Snyrtifræðingar vilja reglugerð frá ráðuneytinu Félag íslenskra snyrtifræðinga gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð af því tagi sem lýst er í sjónvarpsþættinum Kompási á Stöð 2 þar sem ófaglærðir sinna fegrunarmeðferðum með fylliefnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Innlent 25. september 2023 22:55
Verð lyfseðilsskyldra lyfja hækkar um mánaðamót Verð lyfseðilsskyldra lyfja mun hækka um næstu mánaðamót. Smásöluálagnin hækkar um 3,6 prósent miðað við heildarsmásöluálagningu árið 2022. Neytendur 25. september 2023 18:09
Hætta á matareitrun: Innkalla ostasósu Aðföng hafa ákveðið að innkalla ostasósuna „Santa Maria Dip Nacho Cheese Style“ í 250 gramma dósum. Ástæða innköllunarinnar er að í tiltekinni framleiðslulotu greindist baktería sem valdið getur matareitrun. Neytendur 24. september 2023 10:50
Símaverinu ekki alveg lokað en forstjóri boðar breytta tíma Domino's hefur ákveðið að færa pizzapantanir nánast alfarið yfir á netið. Forstjóri fyrirtækisins segir símaverið ekki alveg á bak og burt en líkir nýrri nálgun við pöntun á flugferðum. Enn verði símaþjónusta í boði fyrir þá sem hana þurfa sérstaklega. Viðskipti innlent 23. september 2023 10:49
Ís úr vél að vetri til heyrir brátt sögunni til á Siglufirði Óðum steðjar að sá dagur að Siglfirðingar og nærsveitungar geti ekki keypt sér ís úr vél eða bland í poka úr nammibar. Videoval, sögufræg sjoppa í bænum, er til sölu en verður lokað um áramótin finnist ekki nýir rekstraraðilar. Viðskipti innlent 21. september 2023 16:07
Vilhjálmur segir Seðlabankann búinn að skíta í buxurnar Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, skrifar pistil á Facebook-síðu sína þar sem hann beinir sjónum að Seðlabankanum og stöðugum stýrivaxtahækkunum bankans. Vilhjálmur er venju fremur ómyrkur í máli og er þá mikið sagt. Innlent 21. september 2023 14:11
Krónan á Granda opnuð á ný í dag Krónan opnar dyrnar á ný á Granda klukkan 15 í dag eftir fjögurra vikna framkvæmdir. Tveir veitingastaðir munu bjóða upp á rétti sína í versluninni til viðbótar við þrjá sem þar eru þegar til staðar. Forsvarsmenn verslunarinnar segjast gríðarlega ánægð með breytingarnar. Neytendur 21. september 2023 12:36
Vildi ekki borga 25 þúsund og situr uppi með 405 þúsund króna reikning Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða bílaumboðinu BL um 55 þúsund krónur auk dráttarvaxta og málskostnað upp á 350 þúsund krónur. Maðurinn neitaði að borga 25 þúsund króna reikning vegna greiningar á bilun. Innlent 19. september 2023 10:24
Eyða hundruðum þúsunda í kynjaveislur Dæmi eru um að fólk eyði hundruðum þúsunda í skreytingar og annan aðbúnað fyrir kynjaveislur, að sögn eiganda verslunar með partívörur. Ein íburðarmesta kynjaveisla sem haldin hefur verið hér á landi vakti gríðarlega athygli í gær. Lífið 18. september 2023 20:36
Edda veitti viðskiptavinum ekki fullnægjandi upplýsingar Edda útgáfa hf. braut gegn ákvæðum laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu með því að upplýsa ekki viðskiptavini um ýmsa skilmála, hvorki í fjarsölu né við sölu á netinu. Neytendur 13. september 2023 11:11
