Teatime í þrot og öllum sagt upp Sextán starfsmönnum íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Teatime hefur verið sagt upp störfum og verður starfsemi þess hætt. Langar viðræður um viðbótarfjármögnun eða hugsanlega sölu fyrirtækisins sigldu nýlega í strand. Viðskipti innlent 23. febrúar 2021 12:53
Einar Geir Jónsson tekur við sprotafyrirtækinu Unimaze Einar Geir Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri íslenska sprotafyrirtækisins Unimaze og tekur við starfinu af Markúsi Guðmundssyni, stofnanda fyrirtækisins. Markús mun áfram leiða hugbúnaðarþróun sem tæknistjóri Unimaze. Viðskipti innlent 23. febrúar 2021 12:26
Uppskera ævintýralegan vöxt eftir margra ára baráttu og áföll „Í flestum tilfellum eru peningarnir horfnir um leið og það er búið að millifæra þá, en þó eru til undantekningar. Til dæmis var eitt tilfelli þar sem íslenskt fyrirtæki tapaði hundruðum milljóna en endurheimti stóran hluta peninganna vegna þess að glæpamennirnir gátu ekki tekið þá nógu hratt út heldu aðeins með lágum upphæðum í einu. En þetta er erfiðara vegna þess að lögregluyfirvöld hafa ekki bolmagn til að rannsaka nema stærstu málin,“ segir Ragnar Sigurðsson stofnandi og framkvæmdastjóri AwareGo öryggisvitundar. Atvinnulíf 22. febrúar 2021 07:01
Ætla að auka verðmætasköpun og hagsæld með nýrri stefnu Nýsköpunarráðherra kynnir skýrslu á Alþingi í næstu viku sem felur í sér aðgerðir til að bæta samkeppnishæfni og auka verðmætasköpun í atvinnulífinu. Fjölmargir hafa komið að mótun stefnunnar segir verkefnastýra. Stefnan geti skapað ný og spennandi tækifæri fyrir atvinnulífið í landinu. Innlent 20. febrúar 2021 19:32
Fast land undir fótum Nýsköpun, rannsóknir, tækni og vísindi eru undirstaða framþróunar hvers samfélags. Þróttur í þessum greinum leiðir til fjölbreytni og þar með fleiri og styrkari stoða í atvinnulífinu. Stoðir sem byggja á hugviti og eiga möguleika á erlendum mörkuðum, skapa verðmæt störf og skila samfélaginu tekjum og stöðugleika. Skoðun 16. febrúar 2021 07:00
Byrjaði að brugga sextán ára í bruggverksmiðju foreldranna Bruggverksmiðja er orðin stærsta fyrirtækið í rótgrónu sjávarplássi við Eyjafjörð. Upphafið má rekja til þess að sjómannshjón á Árskógssandi urðu að finna sér ný verkefni þegar eiginmaðurinn neyddist til að hætta sjómennsku. Viðskipti innlent 15. febrúar 2021 23:12
Vöktun bóluefnis og mikil fjölgun starfsfólks framundan „Hugmyndin að Controlant kviknaði í Háskóla Íslands sem hluti af meistaranámi okkar. Controlant varð til í H1N1 árið 2009, eða Svínaflensunni eins og hún er kölluð. Þá var okkar tækni notuð til þess að verja og stýra dreifingu og hýsingu á bóluefninu á Íslandi,“ segir Gísli Herjólfsson framkvæmdastjóri Controlant um upphafið en fyrirtækið var stofnað af fimm félögum, sem ýmist þekktust úr æsku eða kynntust í háskólanum. Atvinnulíf 15. febrúar 2021 07:00
Stærri fyrirtæki þurfa að styðja betur við nýsköpun Stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica hefur orðið vör við það að frumkvöðlar eigi ekki eins greiða leið inn í stór fyrirtæki með hugmyndir sínar og áður. Skoðun 11. febrúar 2021 08:01
Sæti í stefnumótun Íslands til framtíðar Ég velti oft fyrir mér hvernig ég myndi vilja sjá Ísland fyrir komandi kynslóðir. Ég finn fyrir vaxandi áhuga unga fólksins á vissum málaflokkum, til að nefna orkumálum, náttúruvernd og heilbrigðismálum. Skoðun 8. febrúar 2021 17:00
„Hvað átti ég að gera sem aðrir höfðu ekki þegar gert?“ „Ætli það hafi ekki verið þegar Berlínarmúrinn féll,“ svarar Sigríður Snævarr þegar hún er spurð um það, hvaða atburður eða minning standi helst uppúr þegar litið er yfir farinn veg. Sigríður hóf störf hjá Utanríkisþjónustunni árið 1978 og í dag eru þrjátíu ár frá því að hún var skipuð sendiherra, fyrst íslenskra kvenna. Atvinnulíf 1. febrúar 2021 07:01
