið frekar, að mati markaðsaðila og hagfræðinga í könnun Innherja, sem spá fimmtándu vaxtahækkun bankans í röð – en mikil óvissa er hversu langt verður gengið í þetta sinn. Þeir sem vilja taka minna skref, eða 25 punkta hækkun, benda á að jákvæðir raunvextir séu ekki byrjaðir að bíta en aðrir segja nauðsynlegt að halda háum raunvöxtum lengi eigi að ná tökum á verðbólguvæntingum. Innherji 2.10.2023 09:59 Ávöxtunarkrafa ríkisbréfa tók snarpa dýfu eftir kaup erlends sjóðs Markaðsvextir á ríkisskuldabréfum lækkuðu talsvert á síðustu tveimur dögum vikunnar, sem tók sömuleiðis niður verðbólguálagið, samhliða kaupum erlends fjárfestis á óverðtryggðum bréfum og var veltan á markaði sú mesta frá því snemma árs 2020. Nýjar hagtölur sýna að verðbólguvæntingar fyrirtækja og heimila, bæði til skamms og lengri tíma, hafa lækkað talsvert sem peningastefnunefnd mun vafalaust líta til við ákvörðun vaxta í næstu viku. Innherji 30.9.2023 16:48 Spá 0,5 prósentustiga stýrivaxtahækkun Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti bankans um 0,5 prósentustig í næstu viku. Hækkunin yrði sú fimmtánda í röð og meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, færu úr 9,25% í 9,75%. Viðskipti innlent 29.9.2023 16:08 Flest „lagst gegn“ bankanum frá síðustu ákvörðun og spáir 50 punkta hækkun Á þeim ríflega mánuði sem er liðin frá því að peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði síðast vextina í 9,25 prósent þá hafa skammtímavísbendingarnar „heilt yfir lagst gegn“ bankanum, hvort sem litið er til verðbólgu, verðbólguvæntingar eða þróunar efnahagsmál, að mati greiningar Arion banka, sem spáir þess vegna að nefndin muni hækka vextina á ný um 50 punkta. Aðhald peningastefnunnar sé „enn of lítið“ og fari verðbólguvæntingar ekki að hjaðna á næstunni er sennilegt að vextirnir muni brjóta tíu prósenta múrinn áður en árið er liðið. Innherji 29.9.2023 12:01 Háir langtímavextir vestanhafs minnka áhuga fjárfesta á „framandi“ mörkuðum Þegar það kemst á meiri vissa um að vextir hafi náð hámarki og verðbólgan sé á niðurleið ætti það að skila sér í meira innfæði fjármagns í íslensk ríkisbréf, að sögn seðlabankastjóra, en háir langtímavextir í Bandaríkjunum valda því að skuldabréfafjárfestar sýna framandi mörkuðum núna lítinn áhuga. Eftir nánast ekkert innflæði í ríkisbréf um margra mánaða skeið kom erlendur sjóður inn á markaðinn í gær sem átti sinn þátt í því að ávöxtunarkrafan féll skarpt. Innherji 29.9.2023 09:42 Verðbólguálagið á markaði féll þótt bólgan hafi verið yfir spám greinenda Viðsnúningur varð á skuldabréfamarkaði þegar leið á daginn og fjárfestar sóttust eftir því að kaupa óverðtryggð ríkisskuldabréf í mikilli veltu sem varð til þess að verðbólguálagið, sem hefur hækkað mikið frá síðustu vaxtahækkun Seðlabankans, lækkaði töluvert. Skuldabréfafjárfestar virðast því sumir hverjir hafa átt von á enn verri verðbólgumælingu í morgun enda þótt hún hafi reynst hærri en greinendur gerðu ráð fyrir. Innherji 28.9.2023 18:25 Skorar á ríkisstjórnina að takast á við hinn raunverulega „brennuvarg“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gerði pistil Vilhjálms Birgissonar formann Starfsgreinasambandsins að umtalsefni í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Innlent 