Enn sektar Neytendastofa vegna fullyrðinga um CBD-olíu Neytendastofa hefur ákveðið að sekta Adotta CBD Reykjavík ehf. um 100 þúsund króna vegna brota í tengslum við fullyrðingar félagsins um lyfjavirkni snyrtivara sem innihalda CBD og eru seldar undir vörumerkinu „CBD RVK“. Neytendur 12. september 2023 12:14
Persónuafsláttur og þrepamörk hækka Gert er ráð fyrir því í ársbyrjun 2024 að persónuafsláttur hækki um rúmlega fimm þúsund krónur á mánuði og að skattleysismörk hækki um rúmlega 16 þúsund krónur. Neytendur 12. september 2023 11:04
Gert ráð fyrir aukinni gjaldtöku af rafbílum Gert er ráð fyrir aukinni gjaldtöku af rafbílum í nýju fjárlagafrumvarpi. Innleitt verður nýtt tekjuöflunarkerfi í tveimur áföngum. Fjármálaráðherra segir ríkið hafa gefið of mikið eftir af heildartekjum vegna rafbíla. Áfram verði hagkvæmara að eiga rafbíl. Neytendur 12. september 2023 10:06
Áfengis- og tóbaksgjöld hækka Lagt verður til að áfengis- og tóbaksgjald hækki um 3,5 prósent í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2024. Neytendur 12. september 2023 09:43
Ekki vöruð við þúsund króna gjaldi fyrir hraðbankaúttekt Þúsund króna úttektargjald er lagt á viðskiptavini bankanna þegar þeir taka út fjárhæðir á kreditkortum sínum. Viðskiptavinir eru ekki varaðir við fyrir fram og furðar viðskiptavinur Landsbankans sig á því. Landsbankinn segir að ómögulegt að birta nákvæman kostnað við úttektir með kreditkortum þar sem gjaldskrár banka séu misjafnar. Engin viðvörun er heldur gefin í hraðbönkum Íslandsbanka og Arion banka. Neytendur 12. september 2023 06:46
Þegar Íslendingar fengu alvöru stórmarkað Mikligarður spilar stórt hlutverk í þróun matvörumarkaðs á Íslandi en þegar verslunin opnaði í Holtagörðum í Sundahverfi árið 1983 var hún sú stærsta hér á landi, eða tæpir átta þúsund fermetrar. Þar var boðið var upp á ýmsar nýjungar sem ekki höfðu sést áður í verslunum á Íslandi. Lífið 10. september 2023 09:00
Fá sekt vegna fullyrðinga um CBD-olíuna Sprota Neytendastofa hefur ákveðið að sekta Healing Iceland ehf. um 100 þúsund krónur vegna fullyrðinga um lyfjavirkni snyrtivara sem innihalda CBD og eru seldar á vefsíðu félagsins undir vörumerkinu „Sproti“. Brotin eru metin alvarleg auk þess að stríða gegn góðum viðskiptaháttum. Neytendur 8. september 2023 10:54
Skipafélögin rúin trausti og Innnes skoðar að sækja bætur Ölgerðin ætlar að sækja bætur vegna samráðs Samskipa og Eimskipa. Fleiri félög kanna nú réttarstöðu sína og möguleika á skaðabótum. Forstjóri Innness segir skipafélögin tvö rúin trausti og sektarfjárhæð Samskipa senda skýr skilaboð. Viðskipti innlent 6. september 2023 20:58
Skoða að sækja bætur vegna samráðs skipafélaganna Ölgerðin skoðar nú að sækja skaðabætur vegna samráðs skipafélagannaSamskipa og Eimskips. Forstjóri segir málið reiðarslag og að samráðið hafi valdið félaginu og neytendum verulegum skaða og stórfelldu fjárhagslegu tjóni. Viðskipti innlent 6. september 2023 12:52
„Er matur raunverulega dýr á Íslandi?“ spyr forstjóri Haga „Er matur raunverulega dýr á Íslandi?“ spyr Finnur Oddsson, forstjóri Haga, í viðtali við Morgunblaðið. Hann segir að færa megi rök fyrir því að það sé ódýrara fyrir „heimafólk“ að kaupa í matinn hérlendis en á flestum stöðum í Evrópu, að minnsta kosti hlutfallslega miðað við útgjöld eða laun. Viðskipti innlent 6. september 2023 06:51
