Bleiki liturinn settur í sviðsljósið með nýjum kerrum Nokkrar Bónusverslanir hafa fengið bleikar innkaupakerrur sem viðskiptavinir geta nýtt sér þegar verslað er. Kerrurnar eru minni en þær gulu en markaðsstjórinn segir nýju kerrurnar vera það sem viðskiptavinir hafa verið að kalla eftir. Viðskipti innlent 27. janúar 2023 10:28
Icelandair hefur áætlunarflug til Krítar Icelandair tilkynnir í dag Krít á Grikklandi sem nýjan áfangastað í leiðakerfi sínu. Flogið verður einu sinni í viku, á föstudögum, frá Keflavíkurflugvelli til Chania flugvallar á Krít. Viðskipti innlent 26. janúar 2023 13:27
Óverðtryggð íbúðalán greidd upp í fyrsta sinn í sex ár Uppgreiðslur óverðtryggðra íbúðalána í desember voru meiri en veiting nýrra lána af sama tagi en þetta var í fyrsta sinn í sex ár sem hrein ný óverðtryggð íbúðalán í bankakerfinu voru neikvæð í einum mánuði. Innherji 25. janúar 2023 16:02
Ég ætla að fá að skila þessu, takk Í beinu framhaldi af hátíð ljóss og friðar vaknar gjarnan upp eldgamla og sígilda tuggan um rétt neytenda til að skila ógallaðri vöru. Furða margir sig á að ekki sé í lögum sérstaklega fjallað um slíkan rétt neytenda. Skoðun 20. janúar 2023 11:30
BYKO með ánægðustu viðskiptavinina sjötta árið í röð Íslenska ánægjuvogin kynnti fyrir helgi niðurstöður mælinga á ánægju viðskiptavina fjörutíu íslenskra fyrirtækja í fjórtán atvinnugreinum á árinu 2022. Í flokki byggingavöruverslana hlaut BYKO hæstu einkunnina sjötta árið í röð og hefur því sigrað óslitið í þeim flokki frá upphafi mælinga í honum. Samstarf 19. janúar 2023 08:45
Hafa samþykkt 59 prósent umsókna um hlutdeildarlán Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur samþykkt 59 prósent af þeim umsóknum sem borist hafa um hlutdeildarlán frá því að opnað var fyrir umsóknir í nóvember 2020. Viðskipti innlent 18. janúar 2023 13:42
„Íslendingar eru farnir að finna vel fyrir hækkandi verðlagi og háu vaxtastigi“ Kortavelta jókst um rúmlega eitt prósent að raunvirði í desember síðastliðinn miðað við sama mánuð 2021. Svo hægur hefur vöxtur kortaveltunnar ekki verið síðan í febrúar 2021. Ætla má að einkaneysla verði talsvert hægari á lokafjórðungi ársins 2022, eftir metvöxt á fyrstu níu mánuðunum. Viðskipti innlent 17. janúar 2023 10:27
Vara við neyslu á kjúklingi vegna gruns um salmonellu Grunur hefur komið upp um salmonellusmit í tveimur framleiðslulotum af kjúklingi frá Reykjagarði. Fyrirtækið framleiðir kjúkling fyrir Holta, Kjörfugl og Krónuna. Neytendur 16. janúar 2023 15:37
Fer ekki eftir tillögu starfshóps um að skipa starfshóp Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, hefur ákveðið að fara ekki að tillögu starfshóps um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum mengunar, um að skipa starfshóp um fjármögnun björgunarsveita. Afstaða til tillagna fyrrnefnda starfshópsins verður tekin eftir samtal við björgunarsveitir. Innlent 16. janúar 2023 15:16
Loppumarkaðir hækka þóknun á seldum vörum Loppumarkaðirnir Extraloppan, Barnaloppan og Gullið mitt hækkuðu þóknun á seldum vörum fyrir skömmu. Hækkunin sem um ræðir, 3% og 5%, var hvergi auglýst. Eigandi Extraloppunar segir reksturinn erfiðan og að hækkunin hafi verið nauðsynleg. Neytendur 16. janúar 2023 11:31
