Samfélagsleg ábyrgð eða hvað? Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, gagnrýnir á heimasíðu sambandsins nýjan samning Landsbankans og Alþjóðahúss. Samningurinn hljóðar upp á tíu milljónir og er sá stærsti sem Alþjóðahúsið hefur gert við einkaaðila. Viðskipti innlent 22. júní 2007 03:00
Skeljungur sem skiptimynt Þrálátur orðrómur hefur verið í gangi um væringar í forystu FL Group. Samkvæmt því sem best verður vitað er allt í sóma í forystu fyrirtækisins og samkomulag gott milli forstjóra og nýkjörins stjórnarformanns. Viðskipti innlent 21. júní 2007 01:00
Sólin sleikt Mér líður eins og nýkjörnum alþingismanni þessa dagana sem auk þess er með laun sem borgarfulltrúi. Nóg til af peningum og tíminn endalaus. Ég er enn að bíða eftir yfirtökunni í Actavis og einnig hvað ég fæ mikið af færeyska bankanum. Viðskipti innlent 20. júní 2007 03:45
Rugga ekki bátnum Mikið hefur verið rætt um hverjir hafi farið með völdin yfir digrum sjóðum Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga. Félaginu var stýrt af fimm manna stjórn sem sat í umboði 24 manna fulltrúaráðs sem virðist hafa skipað sig sjálft. Viðskipti innlent 20. júní 2007 03:00
Framtíðin flöktandi Alan Greenspan, fyrrum seðlabankastjóri Bandaríkjanna, var eitt sinn inntur eftir því af fréttamanni hvernig hann sæi fyrir sér þróun hlutabréfamarkaða í framtíðinni. „Þeir munu flökta“ var einfalt svar Greenspans. Skemmst er frá því að segja að hann hefur reynst sannspár. Viðskipti innlent 20. júní 2007 02:00
Endurkoma víkinganna Ítarleg umfjöllun var um Kaupþing í bresku blöðunum Finanacial Times og Sunday Times um helgina undir yfirskriftinni Nýja víkingainnrásin. Bankinn hefur staðið í eldlínu stórra viðskipta í Bretlandi upp á síðkastið og stefnir nú allt í að bankinn ætli að standa í vegi fyrir því að breski stórmarkaðurinn Tesco ryðji sér leið inn í garðvörugeirann. Viðskipti innlent 20. júní 2007 01:00
Nefndin aðhefst ekkert í 365 Yfirtökunefnd hyggst ekkert aðhafast vegna viðskipta Baugs Group á hlutabréfum í 365 hf., útgáfufélagi Fréttablaðsins. „Ég á ekki von á því að við teljum að það þurfi að athuga þetta sérstaklega miðað við þær upplýsingar sem við fengum fyrir og um það leyti sem kaupin voru gerð,“ segir Viðar Már Matthíasson, formaður nefndarinnar. Viðskipti innlent 16. júní 2007 06:30
Hljóðlátt fimmtíu milljarða hlutabréfasafn Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar hefur verið hljóðlátur en umsvifamikill fjárfestir á íslenskum hlutabréfamarkaði. Fjárhagslegur styrkur félagsins hefur vaxið mikið á undanförnum árum samfara miklum gengishækkunum í fjármálafyrirtækjum. Viðskipti innlent 16. júní 2007 06:30
Kaupa Intersport Allir hluthafar Intersport A/S í Danmörku hafa samþykkt yfirtökutilboð fjárfestingafélagsins Arevs og Straums-Burðaráss í keðjuna. Þá hafa 96 prósent hluthafa verslana Intersport samþykkt tilboðið. Áreiðanleikakönnun fer nú fram en allt bendir til þess að af kaupunum verði. Viðskipti innlent 16. júní 2007 05:00
Virkja í Bosníu-Hersegóvínu Íslenska orkufyrirtækið Iceland Energy Group og Serbneska lýðveldið hafa gert með sér samstarfssamning um uppbyggingu þriggja vatnsaflsvirkjana á svæðinu. Serbneska lýðveldið er önnur tveggja stjórnunareininga Bosníu-Hersegóvínu. Forsætisráðherra Serbneska lýðveldisins var staddur hér á landi í gær af þessu tilefni. Viðskipti innlent 16. júní 2007 01:15
