Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Veitinga- og athafnamaðurinn Quang Lé virðist hafa eignast krúnudjásnin í viðskiptaveldi sínu fyrir lánsfé og loforð sem lítil innistaða var fyrir. Þannig eignaðist hann Herkastalann fyrir aðeins sextíu milljóna króna útborgun og Wok On fyrir loforð um greiðslu síðar. Viðskipti innlent 5. júlí 2024 07:53
Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Rakel Mirra Njálsdóttir hóf veitingarekstur á Akranesi í sumar aðeins átján ára að aldri. Hún vildi bjóða upp á hollan skyndibita og sá engan tilgang í því að bíða eftir því að verða eldri. Lífið 4. júlí 2024 13:26
Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Alls greindust 190 manns með nóróveiru í kjölfar smits sem kom upp á Hamborgarafabrikkunni síðasta sumar. Uppruni smitsins var ekki rakinn til ákveðinna matvæla. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu sóttvarnarlæknis fyrir árið 2023. Alls voru þrjár nóróveiruhópsýkingar skráðar á síðasta ári. Sú stærsta á Hamborgarafabrikkunni. Innlent 4. júlí 2024 10:00
Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Ódýrasti Hlöllabáturinn kostar nú 2500 krónur og dekk í Costco hækkuðu um rúm tuttugu prósent á fjórum vikum. Neytendur 1. júlí 2024 07:40
Myndaveisla: Suðræn stemning í afmælisveislu Tres Locos Blásið var til heljarinnar veislu í tilefni tveggja ára afmælis veitingastaðarins Tres Locos á miðvikudaginn. Hópur tónlistarmanna og annarra skemmtikrafta mætti og skemmti lýðnum. Lífið 29. júní 2024 15:55
Segja eldsupptök ekki tengjast veitingastaðnum Upp kom eldur í Turninum á Höfðatorgi um hádegisbilið í dag. Rýming gekk vel og var slökkviliðið fljótt á vettvang og náði tökum á eldinum. Guðríður María Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Múlakaffis sem rekur veitingastaðinn Intro á Höfðatorgi, segir eldsupptök ekki hafa tengst veitingastaðnum á nokkurn hátt. Eldsvoðinn var að mestu leyti einskorðaður við veitingastaðinn. Innlent 26. júní 2024 16:28
Wok on-veldið falt WOKON ehf., sem hélt utan um veitingastaðakeðjuna Wok On, er til sölu. Félagið er í eigu veitingamannsins Quang Le og var úrskurðað gjaldþrota á dögunum. Viðskipti innlent 24. júní 2024 19:10
Vilja loka fyrir umferð um Ráðhústorgið á sumrin Eigandi kaffihúss á Ráðhústorginu á Akureyri berst fyrir því að torgið verði lokað fyrir bílaumferð í bænum yfir sumarið. Hann heldur reglulega vel heppnaða viðburði á torginu en segir erfitt að þurfa sífellt að sækja um leyfi fyrir lokun svo hægt sé að halda viðburði á torginu. Bæjarfulltrúi segist tilbúin að samþykkja tillögu um að loka fyrir umferð um torgið á sumrin. Innlent 21. júní 2024 11:11
Fyrrverandi starfsmaður Quang Le: „Hann er ekki velkominn hér“ Nýr veitingastaður hefur verið opnaður þar sem Pho Vietnam-ese var áður rekinn. Fyrrverandi framkvæmdastjóri eldri staðarins sem rekur einnig þann nýja, segist ekkert tengjast mansalsmáli Quang Le og er með meinta þolendur hans í vinnu. Innlent 20. júní 2024 20:01
Wok On gjaldþrota WOKON ehf., sem hélt utan um veitingastaðakeðjuna Wok On, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Félagið er að fullu í eigu veitingamannsins Quang Lé, sem grunaður er um mansal og fleiri refsiverð brot. Annað félag í hans eigu, EA17 ehf., hefur sömuleiðis verið tekið til gjaldþrotaskipta. Viðskipti innlent 20. júní 2024 10:23