Ekki lengur vísindaskáldskapur Þó að þörfin á stóraukinni verðmætasköpun í íslensku samfélagi sé brýn er ekki þar með sagt að lausn vandans felist í því að hlaupa hraðar og stökkva hærra. Við getum valið að virkja frekar hugvitið til að smíða nýtt leikkerfi sem kollvarpar fyrra skipulagi. Við getum valið að byggja markvisst upp fjórðu útflutningsstoðina á grunni grænnar, loftslagsvænnar nýsköpunar. Skoðun 27. janúar 2021 08:01
Tryggðu sér alþjóðlega fjárfestingu eftir hafa sótt í sig veðrið í samkomubanni Íslenska sprota- og tæknifyrirtækið Noona hefur tryggt sér fjármögnun upp á 1,2 milljónir evra, eða um 190 milljónir íslenskra króna. Fjármögnunin er leidd af alþjóðlega fjártæknifyrirtækinu SaltPay sem keypti færsluhirðinn Borgun í mars 2020. Viðskipti innlent 26. janúar 2021 10:21
„Algjörlega galið“ að hvatarnir séu þveröfugir við markmiðin „Kerfið er okkar helsta áskorun þar sem hvatar eru þveröfugir og hvetja enn til þess að plast og annað endurvinnanlegt efni er flutt óunnið úr landi eða urðað. Það er algjörlega galið þar sem það hefur verri áhrif á umhverfið til viðbótar við tækifærin, verðmætin og störfin sem skapast ef við byggjum virðiskeðjuna upp hér á Íslandi,“ segir Áslaug Hulda Jónsdóttir forstöðumaður viðskipta og þróunar hjá fyrirtækinu Pure North. Atvinnulíf 25. janúar 2021 07:01
Ari, Ísól, Sunneva Sól og Þórdís Rögn hlutu Nýsköpunarverðlaun forsetans Ari Kvaran, Sunneva Sól Ívarsdóttir og Þórdís Rögn Jónsdóttir, nemar í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands og Ísól Sigurðardóttur, nemi í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík hlutu í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands árið 2021. Verðlaunin fengu þau fyrir verkefnið Betri samskipti við sjúklinga sem bíða innlagnar og meðferðar á sjúkrahúsinu Vogi. Viðskipti innlent 20. janúar 2021 13:47
Fá 335 milljóna styrk frá ESB til nýsköpunar Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Laki Power, sem þróar og framleiðir tæki til þess að fylgjast með ástandi háspennulína, hefur hlotið 2,1 milljóna evra styrk, jafnvirði um 335 milljóna króna, frá Evrópusambandinu til að þróa tæknina áfram og efla sölu- og markaðsstarf á erlendum mörkuðum. Viðskipti innlent 20. janúar 2021 11:06
Gjöfult sprotaumhverfi á frumkvöðlasetrum Með fyrirhugaðri lokun Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands lýkur ákveðnum kafla í sögu frumkvöðlasetra á Íslandi. Reynslan hefur sýnt að faglegur stuðningur á fyrstu stigum reksturs sprotafyrirtækja skiptir sköpum. Skoðun 18. janúar 2021 15:00
Fyrstu plönin fóru fljótlega í ruslið en núna stefnir Noona hátt „Planið okkar var upprunalega að vinna á daginn, ég að selja og Kjartan að búa til vöruna, og læra á kvöldin. Þau plön fóru fljótlega í ruslið. Áður en við vissum af vorum við farnir að vinna á daginn og spjalla um reksturinn á kvöldin. Einu skiptin sem við bjuggum til pláss fyrir lærdóminn var þegar prófkvíðinn var nægilega sterkur til að sannfæra okkur til þess,“ segir Jón Hilmar Karlsson framkvæmdastjóri Tímatals. Atvinnulíf 16. janúar 2021 07:00
Sex verkefni tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands Alls hafa sex verkefni verið tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands sem afhent verða við hátíðlega athöfn á Bessastöðum, 20. janúar næstkomandi. Viðskipti innlent 14. janúar 2021 11:55
Ragnheiður Elín ráðin framkvæmdastjóri Alor Ragnheiður Elín Árnadóttir, ferrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Alor ehf. Viðskipti innlent 12. janúar 2021 08:01
