Vilja að fyrirtæki sem greiddu sér út arð endurgreiði ríkinu styrki Alþýðusambandið telur víst að mörg fyrirtæki hafi makað krókinn á ríkisstyrkjum og krefst þess að rannsókn fari fram á því hvert ríkisfjármunir fóru í faraldrinum. Eðlilegt sé að þau fyrirtæki sem hafi greitt sér út arð þrátt fyrir að hafa þegið ríkisstyrki verði látin endurgreiða þá. Innlent 18. febrúar 2022 11:56
Svona hefur ómíkron herjað á starfsfólk Landspítala Rúmlega tuttugu prósent starfsmanna hafa smitast af kórónuveirunni síðustu tvo mánuði. Þegar litið er á skiptingu eftir starfsstéttum og deildum hafa flest smitanna komið upp meðal hjúkrunarfræðinga og á bráðamóttöku. Innlent 18. febrúar 2022 11:01
Yfir hundrað þúsund hafa nú greinst smitaðir á Íslandi Hundrað þúsund smita múrinn var brotinn í gær hérna á Íslandi. Nú hafa yfir hundrað þúsund greinst smitaðir af kórónuveirunni frá upphafi faraldurs, eða um fjórðungur þjóðarinnar. Innlent 18. febrúar 2022 10:06
Fjölgar á gjörgæslu milli daga Fjörutíu og fimm sjúklingar liggja nú inni á Landspítala með Covid-19 og fjölgar þeim um einn frá því í gær. Fjórir eru á gjörgæslu og einn í öndunarvél, en í gær voru þrír á gjörgæslu og enginn í öndunarvél. Innlent 18. febrúar 2022 09:40
Leiðtogar mótmælanna í Kanada handteknir Lögreglan í kanadísku höfuðborginni Ottawa hefur handtekið tvo einstakling sem sagðir eru leiðtogar mótmælanna sem verið hafa í borginni síðustu vikur. Erlent 18. febrúar 2022 07:47
Lögreglan hótar tafarlausum aðgerðum gegn mótmælendum Lögreglan í Ottawa í Kanada segja aðgerðir gegn mótmælendum þar í borg yfirvofandi. Mótmælendum hafa nú verið sagt að yfirgefa svæðið ella sæta handtöku. Erlent 17. febrúar 2022 23:40
Næstu tvær vikur verði mjög erfiðar: „Við höfum ekki fleiri til að leita til“ Hátt í tíu prósent starfsmanna Landspítala eru nú frá vinnu vegna Covid og annarra veikinda. Staðan er því mjög þung á spítalanum um þessar mundir og má gera ráð fyrir að hún verði það áfram næstu vikurnar. Framkvæmdastjóri mannauðs á Landspítala vonar að fjöldi starfsmanna með Covid sé á leiðinni niður. Innlent 17. febrúar 2022 16:45
Staðan þung á spítalanum og horfir til algerra vandræða um helgina Farsóttanefnd og viðbragðsstjórn Landspítala hafa nú þungar áhyggjur af stöðu mála innan heilbrigðiskerfisins en fjöldi starfsmanna er nú frá vegna Covid, sem og annarra veikinda. Stjórnendur spítalans samþykktu í dag að framlengja álagsgreiðslur til starfsmanna. Innlent 17. febrúar 2022 15:44
Man ekki eftir öðrum eins forföllum Alvarleg staða kom upp á fæðingarvakt Landspítala í gær þegar ljósmæður bráðvantaði til starfa vegna veikinda. Yfirlæknir fæðingarteymis man vart eftir öðru eins ástandi en segir stöðuna betri í dag. 2.881 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, sem er mesti fjöldi frá upphafi faraldurs. Innlent 17. febrúar 2022 12:25
Ómíkron orðið allsráðandi og raðgreiningu hætt Ákveðið hefur verið að hætta raðgreiningu allra jákvæðra Covid-19 sýna. Mikill fjöldi jákvæðra sýna að undanförnu er langt umfram greiningargetu, auk þess sem að ómíkronafbrigði veirunnar hefur nú algjörlega yfirtekið deltaafbrigðið hér á landi. Innlent 17. febrúar 2022 11:39
Enn eitt metið: 2.881 greindist innanlands Í gær greindust 2.881 með veiruna innanlands en um er að ræða mesta fjölda frá upphafi faraldursins. Um er að ræða 400 fleiri tilfelli heldur en í fyrradag, þegar síðasta met var slegið. Innlent 17. febrúar 2022 10:55
Innlögðum á Landspítala fækkar milli daga Alls eru nú 44 inniliggjandi á Landspítala með Covid-19 en um er að ræða fækkun á milli daga. Áfram eru þrír á gjörgæslu, enginn þeirra í öndunarvél. Um 450 fleiri börn eru nú í eftirliti hjá Covid göngudeildinni heldur en í gær. Innlent 17. febrúar 2022 10:20
Heilsugæslan tilbúin í slaginn: „Við ætlum að rúlla þessu upp“ Sóttvarnalæknir telur að faraldur kórónuveirunnar fjari út á næstu vikum. Verið er að loka Covid-göngudeild Landspítalans og fela heilsugæslunni verkefni deildarinnar. Innlent 16. febrúar 2022 23:11
„Ef fólk er veikt þá er það veikt og verður heima - annað er bara út í Hróa Hött“ Forstjóri Hrafnistu segir að nauðsynlegt geti verið að kalla Covid smitað, einkennalaust heilbrigðisstarfsfólk til vinnu vegna mönnunvarvanda. Forstjórinn leggur áherslu á að veikir starfsmenn verði að sjálfsögðu ekki kallað til vinnu enda veikindaréttur starfsfólks tryggður. Innlent 16. febrúar 2022 21:12
