Sigurður nýr forstöðumaður hjá Landsvirkjun Sigurður Markússon hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns nýsköpunardeildar á Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsviði Landsvirkjunar. Viðskipti innlent 7. maí 2021 12:34
Fyrsta íslenska fyrirtækið til að fá Alþjóðlegu líftækniverðlaunin Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Algalíf hefur hlotið Alþjóðlegu líftækniverðlaunin 2021 (e. Biotechnology Awards) sem besti framleiðandi á afurðum úr náttúrulegu astaxanthíni. Viðskipti innlent 6. maí 2021 12:52
Hanna æfingatæki fyrir fólk í hjólastólum Borgarstjórinn fékk skemmtilega heimsókn á skrifstofuna sína í dag þegar nemendur í Fjölbrautaskólanum við Ármúla mættu til að sýna honum nýtt æfingatæki sem þeir hafa hannað. Innlent 5. maí 2021 19:53
Arkitektarnir sem selja íslenska ull um allan heim „Ég fór til föðurömmu minnar, Katrínar Gunnarsdóttur, á hverjum laugardegi í mörg ár frá því að ég var um það bil níu ára. Þá gekk ég frá Álfheimum í Efstastundið til hennar, sat hjá henni í litla eldhúsinu hennar og við prjónuðum saman með útvarps-gufuna í bakgrunninu. Amma eldaði saltfisk með hamsatólg í hádeginu, brauðsúpu með rúsínum eða rabbabaragraut í eftirmat og bakaði svo vöfflur klukkan þrjú,“ segir Kristín Brynja Gunnarsdóttir arkitekt og annar eigandi fyrirtækisins Einrúm um aðdragandann að því að Einrúmbandið varð til. Atvinnulíf 3. maí 2021 07:01
Bein útsending: Nýsköpunardagur Haga Hagar hafa stofnað styrktarsjóðinn Uppsprettu sem verður kynntur á Nýsköpunardegi Haga sem fram fer í dag. Er nýja sjóðnum ætlað að stuðla að nýsköpun í matvælaiðnaði hér á landi. Markmið og tilgangur Nýsköpunardagsins er að hvetja til nýsköpunar og aukinnar sjálfbærni í matvælaiðnaði. Viðskipti innlent 28. apríl 2021 11:31
Alþjóðahugverkadagurinn 2021: Frá hugmynd að verðmætum Lítil og meðalstór fyrirtæki eru burðarás íslensks efnahags, nýsköpunar og verðmætasköpunar. Það er því ánægjulegt að á alþjóðahugverkadeginum, World IP Day, sem haldinn er 26. apríl ár hvert, er í ár sérstaklega horft til hins mikilvæga hlutverks lítilla og meðalstórra fyrirtækja í samfélaginu og hvernig þau geta nýtt hugverkaréttindi til að koma hugmynd sinni á markað. Skoðun 26. apríl 2021 08:00
Stórsókn framundan en fyrstu kynningarnar hálf vandræðalegar „Fyrstu fjárfestinga kynningarnar okkar Stefáns nafna míns og meðstofnandi í Solid Clouds, voru nú ekki uppá marga fiska. Ég gleymi því aldrei þegar að við æfðum okkur fyrir framan vini og kunningja. Dómarnir voru þeir að ég sneri bakinu í gesti á meðan ég var með framsögu og Stefán félagi minn talaði svo lágt að í honum heyrði enginn. Loks sagði einn í hópnum að hann væri engu nær um hvað við værum að gera og að kynningin væri með verri framsögum sem hann hefði heyrt!“ segir Stefán Gunnarsson, framkvæmdastjóri og einn af stofnendum tölvuleikjaframleiðslufyrirtækisins Solid Clouds. Atvinnulíf 26. apríl 2021 07:00
„Í dag getur nánast hver sem er gefið út bankaþjónustu“ „Í dag getur nánast hver sem er gefið út bankaþjónustu. Í stað þess að eyða tveimur til þremur árum í að smíða hana frá grunni má leigja tækniinnviði og þjónustur. Hægt er að fá aðgengi að þjónustum sem áður voru eingöngu á hendi banka,“ segir Gunnar Helgi Gunnsteinsson, einn stofnenda fjártæknifyrirtækisins Memento. Atvinnulíf 19. apríl 2021 07:00
Samþykkt að leggja Nýsköpunarmiðstöð niður Nýsköpunarmiðstöð verður lögð niður og nýtt tæknisetur tekur við verkefnum hennar samkvæmt frumvarpi sem var samþykkt á Alþingi í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar mótmæltu harðlega við atkvæðagreiðslu. Málið væri skaðlegt og vanhugsað. Innlent 15. apríl 2021 17:42