Biðla til veitingamanna að selja ekki lunda Umhverfisstofnun og umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið biðla til veiðimanna og veitingageirans að gæta hófs við lundaveiðar og sölu á lundakjöti. Innlent 20. júní 2024 10:04
Tónleikahald á Kex hostel heyrir brátt sögunni til Gistiheimilið og veitingastaðurinn Kex hostel hefur frá opnun staðarins árið 2011 verið einn vinsælasti tónleikastaður Reykjavíkur. Miklar breytingar eru í farvatninu hjá hostelinu, en til stendur að færa veitingastaðinn niður á neðri hæðina, og breyta efri hæðinni allri þannig að þar verði svefnpláss. Tónleikahald á efri hæðinni mun því leggjast af. Innlent 19. júní 2024 18:00
Opnar sjálfur stað þar sem rekstur Quang Le gekk best Maður sem áður starfaði fyrir alræmda veitingamanninn Quang Le hefur opnað nýjan veitingastað í húsnæði sem áður hýsti veitingastað í eigu Le. Hann bauð fyrrverandi starfsfólki Le sem ekki hafði fengið vinnu eftir að stöðum hans var lokað, starf hjá veitingastaðnum. Viðskipti innlent 19. júní 2024 16:12
Jose Luis Garcia er allur Veitingamaðurinn Jose Garcia varð bráðkvaddur í vikunni en hann hafi starfað áratugum saman að veitingarekstri í Reykjavík. Innlent 19. júní 2024 10:55
Gríska húsinu lokað Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur lokaði veitingastaðnum Gríska húsinu í kjölfar aðgerða lögreglu í gær. Innlent 14. júní 2024 14:05
Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Atvinnuhúsnæði við Bankastræti 5 í miðborg Reykjavíkur hefur verið auglýst til leigu eina ferðina enn. Undanfarin ár hefur skemmtistaðurinn B5 verið þar til húsa, allt þar til í lok apríl. Húsnæðið er í eigu Fasteignafélagsins Eik. Viðskipti innlent 14. júní 2024 13:55
Grunur um mansal á Gríska húsinu Þrír voru handteknir í aðgerð lögreglunnar við Gríska húsið á Laugavegi fyrr í dag. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn hjá miðlægri deild lögreglunnar segir aðgerðir lögreglunnar tengjast gruni um vinnumansal á staðnum. Með lögreglu var starfsmaður Skattsins. Innlent 13. júní 2024 15:52
Lögregluaðgerð á veitingastað í miðbænum Lögregla er að störfum við veitingastaðinn Gríska húsið á Laugavegi í miðbæ Reykjavíkur. Að sögn vegfaranda var einn leiddur út af staðnum í járnum. Innlent 13. júní 2024 12:06
Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Búið er að opna bruggstofu í gamla Tónabíó og Vinabæ. Bráðum verður hægt að spila bingó þar á ný en eigandinn var óviss um hvort hann næði að opna staðinn allt fram á síðustu stundu. Viðskipti innlent 12. júní 2024 21:00
Frederiksen víkur fyrir Bird Barinn Frederiksen á horni Tryggvagötu og Naustanna skellir í lás fyrir fullt og allt. Reksturinn hefur verið seldur og nýr staður tekur við á næstunni. Stella Þórðardóttir, eigandi Frederiksen, segir þreytu komna í mannskapinn eftir tíu góð ár af rekstri. Viðskipti innlent 12. júní 2024 12:08
Framkoman eftir flogið niðurlægjandi og meiðandi Unnur Hrefna Jóhannsdóttir er ósátt við viðbrögð starfsfólks á veitingastað í Smáralind þar sem hún fékk flog í gærkvöldi. Unnur Hrefna segist hafa sótt staðinn reglulega um árabil og hafa fengið þar flog tvisvar áður. Aldrei hafi viðbrögðin verið eins og í gærkvöldi. Innlent 12. júní 2024 11:17
