Dýr Tíu létust í hákarlaárásum í fyrra Tíu létust í kjölfar hákarlaárása árið 2023 en aðeins fimm árið á undan. Alls voru 69 bitnir í árásum í óvæntum árásum, ívið fleiri á brimbretti en að synda eða vaða. Erlent 6.2.2024 10:21 Mannýgir flóðhestar Escobars valda usla Afkomendur fjögurra flóðhesta sem voru í eigu fíkniefnabarónsins Pablo heitins Escobar hafa verið að valda usla í Kolumbíu undanfarið. Þeir eru sagðir mannýgir. Erlent 5.2.2024 23:35 Málið sem skekið hefur Skeifuna Hagkaup hefur ekki rekið frægasta kött landsins út á gaddinn, að sögn framkvæmdastjóra. Kettinum er frjálst að dvelja í hlýju anddyrinu þó að heilbrigðiseftirlitið hafi úthýst honum úr búðinni sjálfri. Við kynntum okkur „Stóra Diego-málið“ sem skekið hefur Skeifuna undanfarna daga. Lífið 3.2.2024 10:46 Fékk SMS í tæka tíð og þarf að kaupa hund Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins þarf að standa við loforð sem hann gaf eiginkonu sinni og dóttur í Kryddsíldinni og kaupa hund á heimilið þar sem þær stóðu við sinn hluta áskorunar. Hann segist örlítið móðgaður yfir því hvað SMS barst seint frá mæðgunum sem er til marks um að þær hafi ekki horft á þáttinn. Lífið 2.2.2024 13:53 Meint njósnadúfa frá Kína hreinsuð af sök Yfirvöld í Indlandi slepptu á þriðjudaginn dúfu eftir að hún hafði verið í haldi í átta mánuði vegna gruns um að hún væri í raun kínverskur njósnari. Eftir ítarlega rannsókn hefur komið í ljós að dúfan slapp frá eigendum sínum í Taívan. Erlent 1.2.2024 23:04 Undrun og reiði meðal vina Diego Einn frægasti köttur landsins, kötturinn Diego, má ekki lengur leggja sig inni í verslun Hagkaupa í Skeifunni vegna reglna heilbrigðiseftirlitsins en er þó velkominn í anddyrið. Vinir Diego á Facebook eru sárir vegna málsins en kötturinn er þó enn velkominn í A4. Lífið 1.2.2024 10:42 Rebbi lifði hrottalegt banatilræðið af Óhug sló á marga á Instagram þegar snjóruðningsmaður vestur á fjörðum sýndi þegar hann ók yfir ref nokkurn á brú. Refurinn komst ekki undan. Viðkomandi hefur verið tekinn á teppið af Vegagerðinni. Innlent 31.1.2024 14:58 Svín drekka bjór af bestu lyst Svínum þykir bjór góður og er hann meðal annars notaður til að örva mjólkurframleiðslu gyltna þegar þær eru með grísi á spena. Innlent 30.1.2024 20:30 Óttast að um sé að ræða fuglaflensu í fyrsta sinn Í hið minnsta ein mörgæs á Suðurskautslandi er talin hafa drepist úr fuglaflensu. Fáist það staðfest er um að ræða í fyrsta sinn sem mörgæs í heimsálfunni drepst úr veirunni. Um var að ræða kóngamörgæs. Erlent 29.1.2024 16:06 Hærri líkur á slysum hjá ógeldum fressum Geldingar-og ófrjósemisaðgerðir katta hafa ýmsa heilsufarslega kosti, aðra en að sporna gegn offjölgun. Dýraspítalinn í Víðidal framlengdi tilboðsdaga á slíkum aðgerðum vegna gífurlegrar eftirspurnar. Innlent 29.1.2024 13:18 Gætu bjargað nashyrningum með hjálp staðgöngumóður Vel gæti verið að vísindamönnum takist að bjarga tegund hvítra nashyrninga ef tæknifrjóvgunartilraunir með aðstoð staðgöngumóður takast. Aðeins tvö kvendýr eru eftir í heiminum og því brýnt að koma tegundinni til bjargar. Erlent 28.1.2024 21:00 Landsmenn hvattir til að telja fugla í görðum sínum Landsmenn eru hvattir til að telja fugla í görðum sínum