Hæstiréttur hafnar því að ógilda atkvæði í Pennsylvaníu Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað beiðni um að koma í veg fyrir að Pennsylvanía, sem var eitt af lykilríkjunum sem færðu Joe Biden sigur í bandarísku forsetakosningunum í síðasta mánuði, muni staðfesta sigur Bidens. Erlent 8. desember 2020 23:35
Trump-liðar reyna að troða sem flestum málum í gegn fyrir embættistöku Bidens Ráðgjafar Donald Trumps, forseta, og starfsmenn Hvíta hússins segja hann virðast þungan á brún og að hann hafi engan áhuga á vinnunni. Það er þrátt fyrir að faraldur nýju kórónuveirunnar hafi náð nýjum hæðum í Bandaríkjunum. Erlent 7. desember 2020 12:56
Barr ekki lengur í náðinni og sagður íhuga að hætta William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, íhugar að hætta sem ráðherra, áður en kjörtímabild Donald Trumps, forseta, rennur út í næsta mánuði. Trump brást mjög reiður við þegar Barr sagði nýverið í viðtali að starfsmenn ráðuneytisins hefðu ekki fundið neinar sannanir fyrir þeim umfangsmiklu kosningasvikum sem forsetinn segir að hafa kostað sig sigur í kosningunum í síðasta mánuði. Erlent 7. desember 2020 09:00
Giuliani lagður inn á sjúkrahús Rudy Giuliani, lögfræðingur Donalds Trump forseta og fyrrverandi borgarstjóri New York hefur verið lagður inn á sjúkrahús en hann greindist með Covid-19 um helgina. Erlent 7. desember 2020 06:56
Trump segir Rudy Giuliani kominn með Covid-19 Rudy Giuliani, persónulegur lögmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta og fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur greinst með Covid-19. Frá þessu greinir Trump á Twitter. Erlent 6. desember 2020 20:48
Sagður hafa beðið ríkisstjóra Georgíu um aðstoð við að snúa úrslitunum sér í vil Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, hafi hringt í ríkisstjóra Georgíu-ríkis, og þrýst á hann um að gera það sem hann gæti til þess að snúa niðurstöðum forsetakosningannna í ríkinu Trump í vil. Erlent 6. desember 2020 08:15
27 af 249 þingmönnum Repúblikana viðurkenna sigur Bidens Aðeins 27 þingmenn Repúblikana viðurkenna sigur Joes Biden í forsetakosningunum í Bandaríkjunni mánuði eftir sigur hans. Biden fékk sjö milljónum fleiri atkvæði á landsvísu en Donald Trump forseti og jafnmarga kjörmenn og tryggðu Trump sigur í kosningunum árið 2016. Biden hlaut 306 kjörmenn gegn 232 kjörmönnum Trump. Washington Post greinir frá þessu. Erlent 5. desember 2020 22:51
Innlit í Air Force One Forsetaþotan Air Force One er án efa þekktasta flugvél heims en hún er til umráða fyrir forseta Bandaríkjanna. Á YouTube-síðunni Tech Vision má sjá innslag um flugvélina. Lífið 4. desember 2020 15:29
Hló þegar hann var spurður hvort það væri mikilvægt að Trump mætti Anthony Fauci verður meðal helstu ráðgjafa nýs Bandaríkjaforseta og mun jafnframt áfram sinna hlutverki sínu sem helsti sóttvarnasérfræðingur Bandaríkjanna. Þetta var meðal þess sem kom fram í viðtali CNN við Joe Biden og Kamölu Harris í gær. Erlent 4. desember 2020 12:46
Skýrsla tekin af Ivönku Trump vegna fjármálamisferlismáls Lögmenn frá dómsmálaráðherra Washington-borgar tóku skýrslu af Ivönku Trump, dóttur fráfarandi Bandaríkjaforseta og ráðgjafa hans, í tengslum við málsókn vegna meints misferlis með framlög til nefndar sem undirbjó innsetningarathöfn Trump árið 2017. Erlent 4. desember 2020 11:01
Trump bölsótaðist út af kosningarúrslitunum í löngu ávarpi Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, endurtók framandlegar og stoðlausar ásakanir um stórfelld kosningasvik í forsetakosningum síðasta mánaðar í furðulegu þriggja stundarfjórðunga löngu ávarpi sem hann birti á samfélagsmiðlum í gærkvöldi. Erlent 3. desember 2020 12:41
Sjáumst eftir fjögur ár! Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf þeim fregnum byr undir báða vængi í gær að hann hefði mögulega hug á því að bjóða sig aftur fram til forseta árið 2024. Erlent 2. desember 2020 17:27
Hótunum rignir yfir embættismenn í Georgíu: „Þetta hefur allt gengið of langt“ Gabriel Sterling, embættismaður sem kemur að framkvæmd kosninga í Georgíu, vandaði Donald Trump, forseta, og öðrum háttsettum Repúblikönum ekki kveðjurnar á blaðamannafundi í gærkvöldi. Erlent 2. desember 2020 12:30
Rannsaka meintar mútugreiðslur í skiptum fyrir náðanir Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna rannsakar nú mögulega glæpi sem tengjast mútugreiðslum til Hvíta húss Donalds Trump, fráfarandi forseta, í skiptum fyrir náðun. Ónefndir einstaklingar eru grunaðri um að hafa á laun boðið umtalsverð framlög í kosningasjóði í skiptum fyrir náðun eða mildun á refsingu. Erlent 2. desember 2020 10:20