Stefna á milljarð í veltu innan tveggja til þriggja ára „Við erum nú þegar starfandi í þremur löndum og að vera dreift fyrirtæki er okkar styrkur. Við erum í samtölum við sjúkrahús, tryggingafélög, lyfjafyrirtæki og aðrar stofnanir í mörgum heimsálfum og munum einblína á að byggja upp þekkingu til að geta veitt viðskiptavinum okkar sem besta þjónustu,“ segir Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir framkvæmdastjóri RetinaRisk. Atvinnulíf 11. janúar 2021 07:01
Mega skila notuðum nærfötum Fataiðnaðurinn færist smátt og smátt í umhverfisvænni framleiðslu og sífellt bætast við þeir framleiðendur sem taka á móti flíkum til að endurvinna. Nú hafa notuð nærföt bæst við því bandaríska vörumerkið Big Favorite hefur tilkynnt að viðskiptavinir geti skilað til sín notuðum nærfötum til endurvinnslu. Atvinnulíf 23. desember 2020 07:01
Nýsköpun í bæjarlæknum Þegar við hugsum um nýsköpun koma fyrirtæki á borð við CCP, Össur, Marel og Controlant fyrst upp í hugann. Oft koma líka upp í hugann staðalmyndir frumkvöðulsins. Fáum myndi detta í hug að nefna nafn Eiríks Björnssonar, bónda í Svínadal í Skaftártungu, í sömu andrá og nýsköpun. Skoðun 19. desember 2020 17:26
„Förum varlega nú þegar við erum komin á lokasprettinn“ Samtök iðnaðarins héldu í gær viðburð í tilefni þess að ár nýsköpunar er senn á enda. Guðni Th. Jóhannesson forseti flutti ræðu af þessu tilefni þar sem hann hvatti landsmenn til dáða, bæði í virkjun hugvits og í baráttunni við heimsfaraldurinn. Viðskipti innlent 17. desember 2020 14:00
Sænskur banki semur við Meniga Íslenska fjártæknifyrirtækið Meniga hefur samið við sænsku bankasamsteypuna Swedbank og eru lausnir Meniga nú aðgengilegar öllum viðskiptavinum bankans í Svíþjóð, Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Viðskipti innlent 17. desember 2020 08:37
Tíu starfsmenn Efnagreininga NMÍ flytjast til Hafró Tíu starfsmenn, verkefni og tækjabúnaður Efnagreininga Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands munu flytjast til Hafrannsóknastofnunar. Tengist það því að til stendur að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð um áramótin. Innlent 14. desember 2020 13:14
„Hugmyndin kemur frá mér og Katrínu Tönju“ Alþjóðlega fyrirtækið STRAX var stofnað og er stjórnað af Íslendingum, er skráð hjá Nasdaq í Svíþjóð og hjá fyrirtækinu starfa um tvö hundruð manns. Fyrirtækið sérhæfir sig í dreifingu á aukahlutum fyrir farsíma en er um þessar mundir einnig í vöruþróun heyrnartóla undir vörumerkinu Dóttir. Atvinnulíf 14. desember 2020 07:52
Framfærsluáhyggjur og ótti draga úr nýsköpun Að sögn Huld Magnúsdóttur framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins er það samdóma álit flestra sem koma að nýsköpunarmálum að fjöldi og dýpt fyrirspurna um fjárfestingu verður meiri og öflugri fljótlega eftir kreppur. En fólk hefur fjárhagsáhyggjur. Atvinnulíf 11. desember 2020 07:01
Bein útsending: Matvælastefna Íslands kynnt Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra efna til kynningar á Matvælastefnu Íslands til ársins 2030. Þetta kemur fram í tilkynningu. Innlent 10. desember 2020 10:46
„Maður þarf að vera undirbúinn fyrir ansi mörg Nei” Í síðustu viku hófst sala í Bandaríkjunum á íslenskum snjallfatnaði fyrir íþróttafólk. Snjallfatnaðurinn er íþróttabolurinn Tyme Wear sem er með innbyggðum nemum. Þessir nemar mæla öndunarrýmd og hreyfingu. Atvinnulíf 7. desember 2020 07:00
Íslenski tónlistarhraðallinn Firestarter kynntur til leiks Ný viðskiptatækifæri í tónlistargeiranum – Covid og hvað svo? Hvernig verður tónlistargeirinn tilbúinn fyrir nýja framtíð þegar kórónuveirufaraldurinn gengur yfir? Albumm 7. desember 2020 07:00