Innlent

Fimmtungur veitinga­staða sem Efling sendi bréf hafa sagt sig úr SVEIT

Lovísa Arnardóttir skrifar
Sólveig Anna segist ánægð með viðbrögð forsvarsmanna veitingahúsa. Tugir hafa sagt sig úr SVEIT og fleiri tugir segjast ætla að fylgja kjarsamningi Eflingar frekar en SVEIT.
Sólveig Anna segist ánægð með viðbrögð forsvarsmanna veitingahúsa. Tugir hafa sagt sig úr SVEIT og fleiri tugir segjast ætla að fylgja kjarsamningi Eflingar frekar en SVEIT. Vísir/Vilhelm

Fimmtungur allra þeirra fyrirtækja sem Efling stéttarfélag sendi bréf vegna kjarasamnings SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, við stéttarfélagið Virðingu, hefur sagt sig úr samtökunum. Þá hafa enn fleiri fyrirtæki lýst því að þau muni fylgja kjarasamningum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu en þau tilkynntu í gær um ýmsar aðgerðir sem þau ætluðu í gegn SVEIT vegna kjarasamningsins.

Fjöldi samtaka og stéttarfélaga hafa lýst yfir stuðningi við Eflingu í baráttu sinni gegn SVEIT, Virðingu og þessum kjarasamningi. Í gær sendu BSRB og BHM frá sér sameiginlega yfirlýsingu og síðar Samiðn, samband iðnfélaga, þar sem þau fordæmdu aðför að réttindum launafólks.

„Ég er mjög ánægð með þau viðbrögð sem mér hafa borist frá forsvarsmönnum veitingahúsa. Langflestir hafa lýst yfir fullum vilja til að fylgja löglegum kjarasamningum og virða réttindi síns starfsfólks. Það er jafnframt ánægjulegt að sjá fyrirtækin segja sig úr SVEIT, en í því felst skýr afstaða gegn þeim ömurlega blekkingarleik sem SVEIT hafa sett á svið í gegnum gervistéttarfélagið Virðingu,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í tilkynningu.

22 sagt sig úr og 33 fylgja ekki kjarasamningi SVEIT

Efling sendi bréf fyrir hádegi í gær til aðildarfyrirtækja SVEIT þar sem tíundaðar voru sumar þær aðgerðir sem Efling hyggst ráðast í gegn SVEIT og einstökum aðildarfyrirtækjum, vegna kjarasamnings SVEIT við Virðingu sem þau segja ganga gegn fjölda laga og skerða rétt launþega á margan hátt.

Af þeim 108 fyrirtækjum sem fengu bréfið hafa 22 fyrirtæki lýst því að þau hafi gengið úr SVEIT eða hafi óskað eftir úrsögn. Það eru fimmtungur þeirra fyrirtækja sem Efling sendi bréfið á. Þá hafa alls 33 fyrirtæki lýst því að þau muni fylgja kjarasamningi Eflingar, eða tæpur þriðjungur. Þá hafa félaginu einnig borist staðfestingar á hinu sama frá fyrirtækjum sem ekki fengu umrætt bréf.


Tengdar fréttir

BSRB og BHM taka undir gagnrýni á stéttarfélagið Virðingu

BHM og BSRB segja stofnun stéttarfélagsins Virðingar ganga gegn grundvallarreglum á vinnumarkaði og taka undir gagnrýni Eflingar, Eflingar-Iðju og Alþýðusambands Íslands á stofnun félagsins. Félagið er stofnað af atvinnurekendum í veitingarekstri, Samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT.

Bauna á SVEIT og kjarasamninga sem standist ekki lög

Í tilkynningu stéttarfélagsins Eflingar er því haldið fram að kjarasamningur sem stéttarfélagið Virðing hefur við SVEIT, samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, gangi gegn ákvæðum fjölda laga og skerði rétt launþega til muna. 

Taka ekki þátt í orðræðu og átökum Eflingar

SVEIT, samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, hafa ákveðið að taka ekki þátt í „þeirri neikvæðu orðræðu og átökum sem hafa einkennt málflutning Eflingar undanfarin ár í garð veitingareksturs á Íslandi.“ Samtökin hafi ítrekað reynt að semja við Eflingu en hafi nú samið við stéttarfélagið Virðingu til fjögurra ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×