Enski boltinn

Kippt af velli í hálf­leik og látinn heyra það

Sindri Sverrisson skrifar
Timo Werner olli stjóra sínum miklum vonbrigðum í gær.
Timo Werner olli stjóra sínum miklum vonbrigðum í gær. Getty/Robbie Jay Barratt

Ange Postecoglou, stjóri Tottenham, var ekki feiminn við að viðurkenna að hann var hundóánægður með Þjóðverjann Timo Werner í Evrópudeildarleiknum við Rangers í gærkvöld.

Postecoglou tók hinn 28 ára gamla og 57 landsleikja Werner af velli eftir fyrri hálfleik og setti Dejan Kulusevski inn á, og náði Svíinn að tryggja Tottenham 1-1 jafntefli með marki í seinni hálfleiknum.

Í byrjunarliði Tottenham var hinn 18 ára gamli Archie Gray í vörninni, vegna meiðslakrísu hjá miðvörðum liðsins, en það var Werner sem olli Postecoglou vonbrigðum:

„Hann var ekki einu sinni nálægt því stigi sem hann á að vera að spila á. Þegar maður er með 18 ára menn að spila þá get ég ekki liðið svona, og ég sagði það við Timo. Hann er reyndur, þýskur landsliðsmaður,“ sagði Postecoglou við Sky Sports.

Ange Postecoglou var ósáttur í Glasgow í gær.Getty/Steve Welsh

„Eins og staðan er núna þá höfum við ekki marga valmöguleika. Ég þarf á því að halda að allir reyni að minnsta kosti sitt besta. Frammistaða hans í fyrri hálfleik var óviðunandi,“ sagði Postecoglou.

Aðspurður hvernig Werner hefði tekið því að vera kippt svona af velli svaraði stjórinn:

„Ég veit það ekki. Það skiptir í raun ekki máli. Við þurfum á því að halda að allir, hann þar á meðal, leggi sitt af mörkum því breiddin er ekki næg til þess að við getum haft menn utan hóps ef þeir standa sig ekki. Menn verða að sinna sínu hlutverki, sérstaklega reyndari leikmenn. Þegar ég bið unga leikmenn um að taka að sér risahlutverk þá ætlast ég til ákveðinnar frammistöðu frá eldri leikmönnum og þannig var það ekki í dag.“

Werner kom að láni til Tottenham frá RB Leipzig í janúar og framlengdi svo dvöl sína út þessa leiktíð. Hann hefur spilað nítján leiki á þessari leiktíð og skorað eitt mark.

Eftir sex umferðir af átta í Evrópudeildinni er Tottenham með ellefu stig í 9. sæti, en átta efstu liðin komast beint í 16-liða úrslit. Liðin í 9.-24. sæti komast í umspil um sæti í 16-liða úrslitunum. Síðustu tvær umferðirnar verða kláraðar eftir áramót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×