Innlent

Nýir þing­menn spenntir fyrir starfinu og mötu­neytinu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Vituð ér enn - eða hvat? Grímur Grímsson leggur hér við hlustir.
Vituð ér enn - eða hvat? Grímur Grímsson leggur hér við hlustir. Vísir/Vilhelm

Nýir þingmenn komu saman á nýliðadegi Alþingis í dag. Þar fengu þeir leiðsögn um húsakynni þingsins, kynntu sér starfsemina og hittust sumir hverjir í fyrsta skipti. Þá var látið vel að mötuneytinu. 

„Það er mjög gaman að kynnast starfsfólki þingsins og hvernig starfið er sett í skorður hér. Þetta er í föstum skorðum og áhugavert að kynnast því,“ sagði Grímur Grímsson, nýkjörinn þingmaður Viðreisnar, í samtali við Lillý Valgerði Pétursdóttur, sem var í þinghúsinu í dag.

Hann segist spenntur að byrja starf sitt, þar sem hlutirnir fari nokkuð rólega af stað á meðan formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins standa í stjórnarmyndunarviðræðum. Nýliðadagurinn sé því ákveðinn bautasteinn á vegferð nýkjörinna þingmanna.

Byrjað á föstudeginum þrettánda

Halla Hrund Logadóttir, nýkjörinn þingmaður Framsóknar, sagði að sér litist vel á fyrsta daginn.

„Það er ótrúlega mikill heiður að fá að taka þátt á þessum vettvangi, og gaman að byrja á föstudeginum þrettánda. Ég treysti því að það verði fyrir því að við séum að stíga inn í góða tíma,“ sagði Halla Hrund. 

Halla Hrund var hress og kát á nýliðadeginum.Vísir/Vilhelm

Hún sagði um stóran hóp nýliða að ræða, en sagðist eiga von á góðri samvinnu á þingi. Hún er eini nýliðinn í fimm manna þingflokki Framsóknar, sem er nú minnsti flokkurinn á þingi. 

Fer varlega í mötuneytið

Kristján Þórður Snæbjarnarson, nýkjörinn þingmaður Samfylkingarinnar, var upplitsdjarfur á fyrsta degi. 

„Mér líst mjög vel á þetta. Það er mjög spennandi að koma inn á þennan vettvang og sjá allt sem verið er að gera hér á þingi. Það verður spennandi að taka þátt í þessu,“ sagði hann.

Kristján Þórður Snæbjarnarson, nýr þingmaður Samfylkingarinnar.Vísir/Vilhelm

Enn sem komið væri hefði ekkert komið honum á óvart, en hann ætti eftir að kynnast mörgu. 

„Ég er búinn að smakka matinn, og hingað til hefur hann verið alveg meiriháttar. Ég hef pínu áhyggjur af því, maður þarf að gæta hófs þar og ég mun reyna það,“ sagði Kristján glaður í bragði. 

Nýr inn í annað sinn

Karl Gauti Hjaltason, nýkjörinn þingmaður Miðflokksins, var mættur á nýliðadaginn. Hann er þó ekki glænýr á þingi, en hann var kjörinn á þing fyrir Flokk fólksins árið 2017. Síðar á kjörtímabilinu skipti hann yfir í Miðflokkinn. Hann var ekki á þingi frá 2021 til loka síðasta kjörtímabils, og kemur því nýr inn á þing í annað sinn.

Karl Gauti Hjaltason kemur nýr inn á þing, en samt ekki.Vísir/Vilhelm

„Þetta leggst bara mjög vel í mig. Ég hef nú verið hér áður en þetta er alltaf jafn spennandi og gaman,“ sagði Karl Gauti. 

Hann sagði gaman að fá nýtt fólk inn, en reynsla væri ekki síður mikils virði. 

„Við erum líka með fullt af reyndu fólki,“ sagði Karl Gauti. 

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir sem Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Vísis tók í þinghúsinu í dag.

Nýir Alþingismenn streyma hér niður tröppur þinghússins.Vísir/Vilhelm
Jón Gnarr er sestur á þing fyrir Viðreisn.Vísir/Vilhelm
Arna Lára Jónsdóttir og Eydís Ásbjörnsdóttir skoða eitthvað sniðugt. Þær eru báðar í Samfylkingunni.Vísir/Vilhelm
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir kemur úr borgarstjórnarflokki Flokks fólksins yfir í þingliðið.Vísir/Vilhelm
Snorri Másson er einn nýrra þingmanna Miðflokksins.Vísir/Vilhelm
Ingvar Þóroddsson í Viðreisn er yngsti þingmaður þessa kjörtímabils.Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×