um helgina en Garðfuglahelgi Fuglaverndar fer einmitt fram í dag og á morgun. Eingöngu á að telja þá fugla, sem eru í garðinum, ekki þá sem fljúga yfir. Innlent 27.1.2024 13:03 Nefndin klofnaði og draumur um norskar hænur í þéttbýli úti Matvælaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Matvælastofnunar að hafna beiðni manns sem sótti um leyfi til að flytja inn sextíu frjó hænsnaegg frá norska genabankanum sem henta fyrir smábúskap sem og bakgarðshænur í þéttbýli. Erfðanefnd landbúnaðarins klofnaði í málinu en meirihlutinn taldi íslensku landnámshænunni stafa ógn af norskum stofnum. Innlent 25.1.2024 12:00 Fundu lungnaorm í innfluttum hundi Lungnaormur greindist í sýni úr hundi sem fluttur var til landsins frá Svíþjóð á síðasta ári. Engin snýkjudýr greindust í hundinum sem tekin voru á meðan hann var í einangrun. Ormurinn virðist ekki hafa smitast í önnur dýr á heimilinu. Innlent 24.1.2024 16:35 Óvenju margir dauðir auðnutittlingar Óvenju margar ábendingar hafa borist Matvælastofnun að undanförnu vegna dauðra auðnutittlinga. Ábendingarnar hafa borist af öllu landinu frá fólki sem reglulega gefur smáfuglum að éta. Innlent 24.1.2024 15:57 Uppgötvuðu tugi nýrra sjávarlífvera við Tenerife Hópur vísindamanna hefur uppgötvað tugi nýrra sjávarlífvera undan ströndum Tenerife. Fjöldi nýrra tegunda kom vísindamönnunum á óvart. Erlent 21.1.2024 23:38 Hestar háma í sig jólatré í Þorlákshöfn Það eru engu líkara en hestar í Þorlákshöfn séu meðvitaðir um hvað sé góð endurnýting því margir þeirra éta jólatré með bestu lyst. Innlent 21.1.2024 20:30 Geldingar- og ófrjósemisaðgerðir á kostakjörum Vegna mikils fjölda heimilislausra katta í athvörfum landsins, hyggst Dýraspítalinn í Víðidal bjóða upp á „geldingar- og ófrjósemisaðgerðadaga“ í næstu viku. Markmiðið er að reyna að sporna við fjölgun katta. Innlent 20.1.2024 15:45 Hreindýrakvótinn minni en á síðasta ári Heimilt verður að veiða átta hundruð hreindýr á þessu ári, rúmlega hundrað færri en á því síðasta. Innlent 19.1.2024 10:27 Hnúfubakur í Hafnarfjarðarhöfn Hnúfubakur hefur spókað sig um í Hafnarfjarðarhöfn í dag. Hvalurinn hefur vakið mikla athygli enda ekki á hverjum degi sem slíkur sést í höfninni. Innlent 18.1.2024 15:27 Þrír kiðlingar fæddir – Vorstemming í sveitinni Þrír kiðlingar voru að koma í heiminn á bæ á Skeiðunum en einn þeirra fæddist á gos daginn í Grindavík og fékk að sjálfsögðu nafnið Gosa því hún er huðna. Þá eru hinir tveir kiðlingarnir með nöfn handboltastráka í íslenska landsliðinu. Lífið 17.1.2024 22:01 Kindurnar fegnar að sjá Sigrúnu Sigrún Eggertsdóttir frístundabóndi fór í dag til Grindavíkur og sótti fé sitt, þrjátíu kindur alls. Þær voru fengnar að sjá Sigrúnu. Innlent 16.1.2024 16:35 Elsti hundur sögunnar sviptur titlinum Þegar portúgalski fjárhundurinn Bobi drapst í október á síðasta ári var hann talinn vera elsti hundur sögunnar, 31 árs gamall. Nú vilja dýralæknar meina að hann hafi alls ekki verið svo gamall. Hann hefur því verið sviptur titlinum tímabundið. Erlent 16.1.2024 14:34 Á leið inn í Grindavík að sækja kindur Sigrún Eggertsdóttir, fjárbóndi er nú á leið inn í Grindavík í fylgd björgunarsveitarfólks til að sækja kindurnar sínar. Kindurnar hafa