Lífið

Jóla­gjafir ís­lenskra vinnu­staða

Auður Ösp Guðmundsdóttir og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa
Það kenndi ýmissa grasa í jólagjöfum íslenskra fyrirtækja þetta árið
Það kenndi ýmissa grasa í jólagjöfum íslenskra fyrirtækja þetta árið Getty

Langflest íslenskt fyrirtæki og stofnanir sáu til þess að starfsfólkið færi ekki í jólaköttinn í ár. Líkt og fyrri ár eru gjafabréf vinsæl jólagjöf og virðist nú vera reglan frekar en undantekningin. Vísir tók saman hvað leyndist í jólapökkunum hjá starfsmönnum íslenskra fyrirtækja og stofnana að þessu sinni.

Minna um mjúka pakka

Reykjavíkurborg gaf starfsfólki kost á að velja milli tveggja gjafabréfa, í Borgarleikhúsið eða Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hjá stærsta vinnustað landsins, Landspítalanum gat starfsfólk valið á milli átta mismunandi gjafabréfa með mismunandi upphæðum, í 66 Norður, Útilíf, Kjötkompaní, Sky Lagoon, Yay, Olifa eða Bergið Headspace.

Starfsfólk Sinfóníuhljómsveitar Íslands fékk gjafabréf í Eymundsson og þá fékk starfsfólk Þjóðskrár ferðatösku og einn frídag. Starfsfólk Strætó fékk gjafakort hjá YAY að upphæð 20 þúsund krónur á meðan starfsfólk Reykjanesbæjar fékk 12 þúsund króna gjafabréf sem gildir í verslunum í bænum. Starfsfólk Vegagerðarinnar fékk mjúkan pakka þetta árið en í honum leyndist Básar ullarbolur frá 66°N. Í pakkanum hjá starfsfólki Hrafnistu leyndist gjafakort hjá S4S sem rekur verslanirnar Air, Ecco, Kaupfélagið, Skechers, Steinar Waage og Ellingsen.

Starfsmenn Símans fengu að velja á milli tveggja gjafabréfa upp á 80 þúsund krónur, annaðhvort hjá Icelandair eða Icewear. Sýn, sem rekur meðal annars Vodafone og fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, leyfir starfsmönnum að velja á milli tveggja gjafabréfa, hjá S4S eða hjá Högum, sem gildir í verslunum Olís, Hagkaup og Bónus. DV gaf starfsfólki sínu 35 þúsund króna gjafabréf í Kringluna á meðan Heimildin ákvað að gefa gjöf upp á gamla mátann en þar fengu starfsmenn veglegan matargjafakassa með alls kyns kræsingum. Á meðan fékk starfsfólk RÚV gjafabréf í Borgarleikhúsið að andvirði 15.600 krónur auk þess sem lítill og krúttlegur Lindor konfektkassi fylgdi með í pakkanum.

Icelandair gaf starfsfólki sínu 20 þúsund króna gjafabréf í Kringluna og marmarabretti frá FOLK. Starfsfólk PLAY fékk 30 þúsund króna gjafabréf sem gildir á sex veitingastöðum: Fjallkonunni, Tres Locos, Sushi Social, Tapas barnum, Sæta svíninu og Apótekinu.

Út að borða og Óskaskrín

Háskóli Íslands færði starfsfólki sínu að þessu sinni rafrænt gjafakort frá fyrirtækinu YAY að verðmæti 15 þúsund krónur. Listaháskóli Íslands sá einnig til þess að starfsfólkið færi ekki í jólaköttinn en í pakkanum leyndist Heklu Óskaskrín.

Kvika banki gaf 50 þúsund króna gjafabréf i Kringluna auk þess sem starfsmenn fengu Le crecuet lítinn pott, skurðbretti, Sambó lakkrís í fallegri öskju og tvo kryddstauka.

Starfsfólk Arion banka gat valið á milli fjögurra ólíkra gjafabréfa að upphæð 60 þúsund krónur sem gilda hjá Dineout, Sælkærabúðinni, Beryja hotels og Garmin búðinni.