Barr kannast ekki við svindl og Giuliani ekki við náðunarspjall William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, segir engar vísbendingar liggja fyrir um að stórfelld kosningasvik hefðu átt sér stað í nýafstöðnum forsetakosningum. „Hingað til höfum við ekki séð svindl af þeirri stærðargráðu að það hefði leitt til annarra úrslita í kosningunum,“ sagði Barr í viðtali við Associated Press. Erlent 1. desember 2020 22:42
Lögmaður Trump vill Krebs dreginn út í dögun og skotinn Stuðningsmenn Donald Trump Bandaríkjaforseta freista þess enn að fá niðurstöðum forsetakosninganna snúið. Baráttan hefur litlu skilað og reiðin magnast. Erlent 1. desember 2020 17:18
Fer úr Hvíta húsinu ef kjörmennirnir kjósa Biden Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að hann muni fara úr Hvíta húsinu ef kjörmennirnir kjósa Joe Biden, verðandi forseta, í kosningu sem fram fer þann 14. desember. Biden á að taka við embættinu 20. janúar. Erlent 27. nóvember 2020 06:27
Trump náðar fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa sinn Donald Trump, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að hann hafi náðað Michael J. Flynn, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa hans. Erlent 25. nóvember 2020 21:30
Til skoðunar að aflétta ferðatakmörkunum á Evrópu í Bandaríkjunum Bandaríkjastjórn íhugar nú að afnema ferðatakmarkanir á fólk sem hefur dvalið í 28 Evrópulöndum og Brasilíu vegna kórónuveirufaraldursins. Erlent 25. nóvember 2020 12:26
Trump sagður ætla að náða fyrrverandi ráðgjafa sinn Michael Flynn, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Hvíta hússins, er á meðal nokkurra einstaklinga sem Donald Trump, fráfarandi forseti, er sagður ætla að náða á síðustu vikum sínum í embætti. Erlent 25. nóvember 2020 10:31
Þetta gæti Biden gert í loftslagsmálum án þingsins Líkur eru á því að hendur Joe Biden, verðandi forseta Bandaríkjanna, verði að miklu leyti bundnar hvað varðar stórtækar aðgerðir gegn loftslagsbreytingum af völdum manna á meðan repúblikanar ráða efri deild Bandaríkjaþings. Hann gæti þó beislað framkvæmdavaldið til að bregðast við vánni. Erlent 24. nóvember 2020 11:53
Vinna við valdaskiptin fær formlega grænt ljós Valdaskiptaferlið í Bandaríkjunum getur nú formlega hafist eftir að forsvarsmaður GSA, alríkisstofnunar sem heldur utan um framkvæmd valdaskipta í Bandaríkjunum skrifaði undir bréf þess efnis. Erlent 24. nóvember 2020 00:06
Staðfesta sigur Bidens í Michigan Kjörstjórn Michigan-ríkis í Bandaríkjunum hefur nú staðfest sigur demókratans Joes Bidens í ríkinu í forsetakosningunum sem fram fóru fyrr í þessum mánuði. Erlent 23. nóvember 2020 22:38
Fækkar í sérsveit lögmanna Trumps Fækkað hefur í lögmannateymi Donald Trumps, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, sem hefur unnið að því að berjast gegn því umfangsmikla kosningasvindli sem Trump segir hafa kostað sig sigur í forsetakosningunum. Erlent 23. nóvember 2020 14:22
Einn helsti stuðningsmaður Trumps hvetur hann til að viðurkenna ósigur Chris Christie, fyrrverandi ríkisstjóri í New Jersey og einn helsti stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta í forsetatíð hans, hefur nú biðlað til Trumps um að viðurkenna ósigur í forsetakosningunum sem fram fóru í byrjun nóvember. Erlent 23. nóvember 2020 07:47
Biden tilkynnir ráðherraefni á þriðjudag Joe Biden verðandi forseti Bandaríkjanna mun tilkynna fyrstu ráðherrana sem sitja munu í ríkisstjórn hans á þriðjudag. Þá hefur hann hafið undirbúning á lágstemmdri athöfn þegar hann verður settur í embætti vegna kórónuveirufaraldursins. Erlent 22. nóvember 2020 23:30
Telja eftirlitsmenn Trump hindra endurtalningu í Wisconsin Yfirmenn kjörstjórnar í Wisconsin sökuðu eftirlitsmenn á vegum framboðs Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, um að reyna að hindra endurtalningu atkvæða úr forsetakosningunum þar í gær. Framboðið fór sjálft fram á endurtalninguna. Erlent 22. nóvember 2020 14:50
Dómsmáli vísað frá í Pennsylvaníu en Trump vill aðra endurtalningu í Georgíu Alríkisdómari í Pennsylvaníu vísaði frá málsókn framboðs Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, vegna forsetakosninganna þar í gær. Erlent 22. nóvember 2020 08:11
Tilraunir Trump til að breyta úrslitum stranda á Georgíu og Michigan Langsóttar tilraunir Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, til að snúa við úrslitum forsetakosninganna sem hann tapaði urðu fyrir enn einum áföllunum í gær. Erlent 21. nóvember 2020 09:38
Sonur Bandaríkjaforseta smitaður af veirunni Donald Trump yngri, sonur og nafni Bandaríkjaforseta, greindist smitaður af kórónuveirunni í byrjun síðustu viku. Talsmaður hans segir að hann sé einkennalaus en að hann sé nú í einangrun í veiðikofa sínum. Erlent 21. nóvember 2020 07:38