verið án matar frá því á laugardag og óljóst um ástandið á þeim. Innlent 16.1.2024 14:23 32 naggrísum komið fyrir á fósturheimili Sjálfboðaliðar hjá Dýrahjálp Íslands forðuðu 32 naggrísum frá aflífun með því að koma þeim úr óupphituðu hesthúsi og yfir á fósturheimili. Þeir leita nú að framtíðarheimili. Innlent 15.1.2024 10:10 Fjöldadauði sela rakinn til H5N1 Staðfest hefur verið að fjöldadauða sela og sæfíla í suður-Atlantshafi á eyjunni Suður-Gergíu má rekja til þess að þeir smituðust af H5N1. Erlent 11.1.2024 09:00 Íbúa í kjallara gert að stöðva stöðuga kattaumferð inn um glugga Óheimilt er fyrir íbúa í kjallara í fjölbýlishúsi í Reykjavík, sem lengi hefur hleypt köttum sem hann á ekkert í inn um glugga í íbúð sinni, að taka á móti köttum. Innlent 11.1.2024 08:47 Riðutilfelli á sjö hundruð kinda búi Matvælastofnun hefur borist tilkynning frá tilraunastöð HÍ í meinafræði þess efnis að riða hafi greinst í sláturfé í Blöndudal í Húna og Skagahólfi. Innlent 10.1.2024 18:28 Lét aflífa hvolpinn og fær engar skaðabætur Hundaræktendur þurfa ekki að endurgreiða konu sem aflífaði veikan hvolp sem hún hafði keypt af þeim. Þar vó þungt að hún ákvað að láta aflífa hvolpinn áður en ítarleg skoðun gat farið fram á honum. Innlent 10.1.2024 16:00 Velferð dýra framar atvinnufrelsi til pyntinga Álit umboðsmanns Alþingis um frestun hvalveiða liggur nú fyrir. Umboðsmaður metur svo að útgáfa reglugerðar hafi ekki, miðað við þær aðstæður sem uppi voru, samrýmst kröfum um meðalhóf eins og þær leiða af almennum reglum stjórnsýsluréttar. Skoðun 9.1.2024 15:01 « ‹ 5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 68 ›
Tíu létust í hákarlaárásum í fyrra Tíu létust í kjölfar hákarlaárása árið 2023 en aðeins fimm árið á undan. Alls voru 69 bitnir í árásum í óvæntum árásum, ívið fleiri á brimbretti en að synda eða vaða. Erlent 6.2.2024 10:21
Mannýgir flóðhestar Escobars valda usla Afkomendur fjögurra flóðhesta sem voru í eigu fíkniefnabarónsins Pablo heitins Escobar hafa verið að valda usla í Kolumbíu undanfarið. Þeir eru sagðir mannýgir. Erlent 5.2.2024 23:35
Málið sem skekið hefur Skeifuna Hagkaup hefur ekki rekið frægasta kött landsins út á gaddinn, að sögn framkvæmdastjóra. Kettinum er frjálst að dvelja í hlýju anddyrinu þó að heilbrigðiseftirlitið hafi úthýst honum úr búðinni sjálfri. Við kynntum okkur „Stóra Diego-málið“ sem skekið hefur Skeifuna undanfarna daga. Lífið 3.2.2024 10:46
Fékk SMS í tæka tíð og þarf að kaupa hund Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins þarf að standa við loforð sem hann gaf eiginkonu sinni og dóttur í Kryddsíldinni og kaupa hund á heimilið þar sem þær stóðu við sinn hluta áskorunar. Hann segist örlítið móðgaður yfir því hvað SMS barst seint frá mæðgunum sem er til marks um að þær hafi ekki horft á þáttinn. Lífið 2.2.2024 13:53
Meint njósnadúfa frá Kína hreinsuð af sök Yfirvöld í Indlandi slepptu á þriðjudaginn dúfu eftir að hún hafði verið í haldi í átta mánuði vegna gruns um að hún væri í raun kínverskur njósnari. Eftir ítarlega rannsókn hefur komið í ljós að dúfan slapp frá eigendum sínum í Taívan. Erlent 1.2.2024 23:04
