Erlent

Fimm skotnir til bana í Frakk­landi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Flóttamenn hafa komið sér upp búðum við ströndina hjá Loon-Plage. Árásarmaðurinn á að hafa skotið tvo flóttamenn til bana í búðunum í dag.
Flóttamenn hafa komið sér upp búðum við ströndina hjá Loon-Plage. Árásarmaðurinn á að hafa skotið tvo flóttamenn til bana í búðunum í dag. Getty

Tveir flóttamenn og tveir öryggisverðir voru skotnir til bana á ströndinni í Loon-Plage nálægt Dunkerque í Norður-Frakklandi í dag. Eftir skotárásina gaf 22 ára maður sig fram og sagðist hafa skotið fimmtu manneskjuna til bana fyrr um daginn.

Franskir fjölmiðlar greindu frá málinu síðdegis.

Lögregluyfirvöld hafa staðfest að fjórir voru skotnir til bana við ströndina í Loon-Plage, þar sem flóttamenn hafa komið sér upp flóttamannabúðum, og að fimmta manneskjan hafi verið myrt í bænum Wormhout. Fórnarlömbin fimm eru karlmenn samkvæmt frönskum miðlum.

Hinn grunaði gaf sig fram á lögreglustöðinni í Ghyvelde, austan við Dunkerque og sagðist bera ábyrgð á árásinni. Þrjú skotvopn fundust síðan í bíl mannsins. Rannsóknardeild lögreglunnar í Lille fer með rannsókn málsins.

Fyrsta morðið virðist hafa verið skipulagt

Lögreglan var fyrst kölluð til búðanna á Mardyck-vegi upp úr fjögur á staðartíma eftir tilkynningu um skotmann. 

Tvennum sögum fer af því í hvaða röð morðin áttu sér stað. Fyrst á skotmaðurinn að hafa skotið tvo flóttamenn, sem eru sagðir vera karlmenn af kúrdískum uppruna, til bana nálægt olíuhreinsunarstöð á svæðinu. Skömmu eftir það hafi hann myrt tvo öryggisverði sem voru á vakt í nágrenninu.

Skotmaðurinn játaði síðan að hafa skotið fimmtu manneskjuna til bana um þrjú síðdegis í Wormhout, sem er um 24 kílómetra frá Dunkerque. Samkvæmt vitnisburði ekkju hins láta varð eiginmaður hennar var við hávaða frá bíl í porti heimilisins og fór út. Þá hafi maður stigið út úr bílnum, skotið eiginmanninn nokkrum sinnum, þar á meðal í höfuðið, og keyrt á brott. Maðurinn sem lést var tveggja barna faðir og eigandi dráttarbílafyrirtækis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×