Fjórum samstarfsáætlunum ESB verður hleypt af stokkunum í dag í beinni á Vísi Fylgjast má með beinu streymi frá opnunarhátíð Evrópusamstarfs hér á Vísi klukkan 14. Samstarf 15. apríl 2021 10:00
Lykill að farsælli framtíð Eitt af því sem flestir stjórnmálaflokkar eru sammála um er mikilvægi rannsókna, þróunar og nýsköpunar. Skoðun 14. apríl 2021 16:01
Borgarfulltrúi stýrir Icelandic Startups Kristín Soffía Jónsdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Icelandic Startups. Hún tekur við starfinu af Salóme Guðmundsdóttur sem lætur af störfum í júní. Viðskipti innlent 14. apríl 2021 11:50
Bein útsending: Nýsköpun í rótgrónum rekstri Þekkingardagurinn 2021 fer fram þann 13 apríl en dagurinn hefur verið haldinn árlega síðan árið 2000. Deginum verður streymt beint á Vísi en útsending hefst klukkan 14:15 og líkur 16:00. Þema Þekkingardagsins 2021 er Nýsköpun í rótgrónum rekstri. Viðskipti innlent 13. apríl 2021 13:31
Múlanum ætlað að fjölga Norðfirðingum Norðfirðingar vonast til að heimta aftur brottflutta íbúa til baka og fá fjölda nýrra starfa með skrifstofuklasa og nýsköpunarmiðstöð sem búið er að opna í Neskaupstað. Innlent 8. apríl 2021 09:31
Íslenskur snjallhringur vekur athygli erlendra fjölmiðla Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Genki hefur sett á markað snjallhringinn Wave for Work sem gerir fólki kleift að stýra forritum á borð við Zoom, Microsoft Teams, PowerPoint og Spotify með einföldum handahreyfingum. Viðskipti innlent 6. apríl 2021 17:10
610 greiðandi viðskiptavinir erlendis frá en þrír á Íslandi „Í dag erum við með um 610 greiðandi viðskiptavini í sex heimsálfum. Þar af eru þrír á Íslandi. Einnig erum við með tugi þúsunda notenda á „freemium" eða fríplaninu okkar, og þar af eru einhverjir tugir eða hundruði á Íslandi,“ segir Jóhann Tómas Sigurðsson framkvæmdastjóri CrankWheel. Til samanburðar má nefna að fyrir fimm árum síðan voru greiðandi viðskiptavinir CrankWheel sextán talsins, þar af fimmtán á Íslandi en einn erlendis. Atvinnulíf 29. mars 2021 07:01
Meniga fær 1,5 milljarða fjármögnun og hjálpar fólki að áætla kolefnissporið Íslenska fjártæknifyrirtækið Meniga hefur tryggt sér 1,5 milljarðs króna fjármögnun. Fjármögnunin var leidd af hollenska fjárfestingasjóðnum Velocity Capital Fintech Futures og íslenska fjárfestingasjóðnum Frumtak Ventures. Viðskipti innlent 25. mars 2021 10:37
Frumkvöðlasjósund, hönnunarkeppni gervifóta og íslenskt wasabi Nýsköpunarvikan verður haldin þann 26. maí til 2. júní næstkomandi en þar gefst fyrirtækjum og frumkvöðlum kostur á að standa fyrir nýsköpunartengdum viðburðum. Viðskipti innlent 23. mars 2021 11:31
Nýsköpunarverkefni í kjölfar Covid sem skilaði af sér tugmilljóna króna viðskiptum „Raunin var að fjöldi þátttakenda fimmfölduðust frá árinu áður og fóru úr þúsund gestum í fimm þúsund. Ánægja gesta hefur aldrei mælst hærri og 97% þeirra sem svöruðu ánægjukönnuninni voru ánægðir með nýja ráðstefnuvefinn,“ segir Auður Inga Einarsdóttir markaðsstjóri Advania um þá óvæntu en góðu þróun sem varð í kjölfar Covid, þegar Advania þróaði stafrænan viðburðarvef til að bregðast við þeirri stöðu að geta ekki haldið sína árlegu haustráðstefnu í Hörpu. Atvinnulíf 22. mars 2021 07:00
Hlúum að verðmætasköpun Töluvert hefur gefið á bátinn í íslensku efnahagslífi vegna kórónuveirufaraldursins sem nú tröllríður heimsbyggðinni. Botninn hefur dottið úr heilu atvinnugreinunum og útflutningur minnkað mikið. Skoðun 19. mars 2021 11:00
Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki tryggir sér þriggja milljóna dala fjármögnun Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Menlo Ventures hefur fjárfest í íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Fractal 5, sem er að þróa nýjan hugbúnað á sviði samskiptatækni. Viðskipti innlent 16. mars 2021 21:39
Mikil tækifæri framundan í fasteignatækniiðnaði Fasteignatækni (e. Proptech) er regnhlífarhugtak yfir tæknifyrirtæki sem vinna með fasteignir á einn eða annan hátt. Á Íslandi starfar fjöldi slíkra fyrirtækja og er fasteignatækni vaxandi iðnaður. Skoðun 15. mars 2021 15:31
Gagnagrunnur fyrir ólöglegt efni að verða að veruleika „Á síðustu árum hefur umræða um dreifingu á ólöglegu efni á netinu aukist gríðarlega og er líklegt að á næstu árum verði sett lög sem skylda alla netþjónustuaðila til að leita að og uppræta slíkt efni. Það má því segja að ein af upphaflegu hugmyndunum okkar um gagnagrunn fyrir ólöglegt efni sé að verða að veruleika,“ segir Sigurður Ragnarsson framkvæmdastjóri Videntifier. Atvinnulíf 15. mars 2021 07:00
Þessi fengu styrk frá Hönnunarsjóði Hönnunarsjóður úthlutaði á föstudaginn tuttugu styrkjum til ólíkra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs og þrettán ferðastyrkjum til tíu verkefna. Tíska og hönnun 8. mars 2021 15:31
„Stuttu síðar hringdi Placewise einfaldlega í okkur“ Á dögunum undirritaði íslenska upplýsingafyrirtækið Tactica samning við fyrirtækið Placewise Group um innleiðingu á hugbúnaðarlausn sem Tactica hefur þróað. Placewise Group er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu á sviði stafrænna lausna fyrir verslunarmiðstöðvar og þjónustar yfir eitt þúsund verslunarmiðstöðvar í þremur heimsálfum. „Við höfum frá upphafi stefnt með Integrator á alþjóðamarkað og lítum á samninginn við Placewise sem frábæra byrjun,“ segir Ríkharður Brynjólfsson, einn eigenda Tactica. Atvinnulíf 8. mars 2021 07:01
Aukum verðmæti ullarinnar, ull er auðlind! Síðustu vikur hef ég átt samtal við sextán ára son minn, þar sem hann spurði mig um ull og um væntanlegt Ullarþon sem mamma hans er að aðstoða með. Skoðun 4. mars 2021 16:00
Kristinn Árni í Northstack formaður stjórnar Kríu Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra nýsköpunarmála, hefur skipað fyrstu stjórn Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóðs og sett reglugerð svo sjóðurinn geti hafið störf. Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, stofnandi vefritsins Northstack og ráðgjafi, hefur verið skipaður formaður stjórnarinnar. Viðskipti innlent 4. mars 2021 11:29
Með eða ekki, áfram eða stopp? Möguleikar hins stafræn hafa gríðarmikil áhrif á viðskipti og markaðsmál dagsins í dag. Með eiginleikum stafrænnar umbreytingar, nákvæmra mælistika og gagnvirkni hafa komið fram nýir möguleikar til markaðssetningar sem bjóða upp ný tækifæri í því hvernig við komum til móts við viðskiptavini. Áfram gakk með stafrænni umbreytingu, eða stopp? Skoðun 4. mars 2021 09:32
Nýr 8,3 milljarða vísisjóður hyggst fjárfesta í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum Brunnur Ventures hefur lokið fjármögnun á 8,3 milljarða króna vísisjóði (e. venture capital fund) sem ber nafnið Brunnur vaxtarsjóður II. Sjóðnum er ætlað að fjárfesta í íslenskum sprota- og vaxtarfyrirtækjum og er fjármagnaður af tíu lífeyrissjóðum auk Landsbankans. Viðskipti innlent 3. mars 2021 10:24
Gekk um götur New York með kynningu og nú með notendur um allan heim „Yfir nítján þúsund fyrirtæki í 132 löndum nota Sling daglega, krakkar internetið virkar!“ segir Helgi Hermannsson framkvæmdastjóri Sling en Sling er hugbúnaður fyrir vinnustaði þar sem unnið er á vöktum. Atvinnulíf 1. mars 2021 07:00