Undrun og reiði meðal vina Diego Einn frægasti köttur landsins, kötturinn Diego, má ekki lengur leggja sig inni í verslun Hagkaupa í Skeifunni vegna reglna heilbrigðiseftirlitsins en er þó velkominn í anddyrið. Vinir Diego á Facebook eru sárir vegna málsins en kötturinn er þó enn velkominn í A4. Lífið 1.2.2024 10:42
Rebbi lifði hrottalegt banatilræðið af Óhug sló á marga á Instagram þegar snjóruðningsmaður vestur á fjörðum sýndi þegar hann ók yfir ref nokkurn á brú. Refurinn komst ekki undan. Viðkomandi hefur verið tekinn á teppið af Vegagerðinni. Innlent 31.1.2024 14:58
Svín drekka bjór af bestu lyst Svínum þykir bjór góður og er hann meðal annars notaður til að örva mjólkurframleiðslu gyltna þegar þær eru með grísi á spena. Innlent 30.1.2024 20:30
Óttast að um sé að ræða fuglaflensu í fyrsta sinn Í hið minnsta ein mörgæs á Suðurskautslandi er talin hafa drepist úr fuglaflensu. Fáist það staðfest er um að ræða í fyrsta sinn sem mörgæs í heimsálfunni drepst úr veirunni. Um var að ræða kóngamörgæs. Erlent 29.1.2024 16:06
Hærri líkur á slysum hjá ógeldum fressum Geldingar-og ófrjósemisaðgerðir katta hafa ýmsa heilsufarslega kosti, aðra en að sporna gegn offjölgun. Dýraspítalinn í Víðidal framlengdi tilboðsdaga á slíkum aðgerðum vegna gífurlegrar eftirspurnar. Innlent 29.1.2024 13:18
Gætu bjargað nashyrningum með hjálp staðgöngumóður Vel gæti verið að vísindamönnum takist að bjarga tegund hvítra nashyrninga ef tæknifrjóvgunartilraunir með aðstoð staðgöngumóður takast. Aðeins tvö kvendýr eru eftir í heiminum og því brýnt að koma tegundinni til bjargar. Erlent 28.1.2024 21:00
Landsmenn hvattir til að telja fugla í görðum sínum Landsmenn eru hvattir til að telja fugla í görðum sínum um helgina en Garðfuglahelgi Fuglaverndar fer einmitt fram í dag og á morgun. Eingöngu á að telja þá fugla, sem eru í garðinum, ekki þá sem fljúga yfir. Innlent 27.1.2024 13:03
Nefndin klofnaði og draumur um norskar hænur í þéttbýli úti Matvælaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Matvælastofnunar að hafna beiðni manns sem sótti um leyfi til að flytja inn sextíu frjó hænsnaegg frá norska genabankanum sem henta fyrir smábúskap sem og bakgarðshænur í þéttbýli. Erfðanefnd landbúnaðarins klofnaði í málinu en meirihlutinn taldi íslensku landnámshænunni stafa ógn af norskum stofnum. Innlent 25.1.2024 12:00
Fundu lungnaorm í innfluttum hundi Lungnaormur greindist í sýni úr hundi sem fluttur var til landsins frá Svíþjóð á síðasta ári. Engin snýkjudýr greindust í hundinum sem tekin voru á meðan hann var í einangrun. Ormurinn virðist ekki hafa smitast í önnur dýr á heimilinu. Innlent 24.1.2024 16:35
Óvenju margir dauðir auðnutittlingar Óvenju margar ábendingar hafa borist Matvælastofnun að undanförnu vegna dauðra auðnutittlinga. Ábendingarnar hafa borist af öllu landinu frá fólki sem reglulega gefur smáfuglum að éta. Innlent 24.1.2024 15:57
Uppgötvuðu tugi nýrra sjávarlífvera við Tenerife Hópur vísindamanna hefur uppgötvað tugi nýrra sjávarlífvera undan ströndum Tenerife. Fjöldi nýrra tegunda kom vísindamönnunum á óvart. Erlent 21.1.2024 23:38
Hestar háma í sig jólatré í Þorlákshöfn Það eru engu líkara en hestar í Þorlákshöfn séu meðvitaðir um hvað sé góð endurnýting því margir þeirra éta jólatré með bestu lyst. Innlent 21.1.2024 20:30