26.9.2023 15:34 Met slegið í verðtryggðum íbúðalánum bankanna annan mánuðinn í röð Talsvert hefur hægt á útlánavexti bankanna til atvinnulífsins á undanförnum þremur mánuðum samhliða hækkandi fjármagnskostnaði en meðalvextir óverðtryggðra fyrirtækjalána voru farnir að nálgast tólf prósent fyrr í sumar. Á sama tíma er ekkert lát á tilfærslu heimila úr óverðtryggðum íbúðalánum yfir í verðtryggð en annan mánuðinn í röð var met slegið í nýjum verðtryggðum lánum bankanna með veði í íbúð. Innherji 25.9.2023 18:16 Þurfum „stóran“ forða og segir eðlilegt að ríkið gefi reglulega út bréf erlendis Það er mikilvægt fyrir Ísland að halda úti „stórum“ gjaldeyrisvaraforða en sem hlutfall af landsframleiðslu hefur hann minnkað talsvert á skömmum tíma og er nú aðeins lítillega yfir þeim viðmiðum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur sett. Hægt væri að styrkja forðann með lántöku ríkissjóðs í erlendri mynt en eðlilegt er að íslenska ríkið gefi reglulega út slík skuldabréf, að sögn seðlabankastjóra. Innherji 25.9.2023 10:33 Fastir vextir ígildi skuldalækkunar og nú þurfi að borga til baka Prófessor í hagfræði segir að komið sé að skuldaskilum hjá þeim sem festu vexti fyrir þremur árum. Lánin hafi falið í sér skuldalækkun á kostnað lánveitenda vegna mikillar verðbólgu. Ríkisstjórnin gæti gripið inn í og aðstoðað lántakendur standi vilji til, enda hafi Seðlabankinn takmarkaðan tækjabúnað. Viðskipti innlent 24.9.2023 13:17 Lífeyrissjóðir halda svipuðum takti í gjaldeyriskaupum og í fyrra Þrátt fyrir að lífeyrissjóðir hafi aukið nokkuð við fjárfestingar sínar í erlendum gjaldmiðlum yfir sumarmánuðina samhliða auknu innflæði gjaldeyris til landsins vegna mikils fjölda ferðamanna þá styrktist gengi krónunnar stöðugt á tímabilinu. Hrein gjaldeyriskaup lífeyrissjóðanna jukust um liðlega fimmtán prósent á fyrstu átta mánuðum ársins en flestir sjóðir eru hins vegar enn talsvert fjarri innri viðmiðum um hlutfall gjaldeyriseigna af heildareignum sínum. Innherji 23.9.2023 14:59 Ragnar telur Íslendinga ófæra um að stýra efnahagsmálum Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands hefur látið í ljós þá skoðun að vert sé að taka upp nýjan gjaldmiðil. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR er honum sammála. Innlent 22.9.2023 13:58 Gríðarlegur uppgangur vinni gegn verðbólguhjöðnun Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að gríðarlegur uppgangur í íslenska hagkerfinu vinni að nokkru leyti gegn verðbólguhjöðnun. Hagvöxtur sé góður á evrópskan mælikvarða en baráttan við verðbólguna verði áfram sársaukafull. Viðskipti innlent 21.9.2023 20:18 Vilhjálmur segir Seðlabankann búinn að skíta í buxurnar Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, skrifar pistil á Facebook-síðu sína þar sem hann beinir sjónum að Seðlabankanum og stöðugum stýrivaxtahækkunum bankans. Vilhjálmur er venju fremur ómyrkur í máli og er þá mikið sagt. Innlent 21.9.2023 14:11 Ólafur segir ráðleggingar Ásgeirs aðhlátursefni Hagfræðingurinn Ólafur Margeirsson telur Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóra vera úti á túni með ráðleggingar sínar til húsnæðiseigenda og lánasýslu þeirra. Viðskipti innlent 21.9.2023 10:30 „Mun