Tvö fyrirtæki gáfu peningagjöf

Marel, sem lengi hefur verið þekkt fyrir að gefa veglegar jólagjafir, gaf starfsmönnum sínum að þessu sinni 50 þúsund króna gjafabréf í Kringluna auk þess sem allir starfsmenn fá frí á aðfangadag, þann 27.desember, og á gamlársdag. Starfsfólk Kerecis fékk kampavínsflösku ásamt 15 þúsund króna gjafabréfi í verslunum 66°Norður.

Starfsfólk Lyfju gat valið á milli gjafabréfa hjá N1, Krónunni og Elko, að andvirði 40 þúsund krónur fyrir starfsmenn í fullu starfi og 20 þúsund krónur fyrir starfsmenn í hlutastarfi. Á meðan var jólagjöf hjá Lyfjavali tvær vínflöskur og 25 þúsund króna gjafabréf í Kringluna.

Starfsmenn Ikea gátu valið úr þremur mismunandi matarkörfum, 25 þúsund króna gjafabréf frá S4S, eða 25 þúsund króna gjafabréf frá Ikea.

Fagkaup, móðurfélag Johan Rönning, Sindri, S.Guðjónsson, Áltak, Vatn og veitur og fleiri félaga gerði svo sannarlega vel við sitt fólk en jólagjöfin í ár var 150 þúsund króna peningagjöf.

Starfsfólk Össurar fékk 50 þúsund króna gjafabréf í Kringluna gg starfsfólk Icepharma fékk 50 þúsund króna gjafabréf í Smáralind. Þá fengu starfsmenn Samkaupa inneign í appi verslunarinnar, verslunarstjórar 50 þúsund króna inneign en almennir starfsmenn 30 þúsund, þó eftir starfshlutfalli síðastliðinna mánaða. 

Starfsmenn Elko fengu gjafabréf hjá Festi sem gildir í verslunum Elko, Krónunnar, N1 og Lyfju. Olís gaf starfsfólki sínu 50 þúsund króna inneignarkort sem gildir í verslunum Olís, Hagkaup og Bónus.

S4S, sem rekur verslanirnar Air, Ecco, Kaupfélagið, Skechers, Steinar Waage og Ellingsen, gaf starfsfólki sínu gjafabréf hjá fyrirtækinu, mismunandi að upphæð eftir starfshlutfalli.

Betri samgöngur gaf starfsfólki sínu 35 þúsund króna gjafabréf sem gildir í verslunum miðborgarinnar.

Jólagjöf Landsvirkjunar til starfsfólks var 48.000 króna peningagjöf, eftir að skattar höfðu verið greiddir af henni. Það er svipuð upphæð og hefur verið varið undanfarin ár í jólagjafir, sem hafa verið í formi til dæmis gjafabréfa eða gjafakarfa. Þá fékk starfsfólk Fisk Seafood 125 þúsund króna gjafabréf hjá Icelandair.

Tvist auglýsingastofa gaf starfsfólki sínu 50 þúsund króna gjafabréf frá Landsbankanum á meðan starfsfólk Eflu verkfræðistofu fékk gjafabréf að eigin vali úr Smáralind, Festi, Útilíf og fleiri verslunum. Á meðan fengu starfsmenn VSB verkfræðistofu 100 þúsund króna gjafabréf í Kringluna. Starfsfólk BL bílaumboðs fékk gjafabréf í Kringluna að upphæð 20 þúsund krónur.

Kynnisferðir gaf starfsfólki sínu 50 þúsund króna gjafarbréf í Kringluna og Garðabær 15 þúsund. Þá fengu starfsmenn stefnumótaforritsins Smitten Ipad-spjaldtölvu og bók um framúrskarandi vinnustaðarmenningu.

Toyota gerði vel við sína starfsmenn þessi jólin og gaf þeim 300 þúsund króna peningagjöf ásamt 50 þúsund króna inneign í Smáralind. Verkís gaf sínum 70 þúsund króna gjafabréf í Kringluna ásamt vali um gjafabréf á nokkrum stöðum að andvirði 35 til 50 þúsund króna. Starfsmenn Kópavogsbæjar fengu 7 þúsund króna gjafabréf á Yay.

Þessi listi er langt frá því að vera tæmandi yfir þær jólagjafir sem íslenskir vinnustaðir gáfu starfsfólki sínu. Sendu okkur endilega upplýsingar á [email protected] ef þú hefur einhverju við listann að bæta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.