Erlent

Hvað verður um um­fangs­mikinn fíkniefnaiðnað Sýr­lands?

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Uppreisnarmenn kveiktu í miklu magni af Captagon sem fannst á Masseh herflugvellinum í Damaskus.
Uppreisnarmenn kveiktu í miklu magni af Captagon sem fannst á Masseh herflugvellinum í Damaskus. Getty/Anadolu/Emin Sansar

Uppreisnarmenn í Sýrlandi hafa nú yfirráð yfir miklum birgðum af efninu Captagon, sem var ávísað sem lyfi á 7. áratug síðustu aldar en síðar bannað. Efnið er talið hafa verið aðalútflutningsvara Sýrlands á síðustu árum.

Captagon er skylt amfetamíni og var á sínum tíma meðal annars notað við „hegðunarvandamálum“ hjá börnum, það sem í dag væri greint sem ADHD. Það var bannað vegna skaðlegra aukaverkana en hefur notið gríðarlegra vinsælda í Mið-Austurlöndum, þar sem það er meðal annars notað af bardagamönnum.

Samkvæmt rannsóknum fréttaveitunnar AFP er talið að tekjur af Captagon hafi verið meiri en samanlagðar tekjur af öllum löglegum útflutningi Sýrlands. Observatory of Political and Economic Networks áætlaði árið 2023 að útflutningstekjurnar hefðu numið 10 milljörðum Bandaríkjadala og þar af hefðu 2,4 milljarðar runnið beint til stjórnar Bashar al-Assad.

Maher al-Assad, bróðir forsetans, er raunar sagður hafa verið maðurinn á bakvið Captagon-iðnaðinn í Sýrlandi og þá segir í skýrslu Carnegie Middle East Center frá því í sumar að Assad hafi notað eiturlyfjaútflutninginn til að setja þrýsting á nágrannaríkin. ABC hefur eftir sérfræðingum að mörgum hafi þótt nóg um og að Tyrkir og Sádi Arabar hafi fengið sig fullsadda á því að reyna að eiga við Assad á meðan fíkniefnið flæddi yfir landamæri þeirra.

Þannig hafi Captagon mögulega átt sinn þátt í skyndilegu falli Assad, sem hefði fælt nágrannaríkin frá sér með yfirgangi.

Uppreisnarmenn HTS, hreyfingarinnar sem nú situr við stjórnvölinn í Sýrlandi, hleyptu fréttamönnum AFP inn í vöruhús við útjaðar Damaskus í vikunni, þar sem þeir fundu mikið magn Captagons sem búið var að koma fyrir í ýmsum rafmagnstækjum. Efnið er sagt hafa fundist víðar og í miklu magni.

Captagon hefur notið vinsælda í Mið-Austurlöndum meðal annars vegna þess að áfengisneysla er víða bönnuð. Leiðtogar HTS hafa heitið því að uppræta framleiðslu og útflutning efnisins frá Sýrlandi en sérfræðingar segja það verða að koma í ljós hvort það verður af því. 

Benda þeir meðal annars á að um sé að ræða gríðarlega fjármuni og spurningin hafi í raun ávallt verið sú hvort stjórn Assad hafi raunverulega stjórnað fíkniefnaiðnaðinum eða fíkniefnaiðnaðurinn Assad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×