taka tíma“ að byggja upp heimamarkað fyrir ótryggðar útgáfur bankanna Fjármálakerfið hefur sýnt að það er sumpart í sterkari stöðu en margir bankar erlendis, með því að geta þolað tímabundið hátt vaxtastig og meira fjármálalegt aðhald, og vaxtaálagið á erlendar skuldabréfaútgáfur bankanna hefur lækkað skarpt að undanförnu. Seðlabankastjóri segir að horft fram á við megi hins vegar áfram búast við sveiflum í vaxtakjörum bankanna á erlendum mörkuðum en fjarvera íslenskra stofnanafjárfesta þegar kemur að kaupum á ótryggðum útgáfum stendur þeim fyrir þrifum. Innherji 21.9.2023 10:13 „Við erum á tánum“ Viðskiptabankarnir gætu búist við holskeflu viðskiptavina á næstu mánuðum vegna aukinnar greiðslubyrði fasteignalána. Seðlabankastjóri segir að verðbólga þurfi að minnka svo áfram verði hægt að bjóða upp á óverðtryggða vexti. Viðskipti innlent 20.9.2023 20:00 Ekki lengur fasteignabóla á höfuðborgarsvæðinu, segir Seðlabankinn Það er ekki lengur bóla á íbúðamarkaði á höfuðborgarsvæðinu. Dregið hefur úr misvægi á íbúðamarkaði en íbúðaverð mælist enn nokkuð hátt á flesta mælikvarða, sérstaklega í samanburði við launavísitölu, og er leiðréttingarferlinu því að öllum líkindum ekki lokið, segir Seðlabankinn. Innherji 20.9.2023 13:05 Sjálfhætt með óverðtryggða vexti ef verðbólga hjaðnar ekki Greiðslubyrði heimilanna hefur þyngst þrátt fyrir að áhrif vaxtahækkana Seðlabankans séu enn ekki komin fram af fullum þunga. Seðlabankastjóri hvetur heimilin enn á ný að huga að endurfjármögnun lána. Greiðslubyrðin eigi ekki að vera meira en 35 prósent af ráðstöfunartekjum. Viðskipti innlent 20.9.2023 12:21 Bein útsending: Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanki Íslands hefur boðað til kynningar í tilefni af yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og útkomu Fjármálastöðugleika. Viðskipti innlent 20.9.2023 09:20 Seðlabankinn segir stöðu lántakenda „á heildina litið“ vera góða Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum samhliða erfiðari fjármálaskilyrðum, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans, og með skuldabréfaútgáfum bankanna að undanförnu hefur dregið úr endurfjármögnunaráhættu þeirra í erlendri mynt. Þá virðist staða lántakenda á „heildina litið“ vera góð. Innherji 20.9.2023 09:00 Hægari efnahagsumsvif blasi við Nú blasa við hægari efnahagsumsvif samfara versnandi fjármálaskilyrðum, að því er segir í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar. Viðskipti innlent 20.9.2023 08:49 Framleiðni stendur í stað og það „mun hafa áhrif í komandi kjaraviðræður“ Hagfræðingar segja að það sé áhyggjuefni að framleiðni á mann hafi ekki vaxið undanfarin ár og benda á að sú fjölgun starfa á vinnumarkaði sem hafi orðið sé að stórum hluta lágframleiðnistörf. Þessi staða mun hafa áhrif í komandi kjaraviðræðum, að sögn aðalhagfræðings Samtaka iðnaðarins, sem varar við því að með sama framhaldi verði ekki innstæða fyrir auknum lífsgæðum. Innherji 20.9.2023 06:31 Aukinn vaxtamunur hefur ekki ýtt undir innflæði fjármagns í ríkisbréf Miklar hækkanir á vöxtum Seðlabankans vegna þrálátrar verðbólgu og mikilla verðbólguvæntinga hefur valdið því að skammtímavaxtamunur Íslands gagnvart stærstu myntsvæðum heimsins hefur sjaldan verið