Hætta á að launahækkanir verði notaðar sem tylliástæða fyrir verðhækkanir Samanlagður rekstrarhagnaður fyrirtækja um sextíu prósent á árunum 2018-2022 samkvæmt mati BHM. Á sama tíma hækkaði verðlag um tuttugu prósent. Hagnaðarhlutfall fyrirtækja hefur aldrei hækkað eins skarpt á milli ára eins og milli áranna 2020 og 2021 og gefur til kynna að fyrirtæki landsins hafi aukið meðalálagningu á heildarkostnað milli ára og velt kostnaðarhækkunum út í verðlag. Neytendur 15. janúar 2023 15:00
Afpöntuðu skíðaferðirnar fara fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir þrjú mál sem tengjast endurgreiðslu afpantaðra skíðaferða vegna Covid-19. Dómstóllinn telur að málin geti haft fordæmisgildi um rétt til endurgreiðslu vegna afpantaðra pakkaferða. Innlent 13. janúar 2023 13:21
Sjö fyrirtæki hlutu viðurkenningu Ánægjuvogarinnar Sjö fyrirtæki hlutu í morgun viðurkenningu Íslensku ánægjuvogarinnar 2022 en alls voru 40 fyrirtæki mæld í fjórtán atvinnugreinum. Þetta er í 24. árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með Ánægjuvoginni. Viðskipti innlent 13. janúar 2023 09:36
Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kynntar Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar verða kynntar á Grand Hótel klukkan 8:30 í dag. Neytendur 13. janúar 2023 08:00
IKEA innkallar spegla IKEA hefur ákveðið að innkalla LETTAN spegla til viðgerðar þar sem veggfestingarnar geta brotnað. Neytendur 12. janúar 2023 09:37
Nú er hægt að nálgast vegabréfsupplýsingar rafrænt Íslendingum gefst nú kostur á að nálgast vegabréfsupplýsingar sínar og barna sinna inni á Ísland.is. Um er að ræða samstarfsverkefni Stafræns Íslands, Þjóðskrár og Sýslumanna. Neytendur 11. janúar 2023 12:39
Sjónvarpskaupendum velkomið að fá mismuninn endurgreiddan Raftækjaverslunin Elko lækkaði verð á sjónvarpi um eitt hundrað þúsund krónur í gær eftir að athugull neytandi vakti athygli á gríðarlegum verðmun á sjónvarpinu milli verslana. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir neytendur almennt fljóta að láta vita þegar ekki er brugðist nægilega hratt við verðþróun. Neytendur 9. janúar 2023 21:44
Tískumerkin greiða minna en svarar framleiðslukostnaði Margar tískufataverslanir hafa greitt verksmiðjum í Bangladesh minna fyrir vörur en sem svarar framleiðslukostnaðinum. Sérfræðingur segir þetta koma niður á starfsmönnum verksmiðjanna. Erlent 9. janúar 2023 08:42
Bandarískir bændur fá leyfi til að gera sjálfir við traktorana sína Bændur í Bandaríkjunum hafa unnið sigur í baráttunni gegn einum stærsta framleiðanda landbúnaðarvéla í heiminum og munu héðan í frá geta gert við eigin traktora eða látið gera við þá á verkstæðum sem eru ekki í eigu Deere & Co. Erlent 9. janúar 2023 06:59
Sjónvarpið lækkaði um hundrað þúsund eftir verðsamanburð Það getur margborgað sig að gera verðsamanburð þegar leggja á í dýr tækjakaup, líkt og sannaði sig þegar Ellý Hauksdóttir Hauth keypti sér nýtt sjónvarp á dögunum. Við verðsamanburð tók hún eftir rúmlega 170 þúsund króna verðmun á sjónvarpi af sömu gerð og stærð milli Ormsson og ELKO. Síðan hefur sjónvarpið lækkað um hundrað þúsund krónur hjá ELKO. Neytendur 8. janúar 2023 18:01