Geldingar- og ófrjósemisaðgerðir á kostakjörum Vegna mikils fjölda heimilislausra katta í athvörfum landsins, hyggst Dýraspítalinn í Víðidal bjóða upp á „geldingar- og ófrjósemisaðgerðadaga“ í næstu viku. Markmiðið er að reyna að sporna við fjölgun katta. Innlent 20.1.2024 15:45
Hreindýrakvótinn minni en á síðasta ári Heimilt verður að veiða átta hundruð hreindýr á þessu ári, rúmlega hundrað færri en á því síðasta. Innlent 19.1.2024 10:27
Hnúfubakur í Hafnarfjarðarhöfn Hnúfubakur hefur spókað sig um í Hafnarfjarðarhöfn í dag. Hvalurinn hefur vakið mikla athygli enda ekki á hverjum degi sem slíkur sést í höfninni. Innlent 18.1.2024 15:27
Þrír kiðlingar fæddir – Vorstemming í sveitinni Þrír kiðlingar voru að koma í heiminn á bæ á Skeiðunum en einn þeirra fæddist á gos daginn í Grindavík og fékk að sjálfsögðu nafnið Gosa því hún er huðna. Þá eru hinir tveir kiðlingarnir með nöfn handboltastráka í íslenska landsliðinu. Lífið 17.1.2024 22:01
Kindurnar fegnar að sjá Sigrúnu Sigrún Eggertsdóttir frístundabóndi fór í dag til Grindavíkur og sótti fé sitt, þrjátíu kindur alls. Þær voru fengnar að sjá Sigrúnu. Innlent 16.1.2024 16:35
Elsti hundur sögunnar sviptur titlinum Þegar portúgalski fjárhundurinn Bobi drapst í október á síðasta ári var hann talinn vera elsti hundur sögunnar, 31 árs gamall. Nú vilja dýralæknar meina að hann hafi alls ekki verið svo gamall. Hann hefur því verið sviptur titlinum tímabundið. Erlent 16.1.2024 14:34
Á leið inn í Grindavík að sækja kindur Sigrún Eggertsdóttir, fjárbóndi er nú á leið inn í Grindavík í fylgd björgunarsveitarfólks til að sækja kindurnar sínar. Kindurnar hafa verið án matar frá því á laugardag og óljóst um ástandið á þeim. Innlent 16.1.2024 14:23
32 naggrísum komið fyrir á fósturheimili Sjálfboðaliðar hjá Dýrahjálp Íslands forðuðu 32 naggrísum frá aflífun með því að koma þeim úr óupphituðu hesthúsi og yfir á fósturheimili. Þeir leita nú að framtíðarheimili. Innlent 15.1.2024 10:10
Fjöldadauði sela rakinn til H5N1 Staðfest hefur verið að fjöldadauða sela og sæfíla í suður-Atlantshafi á eyjunni Suður-Gergíu má rekja til þess að þeir smituðust af H5N1. Erlent 11.1.2024 09:00
Íbúa í kjallara gert að stöðva stöðuga kattaumferð inn um glugga Óheimilt er fyrir íbúa í kjallara í fjölbýlishúsi í Reykjavík, sem lengi hefur hleypt köttum sem hann á ekkert í inn um glugga í íbúð sinni, að taka á móti köttum. Innlent 11.1.2024 08:47
Riðutilfelli á sjö hundruð kinda búi Matvælastofnun hefur borist tilkynning frá tilraunastöð HÍ í meinafræði þess efnis að riða hafi greinst í sláturfé í Blöndudal í Húna og Skagahólfi. Innlent 10.1.2024 18:28
Lét aflífa hvolpinn og fær engar skaðabætur Hundaræktendur þurfa ekki að endurgreiða konu sem aflífaði veikan hvolp sem hún hafði keypt af þeim. Þar vó þungt að hún ákvað að láta aflífa hvolpinn áður en ítarleg skoðun gat farið fram á honum. Innlent 10.1.2024 16:00
Velferð dýra framar atvinnufrelsi til pyntinga Álit umboðsmanns Alþingis um frestun hvalveiða liggur nú fyrir. Umboðsmaður metur svo að útgáfa reglugerðar hafi ekki, miðað við þær aðstæður sem uppi voru, samrýmst kröfum um meðalhóf eins og þær leiða af almennum reglum stjórnsýsluréttar. Skoðun 9.1.2024 15:01