Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Jane Goodall, stofnandi Jane Goodall Institute og sérstakur sendiherra Sameinuðu þjóðanna fyrir friði, hvetur forsætisráðherra, Bjarna Benediktsson, og forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, til að beita sér gegn hvalveiðum. Það gerir Goodall í aðsendri grein á Vísi í dag. 25.11.2024 13:04
Sjúkratryggingar auglýsa eftir rekstraraðilum hjúkrunarheimila Sjúkratryggingar Íslands hafa auglýst eftir rekstraraðilum sem hafa áhuga á að taka að sér rekstur á 80 til 150 rýma hjúkrunarheimilum. Í tilkynningu segir að um sé að ræða minnst þrjú ný hjúkrunarheimili sem eigi að taka til starfa á næstu árum. Þau verða staðsett á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Ekki liggur fyrir að svo stöddu nákvæmur fjöldi rýma eða nákvæm staðsetning heimilanna. 25.11.2024 11:32
Góður árangur af hraunkælingu við varnargarðana Helgi Hjörleifsson, aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og hraunkælingarstjóri, segir hraunkælinguna ganga vel við varnargarðana í Svartsengi. Það sé nægt vatn til eins og stendur. Tvær af fjórum dælum eru í gangi. 25.11.2024 11:10
Óvæntar niðurstöður í fyrri umferð kosninga í Rúmeníu Þjóðernissinninn Calin Georgescu leiðir óvænt eftir fyrri umferð forsetakosninga í Rúmeníu. Georgescu er hægrisinnaður og styður Rússland. Eftir að 96 prósent atkvæða hafa verið talin leiðir Georgescu með 22 prósent allra atkvæða. 25.11.2024 09:22
Virkni í þremur gígum og mest í miðjunni Virkni í eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina er enn nokkuð mikil. Nú er virkni í þremur gígum en á sama tíma hefur nokkuð hægt á framrás hrauntungu við Svartsengi. Í nýrri uppfærslu Veðurstofunnar segir að frá því í gær hafi þrjú svæði verið virk á gossprungunni á milli Stóra-Skógfells og Sýlingarfells. 22.11.2024 15:39
Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Framsóknarflokkurinn mælist nú með þriggja prósenta fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu, Borgarvitanum. Yrði gengið til kosninga í sveitarstjórn í dag myndi flokkur borgarstjóra því ekki ná inn í borgarstjórn. Flokkurinn fékk 18,9 prósenta fylgi í kosningunum árið 2022. 22.11.2024 13:17
Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir allt kapp lagt á það að vernda innviði á Reykjanesi. Fyllt hafi verið í skarð í varnargarð við Bláa lónið í gær en enn sé ekki þörf á að stækka varnargarðinn, það verði metið síðar. Einnig er unnið að því að skoða hvort hægt sé að gera nýjar akstursleiðir að Bláa lóninu og Northern Light inn en vegirnir að því eru undir hrauni. 22.11.2024 11:09
Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Tveir bandarískir listamann hafa framkvæmd gjörning við höggverk Nínu Sæmundsson í MacArthur almenningsgarðinum í Los Angeles. Listamennirnir hafa bætt við höggverkið, sem er af guðinum Prómeþeifi, pípu til að reykja vímuefni með. 21.11.2024 23:19
Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Björgvin Franz Gíslason leikari varð fyrir því óhappi á sýningu Ellýjar í Borgarleikhúsinu að detta í miðri sýningu. Leikarinn virtist þó finna fljótt út úr því og stóð strax upp. Sjálfur segir hann þetta hafa verið „eitt lélegasta fall leikhússögunnar“. 21.11.2024 22:23
Sigraði í alþjóðlegri kokteilakeppni á Kýpur Grétar Matthíasson, margfaldur Íslandsmeistari í kokteilagerð, sigraði í alþjóðlegri kokteilakeppni sem haldin var í Limassol á Kýpur um síðustu helgi. Margir af fremstu barþjónum heims tóku þátt í keppninni en allir áttu þeir það sameiginlegt að hafa áður sigrað landskeppnir eða sigrað í alþjóðlegum keppnum. 21.11.2024 22:02