Krefjast fundar með ráðherrum sem allra fyrst vegna tolla VR, Landssamband íslenzkra verzlunarmanna, Rafiðnaðarsambandið og Félag atvinnurekenda hafa óskað eftir fundi með Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra til að ræða lækkun og niðurfelllingu tolla í þágu neytenda. Neytendur 5. janúar 2023 15:48
Svikarar narra leigjendur í neyð með fölskum gylliboðum Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að um alveg sérlega ósvífna tegund af svikastarfsemi sé að ræða en brögð eru að því að óprúttnir hrappar geri út á neyð leigjenda. Þeir auglýsa íbúðir til leigu, sem er tilbúningur en heimta sérstakt umsóknargjald svo leigjendur eigi möguleika á að sækja um íbúðina. Innlent 5. janúar 2023 12:47
Endurheimti ekki bílinn fyrr en hann hringdi í lögregluna Ferðalangur sem geymdi jeppa sinn hjá Lagningu á meðan á utanlandsferð stóð segist hafa neyðst til að hringja á lögreglu til að endurheimta bílinn sinn frá fyrirtækinu. Fleiri viðskiptavinir hafa fengið þau svör að bíll þeirra finnist ekki. Neytendur 5. janúar 2023 10:01
Mandarínurnar brugðust Agli og fleirum þessi jólin Egill Helgason sjónvarpsmaður er afar ósáttur við mandarínusendinguna til Íslands nú í desember. Neytendur 4. janúar 2023 14:33
Mikilvægara að draga úr neyslu heldur en að flokka Óflokkað rusl fyllir skemmur Sorpu eftir neyslugleði þjóðarinnar um jól og áramót. Of mikilli ábyrgð er velt yfir á herðar neytenda þegar kemur að umhverfismálum. Innlent 4. janúar 2023 08:01
Domino's hækkar aftur verð á þriðjudagstilboði sínu Domino's á Íslandi hefur hækkað verð á þriðjudagstilboði sínu úr 1.100 krónum í 1.200 krónur. Rúmt ár er síðan fyrirtækið hækkaði verð á tilboðinu úr þúsund krónum í 1.100 eftir að verðið hafði þá haldist óbreytt í ellefu ár. Neytendur 3. janúar 2023 14:56
Sekta fimmtán veitingastaði í mathöllum Fimmtán veitingastaðir í mathöllum landsins hafa verið sektaðir um fimmtíu þúsund krónur fyrir að bregðast ekki við athugasemdum Neytendastofu um ófullnægjandi verðmerkingar. Alls gerði Neytendastofu athugasemd við merkingar hjá 37 af 54 veitingastöðum. Neytendur 2. janúar 2023 17:03
Margvíslegar verðhækkanir um áramót Landsmenn geta átt von á margvíslegum verðhækkunum um áramótin en misjafnt er hvað snertir hvern. Vísir fór á stúfana og skautaði yfir landslagið hvað varðar verðhækkanir á þjónustu á landinu. Eðli máls samkvæmt er listinn þó langt í frá tæmandi. Neytendur 1. janúar 2023 11:18
Verð á flugeldum hækkar vegna gengissveiflu Flugeldasala björgunarsveitanna hefst formlega í dag en verð á flugeldum hækkar frá því í fyrra vegna gengissveiflu. Formaður Landsbjargar segir flugeldasölu langmikilvægasta fjáröflunarliðinn þrátt fyrir að síðustu ár hafi björgunarsveitirnar reynt að hafa eggin í fleiri körfum. Innlent 28. desember 2022 12:54
Fóru beinustu leið að skila og skipta gjöfum Fyrsti opnunardagur verslana eftir jól var í dag og má því gera ráð fyrir því að margir hafi nýtt tækifærið til að skila eða skipta jólagjöfum sem hentuðu ekki alveg. En hversu rúmur er skilafresturinn og er algengt að fólk skili jólagjöfum? Neytendur 27. desember 2022 21:01