Grátkórinn Vaxtaumræðan tekur oft á sig furðulegustu myndir. DV lét Kristján Gunnarsson, formann Starfsgreinasambandins, mala um okurvexti bankanna og lágt viðskiptasiðferði þar sem viðskiptabankarnir nauðbeygi fólk til að taka yfirdráttarlán. Staðreyndin er hins vegar sú að það eru allir sem þurfa að greiða háa vexti í þessu landi hvort sem það eru einstaklingar eða fyrirtækin stór og smá. Viðskipti innlent 15. júní 2007 05:45
Frændgarður í Færeyjum Ég hef setið sveittur við það þessa vikuna að skrá hvert einasta andskotans snitti í allri ættinni fyrir hlut í Færeyjabankanum. Meira segja þeir sem eru óstaðsettir í hús samkvæmt þjóðskrá ætla að kaupa. Þetta verður fínt, en þeir í Lansanum hafa ekki verið að auðvelda manni lífið við þetta. Viðskipti innlent 13. júní 2007 06:00
Ísland í Kínabönkum Á næstu vikum og mánuðum munu munu viðskiptavinir kínverskra banka geta horft á íslenskt myndefni meðan þeir bíða eftir afgreiðslu í bankanum. Þetta felst í nýjum samningi sendiráðs Íslands í Kína við fyrirtækið Focus Media Development Co., sem sérhæfir sig í uppsetningu á sjónvarpsskjám og á sýningu myndefnis í opinberum stofnunum og fyrirtækjum. Viðskipti innlent 13. júní 2007 06:00
Vaxtarspenna Margur hagfræðinördinn hefur að öllum líkindum átt bágt með svefn í nótt fyrir spenningi. Hagstofa Íslands birtir nefnilega bráðabirgðatölur sínar fyrir landsframleiðslu á fyrsta fjórðungi þessa árs í dag. Viðskipti innlent 13. júní 2007 02:00
Enn af Kína... Nýr samningur milli Fjármála-eftirlitsins íslenska og bankaeftirlitsins kínverska tekur bæði til starfsemi íslenskra fjármálafyrirtækja í Kína og kínverskra fjármálafyrirtækja á Íslandi. Miðað við útrásargleðina sem ríkir hér er ólíklegt að opnun Glitnis á skrifstofu í Kína verði eina skref íslensku bankanna inn á þennan risamarkað. Viðskipti innlent 13. júní 2007 02:00
Úrvalsvísitalan tekur breytingum Eftir lokun markaða í dag mun Kauphöll Íslands tilkynna hvaða félög verða hluti af nýrri úrvalsvísitölu sem tekur gildi hinn 2. júlí. Greiningardeild Landsbankans telur líklegast að Alfesca og Atlantic Petroleum þurfi að víkja fyrir Existu og Icelandair. Viðskipti innlent 8. júní 2007 00:01
Peningaskápurinn ... Íslendingar hafa tekið virkan þátt í þróunaraðstoð í Malaví, einu fátækasta ríki Afríku. Hagkerfið er þriðjungi minna en það íslenska þrátt fyrir að íbúar landsins séu fjörutíu og fjórum sinnum fleiri en Íslendingar. Viðskipti innlent 7. júní 2007 00:01
Borga fyrir sig Námsfúsir rússneskuunnendur geta glaðst yfir því að nám á því sviði við Háskóla Íslands verður byggt upp frá grunni með næsta hausti. Þetta gerir veglegur styrkur frá þeim feðgum Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor Björgólfssyni Háskólanum mögulegt. Viðskipti innlent 6. júní 2007 00:01
Peningaskápurinn... Gengi bréfa í bandarísku fjölmiðlaútgáfunni Dow Jones & Co., sem stendur á bak við samnefnda fréttaveitu og útgáfu dagblaðsins Wall Street Journal, hækkaði um 15 prósent á markaði í Bandaríkjunum í fyrrakvöld. Viðskipti erlent 2. júní 2007 00:01
Peningaskápurinn... Samkeppnisyfirvöld í Bandaríkjunum kannar nú hvort kaup bandaríska netfyrirtækisins Google á netauglýsingafyrirtækinu DoubleClick brjóti í bága við samkeppnislög. Viðskipti erlent 1. júní 2007 00:01
