Innlent

Eldur kom upp í vinnu­skúr í mið­borginni

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út þegar klukkan var að ganga níu í morgun.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út þegar klukkan var að ganga níu í morgun. Vísir/Vilhelm

Eldur kom upp í vinnuskúr við Vatnsstíg í miðborginni og er slökkviliðið búið að ráða niðurlögum hans.

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu segir að greiðlega hafi tekist að slökkva eldinn en útkall barst þeim þegar klukkuna vantaði korter í níu í morgun.

Um var að ræða vinnuskúr við stúdentagarðana á Lindargötu þar sem framkvæmdir fara fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×