„Veikindarétturinn verður ekki brotinn“ Veikindarétturinn verður ekki brotinn. Þetta segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga um þau ummæli að mögulega þurfi að kalla covid smitað heilbrigðisstarfsfólk til vinnu vegna mönnunarvanda. Félagið mun bregðast við því ef stofnanir brjóti á veikindarétti hjúkrunarfræðinga. Innlent 16. febrúar 2022 20:00
Sýnatökum fækkar en biðin eftir niðurstöðu er enn löng Enn er nokkuð löng bið eftir niðurstöðum úr sýnatöku fyrir Covid-19. Heilsugæslan tekur nú töluvert færri sýni en spítalinn fær sýni úr fleiri áttum og er staðan enn þung. Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins telur að mögulega verði hægt að taka hrað- eða heimapróf gild í stað PCR. Innlent 16. febrúar 2022 15:30
Gæti slokknað í faraldrinum á næstu tveimur vikum Sóttvarnalæknir segir þjóðina á hraðri leið í hjarðónæmi nú þegar fjórðungur landsmanna hefur verið greindur með kórónuveiruna. Útbreiðslan sé líklega mun meiri og ekki sé óvarlegt að áætla að helmingur þjóðarinnar eða meira hafi smitast. Innlent 16. febrúar 2022 13:13
Hætta að bólusetja í höllinni ári síðar Fjöldabólusetningar hófust í Laugardalshöll í febrúar 2021 og nú ári síðar stendur til að þeim muni ljúka. Þeir sem eiga eftir að fá bólusetningu eða örvunarskammt munu eftir næstu viku geta leitað til heilsugæslunnar. Innlent 16. febrúar 2022 11:20
Veiran náði í skottið á Sigurði Inga Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra er með Covid-19. Sigurður Ingi greinir frá þessu á Facebook. Innlent 16. febrúar 2022 11:20
Nýtt met: 2.489 greindust innanlands í gær 2.489 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 106 á landamærum. Aldrei hafa fleiri greinst á einum degi. Innlent 16. febrúar 2022 10:24
Karlmaður á sextugsaldri með Covid lést á gjörgæslu Karlmaður á sextugsaldri með COVID-19 lést á gjörgæslu í gær. Innlent 16. febrúar 2022 10:22
Enginn í öndunarvél annan daginn í röð 48 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Þrír eru á gjörgæslu. Enginn er í öndunarvél, annan daginn í röð. Innlent 16. febrúar 2022 09:51
Heilsugæslan og Læknavaktin taka við Covid-göngudeildinni Heilsugæslan og Læknavaktin munu taka við meginhluta af þjónustu og eftirliti með þeim sem eru veikir af Covid-19 af Landspítala frá og með deginum í dag. Yfirfærslan er í samræmi við þróun faraldursins hér á landi þar sem sífellt færri greinist alvarlega veikir. Innlent 16. febrúar 2022 09:41
Bólusetning virðist vernda gegn langvinnu Covid Heilbrigðisöryggisstofnun Bretlands hefur yfirfarið fjölda breskra og alþjóðlegra rannsókna um áhrif bóluefna á svokölluðu langvinnu Covid og komist að þeirri niðurstöðu að bólusetning virðist veita ákveðna vörn. Erlent 16. febrúar 2022 08:56
Stutt gaman hjá Sturlu Eftir að hafa verið í einangrun og svo sóttkví vegna kórónuveirusmits stærstan hluta Vetrarólympíuleikanna náði Sturla Snær Snorrason ekki langt í svigi í nótt. Sport 16. febrúar 2022 06:59
Um helmingur íbúa lést á innan við mánuði Saksóknari í Katalóníu á Spáni hefur ákært tvo stjórnendur öldrunarheimilis fyrir manndráp, en á innan við mánuði, létust 64 íbúar heimilisins, nær helmingur íbúa, vegna Covid 19. Lýsingar saksóknara á ástandinu á heimilinu minna á atriði úr hryllingsmynd. Erlent 15. febrúar 2022 14:32
Öllu aflétt eftir tíu daga og jafnvel fyrr Heilbrigðisráðherra segir stefnt að því að aflétta öllum sóttvarnaraðgerðum eftir tíu daga og jafnvel fyrr ef aðstæður leyfa. Einangrun verði þá einnig aflétt en ráðherra hvetur þá sem veikjast til þess að halda sig heima - líkt og í öðrum veikindum. Innlent 15. febrúar 2022 11:49
1.712 greindust innanlands í gær 1.712 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 162 á landamærum. Innlent 15. febrúar 2022 11:15
Sjúklingum á Landspítala með Covid-19 fjölgar milli daga 47 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og fjölgar þeim um sex milli daga. Innlent 15. febrúar 2022 09:59
Munu geta fryst bankareikninga mótmælenda Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur veitt yfirvöldum auknar heimildir til að reyna að bæla niður þau mótmæli gegn bólusetningarskyldu sem staðið hafa í landinu síðustu vikur. Þetta er í fyrsta skipti sem forsætisráðherra Kanada virkjar ákvæði sérstakra neyðarlaga með þessum hætti. Erlent 15. febrúar 2022 07:47