Stjórnendur farið langt yfir strikið Formaður Neytendasamtakanna telur samráð Samskipa og Eimskip hafa skilað sér til neytenda með hærra vöruverði. Hann segir það sorglegt að stjórnendur fyrirtækjanna tveggja hafi hagað sér með þessum hætti. Neytendur 2. september 2023 11:05
Innkalla Carbonara kjúklingapasta Álfasaga ehf. hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Carbonara kjúklingapasta. Ástæða innköllunar er röng innihaldslýsing og ómerktir ofnæmisvaldar, bæði egg og sellerí. Neytendur 1. september 2023 15:08
Arðsemi fyrst núna að nálgast arðsemi norrænna banka Bankastjóri Arion banka segir að bankinn fagni skýrslu menningar- og viðskiptaráðherra. Arðsemi stóru bankanna þriggja sé ekki of mikil. Arðsemi eigin fjár Arion banka var 14,5 prósent á fyrri helmingi ársins. Viðskipti innlent 30. ágúst 2023 16:50
„Okkur finnst þetta koma ágætlega út fyrir íslenskt bankakerfi“ Bankastjóri Landsbankans segir nýútkomna skýrslu menningar- og viðskiptaráðherra um viðskiptabankana koma ágætlega út fyrir íslenskt bankakerfi. Neytendur 30. ágúst 2023 12:13
Ýmislegt bendi til þess að bankar geti lækkað álagningu Ýmis atriði gefa vísbendingar um möguleika bankanna til aukinnar arðsemi eða lækkunar álagningar. Þetta segir í niðurstöðu starfshóps menningar- og viðskiptaráðherra í skýrslu um greiningu á gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna. Neytendur 29. ágúst 2023 17:29
Bein útsending: Lilja kynnir skýrslu um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna Menningar- og viðskiptaráðherra hefur til kynningar á skýrslu starfshóps ráðuneytisins um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna. Kynningin hefst klukkan 16:30. Viðskipti innlent 29. ágúst 2023 16:00
Léleg afkoma í landbúnaði leiði til hærra verðs í haust Búist er við að verð á landbúnaðarvörum hækki enn meira í haust. Meginástæðan er léleg afkoma í landbúnaði en stýrivaxtahækkun bætir gráu ofan á svart. Innlent 28. ágúst 2023 15:48
Cocoa Puffs og Lucky Charms aftur leyfilegt Sölustöðvun heilbrigðiseftirlita á morgunkorninu Cocoa Puffs og Lucky Charms hefur verið aflétt. Úrskurðanefnd matvælaráðuneytisins úrskurðaði þetta þann 18. ágúst síðastliðinn. Neytendur 28. ágúst 2023 15:27
Fólk á sjötugsaldri í skuldavanda vegna smálána Talsvert hefur borið á því að fólk á sextugs og sjötugsaldri leiti til Neytendasamtakanna vegna smálánaskulda sem það hefur neyðst til að taka. Formaður telur að ferðaþjónustan ætti að axla ábyrgð á verðbólgunni en ekki neytendur. Innlent 24. ágúst 2023 19:17
Rándýri Porsche-inn sem lyktaði dregur dilk á eftir sér Bílabúð Benna þarf að greiða Ólöfu Finnsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Dómstólasýslunnar, tæplega 700 þúsund krónur vegna gjalda sem Ólöf þurfti að standa skil á þrátt fyrir að kaupum hennar á Porsche hjá bílabúðinni hefði verði rift. Þá þarf Bílabúð Benna að greiða 700 þúsund krónur í málskostnað. Innlent 24. ágúst 2023 16:53