Stungið upp í ráðherrann Henry Paulson, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, fundaði með Wu Yi, aðstoðarforsætisráðherra Kína, í Washington í síðustu viku. Efni fundarins var lágt gengi kínverska júansins, sem Bandaríkjastjórn segir að haldið sé lágu með handafli, og aukinn innflutningur frá Kína til Bandaríkjanna. Viðskipti innlent 30. maí 2007 00:01
Ungskáldin auka söluna Hún er þekkt sagan af Einari Má Guðmundssyni og fleiri skáldum sem þræddu kaffihús og bari borgarinnar á árum áður og gerðu tilraunir til að pranga nýjustu afurð sinni inn á misdrukkið fólk. Margir sluppu við bókakaup yfir bjórglasi á þeim forsendum að þá skorti lausafé. Viðskipti innlent 30. maí 2007 00:01
Spákaupmaðurinn: Grænpóstur á Bjögga Ég hef eins og fleiri verið með nokkuð stórar stöður í Actavis í gegnum tíðina. Þar hafa orðið til miklir peningar. Ég var því þokkalega sáttur þegar yfirtökutilboðið kom, enda búinn að vera að bæta við mig undanfarna mánuði. Viðskipti innlent 30. maí 2007 00:01
Fleiri dýralæknar Nýr bankastjóri Straums-Burðaráss er hokinn af reynslu í bankaheiminum og veit sínu viti í þeimi heimi. Fjármálaráðherra Íslands hefur stundum mátt sæta því að um bakgrunn hans sé talað með niðrandi hætti, en hann er dýralæknir að mennt. Viðskipti innlent 30. maí 2007 00:01
Peningaskápurinn Evrópuþingið hefur samþykkt tillögur um reglur sem koma til með að lækka verð á alþjóðlegu reiki innan Evrópu. Reikigjöld eru gjöld sem símafyrirtæki innheimta fyrir tengingar milli landa, en kostnaður við símtöl í farsíma milli landa hefur hingað til verið hár og oft erfitt fyrir neytendur að fylgjast með verðlagningu. Viðskipti innlent 25. maí 2007 00:01
Peningaskápurinn ... Greinilegt er að vinnan við alþjóðavæðingu SÍF, Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda, í gegnum árin með yfirtökum á fyrirtækjum á meginlandi Evrópu hefur tekist vel. Punkturinn var settur yfir i-ið þegar nafni SÍF var kastað fyrir róða og Alfesca tekið upp í febrúar í fyrra. Viðskipti innlent 24. maí 2007 00:01
Fyrirhyggjan í fyrirrúmi Sumir glottu við þegar fréttist af því að danski milljarðamæringurinn og skipakóngurinn Mærsk McKinney-Möller hefði pantað sér skútu í fyrra. Smíðin átti að taka tvö til þrjú ár og þótti einhverjum Mærsk fullbjartsýnn. Hann er jú fæddur árið 1913, fagnar 94 ára afmæli í júlí og yrði ansi nálægt tíræðisaldrinum þegar skútan yrði afhent. Viðskipti innlent 23. maí 2007 06:00
Gagnsæjar nafngiftir Ágætisskemmtan getur verið að lesa Lögbirtingarblaðið, sér í lagi þegar kemur að nafngiftum hlutafélaga. Landinn er enda duglegur við að hrinda viðskiptahugmyndum í framkvæmd og eitthvað þurfa börnin að heita. Einhver kynni þó að ætla að betur hefði verið heima setið en af stað farið þegar í blaðinu voru auglýst skiptalok á fyrirtækinu Óráði ehf. Viðskipti innlent 23. maí 2007 05:00
Allir búnir að kaupa Þá eru öll stóru fjármálafyrirtækin búin að taka upp seðlaveskið á árinu. Það kom mér ekki á óvart að heyra að Straumur-Burðarás væri að fjárfesta í Finnlandi, enda höfðu þeir verið að leita bæði þar og í Svíþjóð. Mér skilst að Kalli Werners hafi hrifsað til sín Invik fyrir framan nefið á Kaupþingi og Straumi. Viðskipti innlent 23. maí 2007 04:00
Dýrt að vera nýrík Viðskipta- og hagfræðingum gengur illa að spara peningana sem þeir þéna, sérstaklega þeim sem yngri eru. Ný könnun Félags viðskipta- og hagfræðinga, sem sagt er frá í Markaðnum í dag, gefur til kynna að stór hluti þessa hóps treysti sér alls ekki til að leggja meira en tíu þúsund krónur fyrir á mánuði. Viðskipti innlent 23. maí 2007 03:00