meiri um langt skeið. Þrátt fyrir að vaxtamunurinn hafi meðal annars liðlega tvöfaldast á móti Bandaríkjunum frá áramótum hefur það ekki haft í för með sér innflæði fjármagns í ríkisbréf svo neinu nemur. Innherji 18.9.2023 09:06 Framleiðni stendur í stað þrátt fyrir mikinn hagvöxt eftir faraldurinn Þrátt fyrir skjótan og umtalsverðan efnahagsbata eftir faraldurinn þá hefur það að sama skapi ekki skilað sér í auknum vexti í framleiðni sem hefur staðið í stað um tveggja ára skeið. Landsframleiðsla á mann um mitt þetta ár var þannig sú hin sama og á árinu 2019, segir aðalhagfræðingur Seðlabankans. Innherji 17.9.2023 12:40 „Sterk rök“ fyrir því að lánshæfismat ríkisins muni hækka frekar á næstunni Fjármála- og efnahagsráðherra tekur undir með meðal annars seðlabankastjóra og bankastjóra Arion banka um færa megi fyrir því gild rök að lánshæfismat ríkissjóðs sé lægra en við ættum skilið miðað við styrk hagkerfisins og Ísland njóti þar ekki „sannmælis“ sé litið til samanburðar við aðrar þjóðir. Fjölbreyttari útflutningsstoðir og sá viðnámsþróttur sem hagkerfið hefur sýnt eftir faraldurinn gefur væntingar um að lánshæfieinkunn ríkisins muni hækka enn frekar á næstunni. Innherji 14.9.2023 12:02 Ekki verið að „rifa seglin nærri nógu mikið“ til að ná niður verðbólgunni Þrátt fyrir að verðbólguvæntingar á skuldabréfamarkaði hafi lækkað lítillega í gær eftir framlagningu frumvarps til fjárlaga þá hefði aðhaldið sem þar birtist þurft að vera meira til að ná böndum á þenslu og þrálátri verðbólgu, að sögn skuldabréfafjárfesta. Mikil hækkun á ávöxtunarkröfu ríkisbréfa síðustu vikur er meðal annars sögð mega rekja til vantrúar markaðsaðila í garð ríkisfjármálanna, einkum eftir harða gagnrýni fjármálaráðherra á Seðlabankann fyrir að beina ábyrgðinni á verðstöðugleika á aðra en bankann sjálfan. Innherji 13.9.2023 10:14 Vilja fella niður margar takmarkanir á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða Seðlabankastjóri tekur undir með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) um að rétt sé að afnema margar af þeim magnbundnu takmörkunum sem gilda um íslensku lífeyrissjóðanna, eins og meðal annars hámark á eignarhald í einstökum félögum, samhliða auknu eftirliti með starfsemi þeirra og bættri áhættustýringu. Starfshópur sem vinnur að grænbók um lífeyrissjóðakerfið er nú með til skoðunar að leggja til slíkar breytingar. Innherji 11.9.2023 10:42 Íbúðamarkaður í hávaxtaumhverfi Það fór ekki framhjá neinum að íbúðaverð hækkaði mjög hratt á árunum 2020-2022 í kjölfar faraldursins. Á þessum þremur árum hækkaði verð á íbúðum um tæplega 50% á landinu öllu. Skoðun 8.9.2023 14:00 Gunnar vildi hækka stýrivextina minna en aðrir í nefndinni Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika og nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabankans, greiddi atkvæði gegn tillögu Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóri á fundi peningastefnunefndar í síðasta mánuði þar sem ákveðið var að hækka stýrivexi um 0,5 prósentur, úr 8,75 prósent í 9,25 prósent. Viðskipti innlent 7.9.2023 11:01 « ‹ 11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 48 ›