Senda fólk inn úr sólinni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarna daga haft eftirlit með veitingastöðum og kannað sérstaklega hvort umræddir staðir hafi leyfi til útiveitinga, en pottur virðist víða brotinn í þeim efnum. Gestum veitingastaða hefur víða verið vísað inn af útisvæði veitingastaða sem ekki hafa tilskilin leyfi til veitinga utandyra. Innlent 11. júní 2024 15:30
Kyrrstöðuverðbólga Að kæla hagkerfið, að ná niður verðbólgu og vöxtum hefur verið verkefni Seðlabankans undanfarin ár. Leiðin til þess hefur verið að hækka stýrivexti til að þrengja að ráðstöfunarfé þeirra Íslendinga sem skulda. Stærsti hluti þessa hóps er ungt fólk og millistéttin. Ungt fólk sem nýkomið er út á fasteignamarkaðinn og skuldar stóran hluta í fasteign sinni. Skoðun 10. júní 2024 11:30
Lögregla sendi fólk aftur inn úr blíðunni Gesti á Kaffibrennslunni í miðbænum var vísað inn af útisvæði staðarins eftir að í ljós kom að tilskilin leyfi til veitinga utandyra voru ekki til staðar. Lögreglumenn fóru á nokkra veitingastaði og bari niðri í bæ til að athuga hvort þeir væru með leyfi til veitingareksturs utandyra. Innlent 9. júní 2024 17:01
Pylsuvagninn á Selfossi er 40 ára í dag: Fríar pylsur og kók Íbúar á Selfossi og næsta nágrenni þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að verða svangir í dag því Pylsuvagninn býður upp á fríar pylsur og kók frá klukkan 14:00 til 16:00. Ástæðan er 40 ára afmæli pylsuvagnsins, sem hefur verið með um eitt þúsund starfsmenn í þessi 40 ára. Viðskipti innlent 9. júní 2024 12:15
Slökktu eld á Austur-Indíafjelaginu Allt tiltækt slökkvilið var kallað út klukkan 17.23 í dag vegna bruna á veitingastaðnum Austur-Indíafjelaginu á Hverfisgötu 56 í miðbæ Reykjavíkur. Loka þurfti fyrir umferð á meðan slökkvilið vann á vettvangi. Stuttan tíma tók að slökkva eldinn sem kviknaði í skorsteini í húsinu. Innlent 6. júní 2024 17:48
Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Írska skyndibitakeðjan Supermac hafði betur gegn skyndibitarisanum McDonalds í dómsmáli sem sneri að notkun vörkumerkisins Big Mac. Samkvæmt dóminum má McDonalds ekki nota vörumerkið í tengslum við kjúklingaborgara lengur. Viðskipti erlent 6. júní 2024 14:46
Wolt tekur hlutverk sitt á Íslandi alvarlega Í aðsendri grein á Vísi og aftur á Stöð 2 fjölluðu Halldór Oddsson og Saga Kjartansdóttir hjá ASÍ um alvarlegar ásakanir sem beint er að Wolt. Þessum ásökunum getum við ekki látið ósvarað. Skoðun 6. júní 2024 14:31
Segir rógburð að sendlar Wolt séu á „skammarlega lágum launum“ Upplýsingafulltrúi Wolt segir ekki rétt að fyrirtækið borgi starfsmönnum sínum skammarlega lág laun, eins og Vísir hafði eftir sviðsstjóra og sérfræðingi ASÍ í gær. Hann segir fyrirtækið hafa reynt að miðla málum við Alþýðusambandið án árangurs. Innlent 5. júní 2024 14:04
Sendlar Wolt á „skammarlega lélegum launum“ Sviðstjóri og sérfræðingur hjá lögfræði- og vinnumarkaðsviði ASÍ segja sendlarisann Wolt slá met í ábyrgðar- og skeytingarleysi í máli tuttugu einstaklinga sem kærðir hafa verið fyrir að starfa hjá fyrirtækinu án atvinnuréttinda. Þau segja Wolt nýta sér einstaklinga í berskjaldaðri stöðu og skora á neytendur að hugsa sig tvisvar um áður en þeir kaupa sér grunsamlega ódýra þjónustu. Innlent 4. júní 2024 14:14