Sport

Aldrei eins margir á heims­listanum fallið úr leik fyrir jól

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Rob Cross sýndi óánægju sína með handahreyfingum og svipbrigðum.
Rob Cross sýndi óánægju sína með handahreyfingum og svipbrigðum. James Fearn/Getty Images

Fyrrum heimsmeistarinn Rob Cross varð síðastur til að falla úr leik fyrir jólafrí á heimsmeistaramótinu í pílukasti þegar hann tapaði einvígi gegn góðvini sínum Scott Williams.

Cross vann mótið í frumraun sinni árið 2018 en hefur ekki náð sama árangri síðan. Hann tók opnunarsettið gegn Williams í gærkvöldi en tapaði svo rest nokkuð sannfærandi. Þetta var þriðja árið í röð sem hann fellur út í þriðju umferð. 

Hann varð einnig fjórtándi leikmaðurinn sem er á heimslistanum til að falla úr leik fyrir jól, það hefur aldrei gerst áður. 

Þetta var enn eitt einvígið á mótinu í ár þar sem lítilmagninn vinnur. Rob Cross er í fimmta sæti heimslistans en Scott Williams í 37. sæti. 

Það gerðist einnig í einvígi David Chisnall (sjötta sæti) og Ricky Evans (45. sæti) í gær, en þar gerði Chisnall mistök í útreikningum útskots. Hann náði þó að tryggja oddasett en tapaði þar.

Nú er líka orðið ljóst hverjir mætast í þriðju umferð, 32 manna úrslitum, eftir jól. Keppni hefst að nýju í Alexandria Palace klukkan hálf eitt föstudaginn 27. desember.

Dagurinn mun byrja á einvígi Stephen Bunting og Madars Razma. Jonny Clayton og Daryl Gurney og Damon Heta og Luke Woodhouse eigast svo einnig við.

Á föstudagskvöld mun ríkjandi heimsmeistarinn Luke Humphries mun halda titilvörn sinni áfram gegn Nick Kenny en fyrrum heimsmeistararnir Gerwyn Price og Peter Wright munu mæta Joe Cullen annars vegar og Jermaine Wattimena hins vegar.

Laugardagurinn hefst á einvígi Ryan Joyce og Ryan Searle. Síðan spilar Scott Williams gegn Ricardo Pietreczko og Nathan Aspinall mætir Andrew Gliding.

Á laugardagskvöld stígur svo Luke Littler aftur á svið, gegn Ian White. Eftir að þrefaldi heimsmeistarinn Michael van Gerwen spilar við Brendan Dolan og Chris Dobey spilar við Josh Rock.

Þriðja umferðin klárast svo á sunnudag þegar meistari opna breska mótsins Dimitri Van den Bergh spilar við Callan Ryds og Kevin Doets mætir Krzyszstof Ratajski. Lokaeinvígið fer fram um kvöldið en þar mætast Ricky Evans og Robert Owen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×