Markaðurinn spáir enn annarri hækkun og raunvextir verði „háir lengi“ Þrátt fyrir vísbendingar um kólnun í hagkerfinu eftir miklar vaxtahækkanir þá er líklegt að peningastefnunefnd Seðlabankans vilji ná raunvöxtum enn hærra í því skyni að auka taumhaldið frekar, að mati markaðsaðila og hagfræðinga í könnun Innherja, sem spá fimmtándu vaxtahækkun bankans í röð – en mikil óvissa er hversu langt verður gengið í þetta sinn. Þeir sem vilja taka minna skref, eða 25 punkta hækkun, benda á að jákvæðir raunvextir séu ekki byrjaðir að bíta en aðrir segja nauðsynlegt að halda háum raunvöxtum lengi eigi að ná tökum á verðbólguvæntingum. Innherji 2.10.2023 09:59
Ávöxtunarkrafa ríkisbréfa tók snarpa dýfu eftir kaup erlends sjóðs Markaðsvextir á ríkisskuldabréfum lækkuðu talsvert á síðustu tveimur dögum vikunnar, sem tók sömuleiðis niður verðbólguálagið, samhliða kaupum erlends fjárfestis á óverðtryggðum bréfum og var veltan á markaði sú mesta frá því snemma árs 2020. Nýjar hagtölur sýna að verðbólguvæntingar fyrirtækja og heimila, bæði til skamms og lengri tíma, hafa lækkað talsvert sem peningastefnunefnd mun vafalaust líta til við ákvörðun vaxta í næstu viku. Innherji 30.9.2023 16:48
Spá 0,5 prósentustiga stýrivaxtahækkun Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti bankans um 0,5 prósentustig í næstu viku. Hækkunin yrði sú fimmtánda í röð og meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, færu úr 9,25% í 9,75%. Viðskipti innlent 29.9.2023 16:08
Flest „lagst gegn“ bankanum frá síðustu ákvörðun og spáir 50 punkta hækkun Á þeim ríflega mánuði sem er liðin frá því að peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði síðast vextina í 9,25 prósent þá hafa skammtímavísbendingarnar „heilt yfir lagst gegn“ bankanum, hvort sem litið er til verðbólgu, verðbólguvæntingar eða þróunar efnahagsmál, að mati greiningar Arion banka, sem spáir þess vegna að nefndin muni hækka vextina á ný um 50 punkta. Aðhald peningastefnunnar sé „enn of lítið“ og fari verðbólguvæntingar ekki að hjaðna á næstunni er sennilegt að vextirnir muni brjóta tíu prósenta múrinn áður en árið er liðið. Innherji 29.9.2023 12:01
Háir langtímavextir vestanhafs minnka áhuga fjárfesta á „framandi“ mörkuðum Þegar það kemst á meiri vissa um að vextir hafi náð hámarki og verðbólgan sé á niðurleið ætti það að skila sér í meira innfæði fjármagns í íslensk ríkisbréf, að sögn seðlabankastjóra, en háir langtímavextir í Bandaríkjunum valda því að skuldabréfafjárfestar sýna framandi mörkuðum núna lítinn áhuga. Eftir nánast ekkert innflæði í ríkisbréf um margra mánaða skeið kom erlendur sjóður inn á markaðinn í gær sem átti sinn þátt í því að ávöxtunarkrafan féll skarpt. Innherji 29.9.2023 09:42
Verðbólguálagið á markaði féll þótt bólgan hafi verið yfir spám greinenda Viðsnúningur varð á skuldabréfamarkaði þegar leið á daginn og fjárfestar sóttust eftir því að kaupa óverðtryggð ríkisskuldabréf í mikilli veltu sem varð til þess að verðbólguálagið, sem hefur hækkað mikið frá síðustu vaxtahækkun Seðlabankans, lækkaði töluvert. Skuldabréfafjárfestar virðast því sumir hverjir hafa átt von á enn verri verðbólgumælingu í morgun enda þótt hún hafi reynst hærri en greinendur gerðu ráð fyrir. Innherji 28.9.2023 18:25
Skorar á ríkisstjórnina að takast á við hinn raunverulega „brennuvarg“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gerði pistil Vilhjálms Birgissonar formann Starfsgreinasambandsins að umtalsefni í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Innlent 26.9.2023 15:34
Met slegið í verðtryggðum íbúðalánum bankanna annan mánuðinn í röð Talsvert hefur hægt á útlánavexti bankanna til atvinnulífsins á undanförnum þremur mánuðum samhliða hækkandi fjármagnskostnaði en meðalvextir óverðtryggðra fyrirtækjalána voru farnir að nálgast tólf prósent fyrr í sumar. Á sama tíma er ekkert lát á tilfærslu heimila úr óverðtryggðum íbúðalánum yfir í verðtryggð en annan mánuðinn í röð var met slegið í nýjum verðtryggðum lánum bankanna með veði í íbúð. Innherji 25.9.2023 18:16
Þurfum „stóran“ forða og segir eðlilegt að ríkið gefi reglulega út bréf erlendis Það er mikilvægt fyrir Ísland að halda úti „stórum“ gjaldeyrisvaraforða en sem hlutfall af landsframleiðslu hefur hann minnkað talsvert á skömmum tíma og er nú aðeins lítillega yfir þeim viðmiðum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur sett. Hægt væri að styrkja forðann með lántöku ríkissjóðs í erlendri mynt en eðlilegt er að íslenska ríkið gefi reglulega út slík skuldabréf, að sögn seðlabankastjóra. Innherji 25.9.2023 10:33
Fastir vextir ígildi skuldalækkunar og nú þurfi að borga til baka Prófessor í hagfræði segir að komið sé að skuldaskilum hjá þeim sem festu vexti fyrir þremur árum. Lánin hafi falið í sér skuldalækkun á kostnað lánveitenda vegna mikillar verðbólgu. Ríkisstjórnin gæti gripið inn í og aðstoðað lántakendur standi vilji til, enda hafi Seðlabankinn takmarkaðan tækjabúnað. Viðskipti innlent 24.9.2023 13:17
Lífeyrissjóðir halda svipuðum takti í gjaldeyriskaupum og í fyrra Þrátt fyrir að lífeyrissjóðir hafi aukið nokkuð við fjárfestingar sínar í erlendum gjaldmiðlum yfir sumarmánuðina samhliða auknu innflæði gjaldeyris til landsins vegna mikils fjölda ferðamanna þá styrktist gengi krónunnar stöðugt á tímabilinu. Hrein gjaldeyriskaup lífeyrissjóðanna jukust um liðlega fimmtán prósent á fyrstu átta mánuðum ársins en flestir sjóðir eru hins vegar enn talsvert fjarri innri viðmiðum um hlutfall gjaldeyriseigna af heildareignum sínum. Innherji 23.9.2023 14:59
Ragnar telur Íslendinga ófæra um að stýra efnahagsmálum Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands hefur látið í ljós þá skoðun að vert sé að taka upp nýjan gjaldmiðil. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR er honum sammála. Innlent 22.9.2023 13:58
Gríðarlegur uppgangur vinni gegn verðbólguhjöðnun Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að gríðarlegur uppgangur í íslenska hagkerfinu vinni að nokkru leyti gegn verðbólguhjöðnun. Hagvöxtur sé góður á evrópskan mælikvarða en baráttan við verðbólguna verði áfram sársaukafull. Viðskipti innlent 21.9.2023 20:18
Vilhjálmur segir Seðlabankann búinn að skíta í buxurnar Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, skrifar pistil á Facebook-síðu sína þar sem hann beinir sjónum að Seðlabankanum og stöðugum stýrivaxtahækkunum bankans. Vilhjálmur er venju fremur ómyrkur í máli og er þá mikið sagt. Innlent 21.9.2023 14:11
Ólafur segir ráðleggingar Ásgeirs aðhlátursefni Hagfræðingurinn Ólafur Margeirsson telur Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóra vera úti á túni með ráðleggingar sínar til húsnæðiseigenda og lánasýslu þeirra. Viðskipti innlent 21.9.2023 10:30
„Mun taka tíma“ að byggja upp heimamarkað fyrir ótryggðar útgáfur bankanna Fjármálakerfið hefur sýnt að það er sumpart í sterkari stöðu en margir bankar erlendis, með því að geta þolað tímabundið hátt vaxtastig og meira fjármálalegt aðhald, og vaxtaálagið á erlendar skuldabréfaútgáfur bankanna hefur lækkað skarpt að undanförnu. Seðlabankastjóri segir að horft fram á við megi hins vegar áfram búast við sveiflum í vaxtakjörum bankanna á erlendum mörkuðum en fjarvera íslenskra stofnanafjárfesta þegar kemur að kaupum á ótryggðum útgáfum stendur þeim fyrir þrifum. Innherji 21.9.2023 10:13
„Við erum á tánum“ Viðskiptabankarnir gætu búist við holskeflu viðskiptavina á næstu mánuðum vegna aukinnar greiðslubyrði fasteignalána. Seðlabankastjóri segir að verðbólga þurfi að minnka svo áfram verði hægt að bjóða upp á óverðtryggða vexti. Viðskipti innlent 20.9.2023 20:00
Ekki lengur fasteignabóla á höfuðborgarsvæðinu, segir Seðlabankinn Það er ekki lengur bóla á íbúðamarkaði á höfuðborgarsvæðinu. Dregið hefur úr misvægi á íbúðamarkaði en íbúðaverð mælist enn nokkuð hátt á flesta mælikvarða, sérstaklega í samanburði við launavísitölu, og er leiðréttingarferlinu því að öllum líkindum ekki lokið, segir Seðlabankinn. Innherji 20.9.2023 13:05
Sjálfhætt með óverðtryggða vexti ef verðbólga hjaðnar ekki Greiðslubyrði heimilanna hefur þyngst þrátt fyrir að áhrif vaxtahækkana Seðlabankans séu enn ekki komin fram af fullum þunga. Seðlabankastjóri hvetur heimilin enn á ný að huga að endurfjármögnun lána. Greiðslubyrðin eigi ekki að vera meira en 35 prósent af ráðstöfunartekjum. Viðskipti innlent 20.9.2023 12:21
Bein útsending: Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanki Íslands hefur boðað til kynningar í tilefni af yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar og útkomu Fjármálastöðugleika. Viðskipti innlent 20.9.2023 09:20
Seðlabankinn segir stöðu lántakenda „á heildina litið“ vera góða Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum samhliða erfiðari fjármálaskilyrðum, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans, og með skuldabréfaútgáfum bankanna að undanförnu hefur dregið úr endurfjármögnunaráhættu þeirra í erlendri mynt. Þá virðist staða lántakenda á „heildina litið“ vera góð. Innherji 20.9.2023 09:00
Hægari efnahagsumsvif blasi við Nú blasa við hægari efnahagsumsvif samfara versnandi fjármálaskilyrðum, að því er segir í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar. Viðskipti innlent 20.9.2023 08:49
Framleiðni stendur í stað og það „mun hafa áhrif í komandi kjaraviðræður“ Hagfræðingar segja að það sé áhyggjuefni að framleiðni á mann hafi ekki vaxið undanfarin ár og benda á að sú fjölgun starfa á vinnumarkaði sem hafi orðið sé að stórum hluta lágframleiðnistörf. Þessi staða mun hafa áhrif í komandi kjaraviðræðum, að sögn aðalhagfræðings Samtaka iðnaðarins, sem varar við því að með sama framhaldi verði ekki innstæða fyrir auknum lífsgæðum. Innherji 20.9.2023 06:31
Aukinn vaxtamunur hefur ekki ýtt undir innflæði fjármagns í ríkisbréf Miklar hækkanir á vöxtum Seðlabankans vegna þrálátrar verðbólgu og mikilla verðbólguvæntinga hefur valdið því að skammtímavaxtamunur Íslands gagnvart stærstu myntsvæðum heimsins hefur sjaldan verið meiri um langt skeið. Þrátt fyrir að vaxtamunurinn hafi meðal annars liðlega tvöfaldast á móti Bandaríkjunum frá áramótum hefur það ekki haft í för með sér innflæði fjármagns í ríkisbréf svo neinu nemur. Innherji 18.9.2023 09:06
Framleiðni stendur í stað þrátt fyrir mikinn hagvöxt eftir faraldurinn Þrátt fyrir skjótan og umtalsverðan efnahagsbata eftir faraldurinn þá hefur það að sama skapi ekki skilað sér í auknum vexti í framleiðni sem hefur staðið í stað um tveggja ára skeið. Landsframleiðsla á mann um mitt þetta ár var þannig sú hin sama og á árinu 2019, segir aðalhagfræðingur Seðlabankans. Innherji 17.9.2023 12:40
„Sterk rök“ fyrir því að lánshæfismat ríkisins muni hækka frekar á næstunni Fjármála- og efnahagsráðherra tekur undir með meðal annars seðlabankastjóra og bankastjóra Arion banka um færa megi fyrir því gild rök að lánshæfismat ríkissjóðs sé lægra en við ættum skilið miðað við styrk hagkerfisins og Ísland njóti þar ekki „sannmælis“ sé litið til samanburðar við aðrar þjóðir. Fjölbreyttari útflutningsstoðir og sá viðnámsþróttur sem hagkerfið hefur sýnt eftir faraldurinn gefur væntingar um að lánshæfieinkunn ríkisins muni hækka enn frekar á næstunni. Innherji 14.9.2023 12:02
Ekki verið að „rifa seglin nærri nógu mikið“ til að ná niður verðbólgunni Þrátt fyrir að verðbólguvæntingar á skuldabréfamarkaði hafi lækkað lítillega í gær eftir framlagningu frumvarps til fjárlaga þá hefði aðhaldið sem þar birtist þurft að vera meira til að ná böndum á þenslu og þrálátri verðbólgu, að sögn skuldabréfafjárfesta. Mikil hækkun á ávöxtunarkröfu ríkisbréfa síðustu vikur er meðal annars sögð mega rekja til vantrúar markaðsaðila í garð ríkisfjármálanna, einkum eftir harða gagnrýni fjármálaráðherra á Seðlabankann fyrir að beina ábyrgðinni á verðstöðugleika á aðra en bankann sjálfan. Innherji 13.9.2023 10:14
Vilja fella niður margar takmarkanir á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða Seðlabankastjóri tekur undir með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) um að rétt sé að afnema margar af þeim magnbundnu takmörkunum sem gilda um íslensku lífeyrissjóðanna, eins og meðal annars hámark á eignarhald í einstökum félögum, samhliða auknu eftirliti með starfsemi þeirra og bættri áhættustýringu. Starfshópur sem vinnur að grænbók um lífeyrissjóðakerfið er nú með til skoðunar að leggja til slíkar breytingar. Innherji 11.9.2023 10:42
Íbúðamarkaður í hávaxtaumhverfi Það fór ekki framhjá neinum að íbúðaverð hækkaði mjög hratt á árunum 2020-2022 í kjölfar faraldursins. Á þessum þremur árum hækkaði verð á íbúðum um tæplega 50% á landinu öllu. Skoðun 8.9.2023 14:00
Gunnar vildi hækka stýrivextina minna en aðrir í nefndinni Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika og nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabankans, greiddi atkvæði gegn tillögu Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóri á fundi peningastefnunefndar í síðasta mánuði þar sem ákveðið var að hækka stýrivexi um 0,5 prósentur, úr 8,75 prósent í 9,25 prósent. Viðskipti innlent 7.9.2023 11:01